Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Side 4
4 Frcttir Fimmtudagur 21. desember 2000 Skata í Blátindi VE Áhugamannafélag um endurbygg- ingu Blátinds VE ætlar að bjóða upp á skötuveislu um borð í bátnum sem stendur uppi í Vesturslippnum. Blátindur var smíðaður í Vest- mannaeyjum 1947 og er dæmi- gerður l'yrir báta sem smíðaðir vom í Eyjum. Ætlunin er að koma honum í sýningarhæft form og er áætlaður kostnaður 16 milljónir. Pysjuævintýri frum- sýnt í Eyjum í dag Pysjuævintýrið, eða Pysjuþjófurinn, mynd Sveins Magnúsar Sveins- sonar sem lekin var í Eyjum í sumar verður fmmsýnd íFélagsheimilinu kl. 18.00 í dag, flmmtudag. Myndin fjallar urn krakka í Vestmannaeyjum og pysjuleit og pysjubjörgun. Myndin hefur verið forsýnd erlendis og starfsfólk Sjón- varpsins hefur einnig litið hana augum. Að sögn leikstjórans fékk myndin jákvæð viðbrögð og ekki síst þóttu bömin standa sig vel. Þcssi sýning er aðeins ætluð þeim sem komu að gerð myndarinnar en þeir em velkomnir á hana. Rannsókn stendur enn yfir Rannsókn á upptökum bmnans í Isfélaginu stendurenn yftr. Ymsar sögusagnir hafa verið í gangi og þeir jafnvel nafngreindir sem ættu að liggja undir grun um íkveikju. Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglu- maður segir að þessi mál hafi verið rannsökuð gaumgæfilega, ekki síst hjá þeim aðilum sem haft verið nafngreindir og í ljós haft konrið að þeir tengist málinu ekki á nokkurn hátt. Ætti það að slá á eitthvað af þeim gróusögunr sem uppi hafa verið. Smygl um borð í Breka Á þriðjudagsmorgun fannst um- talsvert magn af smyglvamingi um borð í Breka VE sem var að koma úr söluferð til Bremerhaven í Þýskalandi. Við leit tollvarða í skipinu fundust 146 lítrar af sterku áfengi, 27 kassar afbjórog 10 þúsund sígarettur. Níu rnanna áhöfn var um borð í þessutn túr og hafa nokkrir þeirra viður- kennt að eiga þennan smyglvarning. Farið varlega um jólin í síðustu viku var rólegt hjá lögreglu ef undan er skilið hið hörmulega slys á föstudagskvöld og svo rann- sóknin á brunanum í Isfélaginu. Lögreglan vill óska bæjarbúum gleðilegra jóla og minnir fólk á að fara gætilega í jólaumferðinni. Næstu Fréttir Um leið og Fréttir óska lesendum sínum og öðmrn landsmönnum gleðilegra jóla viljum við minna á að blaðið kemur næst út á milli jóla og nýárs. Fréttir koma út fimmtudaginn 28. desember en ekki er víst að blaðinu verði dreift l'yrr en eftir hádegi. Þeir sem vilja koma inn aug- lýsingum og greinum hafi samband fyrir hádegi 27. desember. Einkunnagjöf Vísbendingar fyrir árið 1999 - Falleinkunn! Hrapar úr 3. sæti í 24. Einkunn Vestmannaeyjabæjar lækkar úr 6,1 í 3,9 milli ára Tímaritið Vísbending, sem gefið er út af Talnakönnun hf., hefur á undanfórnum árum gert úttekt á rekstri sveitarfélaganna í landinu og gefið þeim einkunnir. Þær einkunnir, fyrir árið 1999, liggja nú fyrir. Skatttekjur sveitar- félaganna jukust um 12,6% á árinu 1999 frá árinu á undan og er sú hækkun að mestu fengin með hækkun útsvars. Á sama tíma hækkuðu útgjöld um 12,1 % og munar þar mest um hækkun til fræðslumála, félagsmála, æskulýðs- og íþróttamála og yfirstjómar. Ákveðnir þættir í rekstri sveitarfélaganna eru vegnir og metnir og getur það mat að sjálfsögðu aldrei orðið fullkomið. Aftur á móti er einkunna- gjöfin nokkurs konar mælikvarði á drauma- sveitarfélagið og þótt hún geft ekki mynd af greiðsluhæfi eða lánshæft hvers sveitarfélags þá gefur hún vísbendingu um hvaða sveitarfélögum ber að skoða sinn gang. Milli ára hafa sveitarfélögin verið að fá verri einkunnir með hverju árinu sem líður. Árið 1997 var meðaleinkunn 4,75, í fyrra 4,53 og í ár er hún komin niður í 4,26. Ástæðan er aukin skuldasöfnun, hærri skattálagning og miklir fólksflutningar. Þá hafa miklar breytingar orðið á listanum yfir þau sveitarfélög sem fá hæstu einkunnir, aðeins Sel- tjarnames sem heldur sínu striki og er ár eftir ár í efsta sæti með langhæstu einkunn. Þannig lítur listinn út yfir þau fyrirtæki sem fá hæstu einkunn: Staða: ‘99 ‘98 Sveitarfélag: Einkunn: 1999 1998 1. 1. Seltjamames 7,5 7,2 2. 8. Sveitarfél. Ölfus 6,1 5,3 3. 13. Grindavíkurkaupst. 5,5 4,9 4. 32. Snæfellsbær 5,2 1,9 5. 9. Bessastaðahreppur 5,2 5,3 6. 7. Garðabær 5,1 5,5 7. 5. Reykjanesbær 5,1 5,7 8. 20. Siglufjarðarkaupst. 5,0 4,1 9. 