Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Qupperneq 13
'immtudagur 7. desember 2000
Fréttir
13
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skrifar:
Staðreyndir um Herjólfsmál
Þegar álit Kærunefndar útboðsmála lá fyrir sendi
fjármálaráðuneytið álitið til Vegagerðarinnar og þá fyrst
var gengið frá undirritun samnings. Það og fleira virðist
hafa farið framhjá talsmönum Heijólfs í tilraunum sínum
til að ófrægja Vegagerðina og samgönguráðherra.
Vegagerðin og ekki síður samgönguráðherra virðist hafa
átt að þeirra mati að víkja til hliðar öllum reglum og
vönduðum vinnubrögðum sem settar eru í þágu ríkissjóðs,
þeirra sem gera tilboð og um leið í þágu þeirra sem eiga að
njóta þjónustu feijunnar Herjólfs í þessu tilviki. Til slíkra
vinnubragða munu þeir ágætu menn ekki þvinga mig.
Að undanfömu hafa risið deilur vegna
útboðs á rekstri Heijólfs. Spjótum
hefur verið beint gegn mér. Helur mátt
lesa í Frétmm harkalegri viðbrögð en
efni standa til og í raun hreinar árásir.
Hafa hin breiðu spjót ekki verið
spömð. Af því tilefni vil ég gefa
lesendum Frétta stutt yfirlit um stað-
reyndir málsins.
1. Árið 1993 fól þáverandi sam-
gönguráðherra Vegagerðinni að sjá
um rekstur feija og leita hagkvæmustu
leiða við rekstur þeirra, þar á meðal
með útboði. Rekstur Grímseyjar-
feijunnar Sæfara var boðinn út þegar í
framhaldi þessarar ákvörðunar. Með
útboði þeirrar ferju lækkaði kostnaður
ríkisins verulega. Hefur rekstur Sæfara
gengið með ágætum, og ánægja ríkt
með þjónustu feijunnar. Á þessum
tíma kom ekki til útboðs á rekstri
Herjólfs og Baldurs vegna andstöðu
forsvarsmanna Herjólfs. Utboði var
því frestað. I stað þess var gerður
samningur um rekstur Hetjólfs sem
gilti til ársloka 1999. I grundvallar-
atriðum var eins staðið að málum
gagnvart Baldri. Öllum mátti vera ljóst
að stefnt var að útboði rekstursins að
samningstímanum loknum. Enda
verður að telja með öllu óeðlilegt að
enginn hvati sé til rekstrarhagræðingar
hjá fyrirtækjum sem njóta jafnhárra
styrkja úr ríkissjóði og ferjufyrirtækin
hafa gert.
2. Þegar ég tók við ráðuneyti sam-
göngumála lá fyrir að undirbúa
útboðið. Var sá undirbúningur settur
af stað um mitt sumar 1999. Eftir
viðræður við forsvarsmenn Heijólfs
var þeim gefinn enn lengri aðlög-
unartími sem nam einu ári og var
ákveðið að útboðið miðaði við að
samningur á grundvelli útboðs tæki
gildi í ársbyrjun 2001. Ákveðið var að
láta sama gilda um Breiðafjarðar-
feijuna Baldur.
3. Rekstur ferjusiglinga í Isa-
fjarðardjúpi var boðinn út án þess að
athugasemdir væru gerðar. Hvað
varðar Hríseyjarferjuna þá var ákveðið
að fresta áformum um útboð hennar
uns nýja ferjan hefði hafið rekstur.
Smíði hennar og afhendingu seinkaði
mikið og verulegar framkvæmdir
þurfti í höfnunum svo rekstur væri
tryggður. Nú er unnið að undirbúningi
á útboði Sævars.
4. Vegna undirbúnings útboðs á
rekstri Heijólfs var samþykkt í fjár-
lögum fyrir árið 2000 heimild til að
ráðstafa hlut ríkisins í Herjólfi hf.
Engar athugasemdir komu fram í
þinginu við afgreiðslu þeirrar heim-
ildar. Að fengnu lögfræðilegu áliti var
ákveðið að stjóm Heijólfs mætti gera
tilboð í ferjusiglingar þrátt fyrir
eignarhlut ríkisins, enda lá fyrir ein-
dreginn vilji forsvarsmanna Heijólfs
til þess. Sama gilti um Baldur.
5. Við gerð útboðslýsingar var leitað
umsagnar bæjaryfirvalda í Vest-
mannaeyjum. Leitast var við að
tryggja sem best hagsmuni Eyja-
manna. Gengu bæði Guðjón Hjör-
leifsson, bæjarstjóri, og Ámi Johnsen,
alþingismaður, mjög hart fram í því að
tryggja það - svo sem eðlilegt er. Aðrir
þingmenn en Ámi Johnsen höfðu
engin afskipti af málinu gagnvart
ráðuneytinu. Um útboð á vegum
ríksins gilda skýrar reglur og lög.