6. Sveitarfél. Árborg 5,0 5,6 Öll þessi sveitarfélög „ná prófi“ en 23 sveitarfélög ná ekki einkunninni 5,0. Hástökkvarinn er greini- lega Snæfellsbær sem var í neðsta sæti í fyrra en stekkur nú upp í 4. sæti. Og stærsta fallið er hjá Vestmannaeyjabæ. I fyrra var Vestmannaeyjabær í 3. sæti með einkunnina 6,1 en í ár vermir bærinn 24. sæti með einkunnina 3,6 og er það vægast sagt slök útkoma. I hópi sveitarfélaga fyrir neðan Vest- mannaeyjar em t.d. Akranes, Ólafsfjörður, Fjarða- byggð, Isaijörður og Hveragerði sem er í neðsta sæti með einkunnina 2,9. Reykjavík fellur úr 2. sæti í það 13. og einkunn Reykjavíkur fer úr 6,4 í 4,6. Eins og áður segir er þessi einkunnagjöf ekki algildur mælikvarði á ijárhagsstöðu sveitarfélaganna en engu að síður hlýtur að mega draga ákveðnar ályktanir af útkomunni, hvemig svo sem menn vilja túlka hana. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri segist ekki hafa séð þessar niðurstöður. „Ef það er rétt sem þú segir mér þá er því helst til að svara um þessa breytingu að nokkrir þættir hafa mest áhrif á niðurstöðuna, en þeir em: Áfallin lífeyrisskuldbinding umfram höfuðstól var 54,3 milljónum hærri en bókfærð skuldbinding og var því öll færð á eitt rekstrarár þ.e. 1999. Utsvarsálagning var hækkuð og er vægi þess nokkuð í þessari úttekt. Kjarasamningar vegna kennara vom gerðir á árinu, og gerði bæjarstjómin nokkuð vel við sitt fólk, en afturvirkni samninganna v/1998 er öll færð á rekstrarárið 1999. Útsvarstekjur lækkuðu á milli ára og hefur það einnig áhrif á þessa niðurstöðu, ásamt því að miklar framkvæmdir vom á árinu og verða í ár og næsta ár. Það er ljóst að þegar verið er að byggja upp góða þjónustu og tekjur minnka þá hefur það mikil áhrif á einkunnagjöf sem þessa,“ sagði Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri. „Það kemur mér á óvart hve stórt stökk þetta er niður á við,“ segir Ragnar Óskarsson, bæjarfulltrúi Vestmannaeyjalistans. „Þetta höfum við fulltrúar minnihlutans í bæjarstjóm reyndar bent á í langan tíma, að sífellt sé að halla undan fæti í ijármálum bæjarins. Ef þessar aðferðir, sem Vísbending notar, em trúverðugar, þá er þetta alvarlegt ástand en staðfestir það sem við höfum verið að benda á á undanfömum ámm. En það sem mér finnst vera höfuðmálið í þessu, er að bæjaryfirvöld viðurkenni þann vanda sem fyrir hendi er og breyti eftir því. Sé það ekki gert mun halda áfram að síga á verri hlið,“ sagði Ragnar. Nýir aðilar teknir við gluggaverksmiðjunni: Verksmiðjan heitir Gæskur í síðustu viku var formlega haldið upp á eigendaskipti á gluggaverk- smiðunni sem áður hét Gefjun en heitir nú Gæskur. Þá buðu nýju eigendurnir til samsætis í verk- smiðjunni. Að sögn Þorkels Húnbogasonar, eins eigenda, hyggjast þeir halda áfram á sömu braut og var. Hjá Gæsk eru framleiddir gluggar, hurðir, sólhýsi, svalahýsi og skjólveggir, allt úr plasti. Þá er einnig samsetning á gleri og unnt að fá hvers kyns gler án þess að þurfa að bíða langan tíma eftir af- hendingu. Einn starfsmaður verður í fullu starfi til að byija með en Þorkell segist vona að þöif verði fyrir fleiri þegar á líður. „Við emm þegar byrjaðir að mark- aðssetja okkur, til að byrja með á innanbæjarmarkaði en stefnan er einnig tekin upp á land. Lengra hugsum við ekki í bili.“ En hvaðan kemur nafnið Gæskur? „Uppmni þess er austfirskur og hug- myndin er fengin frá kunnum sjó- sóknara og trilluútgerðarmanni í Eyjum sem á ættir sínar að rekja austur á land. Að stofni til er þetta orð hið sama og gæði og því fannst okkur það hæfa vel," sagði Þorkell. NYJU eigendurnir ásamt eigin- konum sínum. Frá vinstri, Elín Hróbjartsdóttir, Þorkell Hún- bogason, Valdimar Guðmunds- son, Matthildur Sveinsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Jóel Ander- sen, Yngvi Sigurgeirsson, Oddný Garðarsdóttir. Hörmulegt slys: Tveir menn drukknuðu Það hörmulega slys varð á föstudagskvöld að tveir rnenn drukknuðu í höfninni. Þeir voru Eiður S. Marinósson Hrauntúni 18 og Guðbjörn Guðmundsson Ás- haniri 75. Þeir fóru saman í bryggjurúnt á föstudagskvöld en daginn eftir höfðu ættingjar samband við lögreglu þar sem farið var að óttast um þá. í höfninni Skömmu síðar fannst bíll þeirra í höfninni, milli Bæjarbryggju og Nausthamarsbryggju, og lík þeirra beggja. Leiðindaveður var þetta kvöld, hvasst og slydda og er talið að ökumaður hafi misst stjóm á bflnum eða beygt of snemma og það sé orsök slyssins. Hinir látnu voru báðir kvæntir og áttu uppkomin böm. Guðbjörn Guðmundsson. Eiður S. Marinósson. Utgefandh Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Veitingaskálanum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. FRETTIR

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.