Samkvæmt útboðsreglum verður ekki
undan því vikist að taka lægsta tilboði
svo fremi að tilboðið sé metið full-
nægjandi. Tilboð lægstbjóðenda,
Samskipa hf., var metið gilt og
fullnægjandi.
6. Eftir að tilboð vom opnuð gerðu
talsmenn Heijólfs hf. harða hríð að
Vegagerðinni og töldu kostnaðarmat
hennar óraunhæft og að tilboð lægst-
bjóðenda gæti ekki staðist. Á fundi
sem ég átti með talsmönnum Heijólfs
gerði ég þeim ljóst að ekki yrði undan
því vikist að taka lægsta tilboði og
semja við Samskip. Ef þeir efuðust
um útboðið og mat á tilboðum gætu
þeir leitað álits Kæmnefndar útboðs-
mála. Engin loforð vom gefin af minni
hálfu. Eg taldi hins vegar, miðað við
aðstæður, mjög mikilvægt að Kæm-
nefnd útboðsmála fengi færi á að gefa
álit svo fyrir lægi hvort gengið hefði
verið á rétt Eyjamanna við gerð
útboðsgagna og við mat á tilboðunum.
7. Hér var komið að þeim kafla í þessu
máli sem hefur orðið talsmönnum
Herjólfs og fleiri sjálfskipuðum sér-
fræðingum málsins tilefni til stór-
felldra árása á mig. Vegna þess að
tilboðsfrestur var að renna út var það
skylda mín að fela Vegagerðinni að
standa þannig að málum að allar regl-
ur væm í heiðri hafðar og að hags-
munum ríksins væri ekki fómað eða
stefnt í óvissu vegna þess að tilboðs-
fresturinn var að renna út. Væri ekki
gengið frá samningi eða samkomulagi
við Samskip áður en útboðsfrestur
rynni út var lægstbjóðandi laus allra
mála og Vegagerðin þannig ber að því
að gæta ekki hagsmuna ríkissjóðs. Ég
gaf því þau fyrirmæli til Vegagerð-
arinnar að þannig yrði staðið að
málum að stjóm Heijólfs gæfist færi á
því að kæra til Kæmnefndar útboðs-
mála en hagsmunir ríkissjóðs jafn-
framt tryggðir með því að fara að
útboðsreglum. Til þess að tryggja alla
þætti var gert skriflegt samkomulag
við Samskip um að fyrirtækið stæði
við sitt tilboð en undirritun samn-
ingsins væri frestað vegna kæm
stjómar Herjólfs svo álit Kæmnefndar
fengist og athugasemdum stjómar
Heijólfs hnekkt eða fengin staðfesting
á að gagnrýni á útboðið væri réttmæt.
Niðurstaða Kæmnefndar útboðsmála
varð sú að útboðið og mat á tilboðum
var í alla staði rétt af hálfu Vega-
gerðarinnar. Kæmnefndin gerði engar
athugasemdir við vinnu Vegagerðar-
innar. Ekkert kemur fram í áliti
Kæmnefndarinnar þess efnis að skort
hafi upplýsingar frá stjóm Heijólfs svo
nefndin gæti tekið afstöðu til kær-
unnar frá stjóm Heijólfs.
8. Eins og lesendum Frétta er
væntanlega ljóst dró stjóm Herjólfs
kæm sína til baka og ætlaði þannig að
koma í veg fyrir að fjallað væri um
útboðið af Kærunefnd útboðsmála.
Allt bendir til þess að stjóm Herjólfs
hafi bmgðið á það ráð þegar hún áttaði
sig á því að málstaðurinn var vonlaus
og ekkert annað upp úr því að hafa en
kostnað sem því fylgdi að hafa lög-
menn á launum við að skrifa
greinargerð um mál sem fyrirfram var
tapað vegna þess að Vegagerðin hafði
farið að öllum reglum og lögum.
Hefði þeim verið alvara þá hefðu þeir
látið vinna í málinu í stað þess að kalla
eftir fresti ljómm dögum eftir að þeir
höfðu átt að skila inn greinargerð til
nefndarinnar. Allur málatilbúnaður og
framganga stjómar Heijólfs gagnvart
Vegagerðinni og ráðuneytinu er stjóm
og framkvæmdastjóra Heijólfs hf. til
vansa.
9. Með samkomulaginu sem gert var
milli Vegagerðarinnar og Samskipa
var tryggt að Kæmnefnd útboðsmála
fengi tækifæri til að gefa álit sitt áður
en skrifað væri undir samninginn. Það
var því eðlilegt að vegamálastjóri
óskaði eftir áliti Kærunefndar útboðs-
mála þegar stjóm Herjólfs hafði kallað
aftur sína kæm. Vegamálastjóri og
hans starfsmenn höfðu legið undir
árásum og áttu því mikið undir því að
fá staðfest að þeir hefðu unnið eðlilega
að útboðinu. Eins og fram hefur
komið af minni hálfu þá hefði samn-
ingur við Samskip sem lægstbjóðenda
verið í uppnámi hefði Kæmnefndin
gert alvarlegar athugasemdir við út-
boðið. Þegar álit Kæmnefndar útboðs-
mála lá fyrir sendi fjármálaráðuneytið
álitið til Vegagerðarinnar og þá fyrst
var gengið frá undirritun samnings.
Það og fleira virðist hafa farið framhjá
talsmönum Heijólfs í tilraunum sínum
til að ófrægja Vegagerðina og sam-
gönguráðherra. Vegagerðin og ekki
síður samgönguráðherra virðist hafa
átt að þeirra mati að víkja til hliðar
öllum reglum og vönduðum vinnu-
brögðum sem settar em í þágu
ríkissjóðs, þeirra sem gera tilboð og
um leið í þágu þeirra sem eiga að njóta
þjónustu ferjunnar Herjólfs í þessu
tilviki. Til slíkra vinnubragða munu
þeir ágætu menn ekki þvinga mig.
Þegar rekstur Herjólfs og annarra ferja
var settur undir Vegagerðina var
staðfest að ferjuleiðin milli lands og
Eyja væri hluti af þjóðvegakeríinu.
Allri óvissu var eytt hvað það varðaði.
Var það gert í þágu íbúa Vestmanna-
eyja. Bygging vega og brúa er í dag
boðin út. Þjónusta og viðhald vega-
kerfisins er jafnframt í vaxandi mæli
boðin út. Sem dæmi má nefna að öll
þjónusta og viðhald vegakerfisins í
Rangárvallasýslu er veitt af verktaka
sem bauð í það verk sem var áður
unnið af starfsmönnum Vegagerðar-
innar. Þingmenn Suðurlands hafa sætt
sig við þá skipan og hún hefur gefist
vel. Þjónusta Herjólfs er tryggð, og
það er von mín að hún muni jafnvel
aukast. Með hagkvæmu tilboði gefst
tækifæri til þess að kosta aukna og
betri þjónustu, m.a. í Vestmanna-
eyjum. Það er hlutverk mitt og
eindreginn vilji sem samgöngu-
ráðherra að stuðla að því að svo verði.
Skipta þar engu máli árásir einstakra
manna í minn garð. Ég tek þær sumar
auðvitað nærri mér, en verð við þær
að búa eins og hverja aðra ágjöf sem
yfir ríður. Mikilvægast er að stefnan er
rétt og land er fyrir stafni. Gengið
verður hart eftir því að nýr rekstar-
araðili Herjólfs þjóni Eyjamönnum
svo sem best má verða.
Að lokum þetta. Það er von mín að
þessu deilumáli sé lokið. Ríkið hefur
nú eignast öll hlutabréfin í Herjólfi hf.
Var gengið til samninga um kaupin og
verður að telja þann samning hag-
stæðan fyrir Vestmannaeyjabæ. Nutu
Eyjamenn þar sem fyrr afburða
dugnaðar og útsjónarsemi bæjar-
stjórans Guðjóns Hjörleifssonar.
Eins og lesendum Frétta er væntanlega ljóst dró stjóm Heijólfs kæru sína til baka og
ætlaði þannig að koma í veg fyrir að fjallað væri um útboðið af Kærunefnd útboðsmála.
Allt bendir til þess að stjóm Heijólfs hafí bmgðið á það ráð þegar hún áttaði sig á því að
málstaðurinn var vonlaus og ekkert annað uppúr því að hafa en kostnað sem því fylgdi að
hafa lögmenn á launum við að skrifa greinargerð um mál sem fyrirfram var tapað vegna
þess að Vegagerðin hafði farið að öllum reglum og lögum. Hefði þeim verið alvara þá
hefðu þeir látið vinna í málinu í stað þess að kalla eftir fresti fjórum dögum eftir að þeir
höfðu átt að skila inn greinargerð til nefndarinnar. Allur málatilbúnaður og framganga
stjómar Heijólfs gagnvart Vegagerðinni og ráðuneytinu er stjóm og framkvæmdastjóra
Heijólfs hf. til vansa.