Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Miðvikudagur21. desember 2000
Jón Ingi Guðiónsson:
r
Okrýndur konungur
skemmtanalífs í Eyjum
-og rekur sína staði af þó nokkurri reisn
Jón Ingi Guðjónsson er í dag
ókrýndur konungu skemmtana-
lífsins í Vestmannaeyjum. Hann
hafði komið víða við áður en hann
skellti sér út í skemmtanahransann.
Fyrir nokkrum árum söðlaði hann
um svo um munaði, seldi trillu og
kvóta og keypti Lundann sem er
blanda af dansstað og pöbb og
hefur undanfarið verið eina skjól
þeirra sem vilja sletta úr klaufunum
um helgar.
Það voru kannski ekki margir sem
höfðu trú á Jóni Inga þegar hann,
kominn á miðjan aldur sagði bless við
sjóinn og brá sér inn fyrir barborðið á
Lundanum. En hann hefur komið á
óvart. Lundinn hefur lítið breyst en á
efri hæðinni hefur hann innréttað
skemmtilegan stað sem hann nefnir
Gaujabar eftir föður sínum sem lést
fyrir um ári í hárri elli. A Gaujabar er
notalegt að sitja og spjalla, laus við
hávaðann í tónlistinni á neðri hæðinni.
Er þama kominn pöbb eins og pöbbar
eiga að vera.
Hann lét ekki staðar numið og með
Steinunni Guðmundsdóttur, sambýlis-
konu sína upp á arminn, keypti hann
veitingastaðinn Fjöruna sem áður hét
HB-pöbb en var upphaflega byggður
af Pálma Lórenssyni veitingamanni og
hét þá Gestgjafinn. Þau kalla staðinn
Prófastinn og var draumur þeirra að
útbúa stóran skemmtistað á vesl-
mannaeyskan mælikvarða. Til þess að
svo gæti orðið keyptu þau hæðina
fyrir ofan og innrétluðu þar tvo sali.
Framkvæmdum er lokið og þau
hafa leyfi fyrir 300 manna skemmti-
stað þar sem í boði eru matur og
dansiball. A aðventunni hafa þau
boðið upp á jólahlaðborð sem hei'ur
verið vel sótt enda matseðillinn sam-
ansettur af mörgum gimilegum
réttum. Þjónusta er líka til fyrir-
myndar, staðurinn snyrtilegur í alla
staði þannig að ekkert er því til
fyrirstöðu að láta sér líða vel á
Prófastinum. Ef eitthvað má finna að
er það helst að fyrirferðamiklar súlur í
aðalsalnum skyggja á sviðið en það
stendur til bóta.
Það verður því að segjast eins og er,
að trillukarlinn, studdur af henni Stein-
unni sinni, er að gera góða hluti í
sínum rekstri og metnaðurinn er meiri
en flestir bjuggust við. Auðvitað má
fínna flottari skemmtistaði en Jón Ingi
er að bjóða upp á snyrtilega staði og
hann hefur fengið gott starfsfólk til
liðs við sig þannig að gleðipinnar
bæjarins ættu flestir að geta fengið
eitthvað við sitt hæfi.
Á Prófastinum er mögulegt að
halda dansleiki með vinsælustu
hljómsveitum landsins, á Lundanum
eru minni spámenn í tónlistinni og þar
má taka snúning ef menn vilja og vilji
menn hafa næði er hægt að bregða sér
upp á efri hæðina á Gaujabar.
Veitingarekstur í Vestmannaeyjum
er kominn í nokkuð fastar skorður,
með frábæra matsölustaði eins og
Lantemu og veitingahús Hótels
Þórshamars og ekki má gleyma Café
María. Og vilji fólk kíkja á bar að
kvöldi til og eða horfa á fótbolta er
hægt að bregða sér á Mánabar. Þá er
rétt að minnast á ráðstefnuhúsið í
Löngulág sem opnar ótal möguleika í
skemmtana - og ráðstefnuhaldi.
Það ætti því að heyra sögunni til að
ekkert sé um að vera eftir kvöldmat í
Vestmannaeyjum eða urn helgar.
JÓNI Inga er ekkert að
vanbúnaði að taka á móti
stórum hópum í mat og á
dansleik en slíkt hefur ekki
verið í boði í
Vestmannaeyjum
undanfarin ár.
Viljum Ijúka haustönn
-segir skólameistari FIV
Verkfall framhaldsskólakennara
hefur nú staðið nokkuð á annan
mánuð en það hófst 7. nóvember sl.
Samkvæmt fréttum af samn-
ingamálum síðustu daga eru jafnvel
taldir möguleikar á að þessi deila
leysist fyrir áramót, sem myndi
væntanlega þýða að kennsla gæti
halist strax upp úr áramótum.
Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skóla-
meistari Framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum, seegir að ekki sé tilbúin
ákveðin dagskrá til að fara eftir þegar
deilan leysist en segist reikna með að
það verði svipað hér og hjá öðrum
framhaldsskólum. Stefnt sé að því að
ljúka haustönninni eftir áramót og
hefja vorönn strax að afloknum haust-
annarprófum.
Ólafur segir að oft hafi það verið
hluti af samkomulagi við kennara
hvernig haga skuli vinnu í fram-
haldinu. T.d. hafi verið kennt á laug-
ardögum og prófatíma þjappað saman
til að vinna tíma. Þá væri Ijóst að
vorönn yrði væntanlega skipulögð á
annan hátt en ráð hefði verið fyrir gert,
en til þess þyrfti að ná samkomulagi
við kennara, t.a.m. um kennslu í
páskaleyfi og fleira. „Svo gefur það
auga leið að vorönnin lengist eitthvað
við þetta," sagði Ólafur en vildi fyrst
sjá fyrir endann á yfirstandandi verk-
falli áður en hann segði meira um
þessa hluti.
Einhverjir þeirra nemenda, sem ljúka
áttu stúdentsprófi fyrir áramót og
hugðu á háskólanám, hafa lent í
vandræðum vegna þessa og fengið
synjun háskóla þar sem ekki væri
lokið tilskildum prófum. Ólafur segir
að sér vitanlega hafi slík tilfelli ekki
komið upp vegna nemenda Fram-
haldsskólans í Vestmannaeyjum.
Menntamálaráðuneytið hefur gefið út
tilkynningu þar sem segir að þessir
nemendur eigi rétt á að fá staðfestingu
um námsframvindu sína hjá skóla-
meisturum. Þá er einnig vitnað í lög
um háskóla þar sem það sé í höndum
stjómenda háskóla að meta hvort
nemendur uppfylli skilyrði um
inngöngu þótt þeir hafi ekki lokið
stúdentsprófi. Heimild sé til þess
samkvæmt lögunum.
Ólafur Hreinn sagðist ekkert ætla að
segja um þessa tilkynningu, hann
reiknaði með að nemendur myndu
ljúka sínum prófum. „Þetta er leyfi-
legt en ég ætla ekki að tjá mig um
þetta mál,“ sagði Ólafur.
Enn fækkar
íbúum
Samkvæmt upplýsingum frá
bæjarskrifstofum hefur íbúum í
Vestmannaeyjum fækkað um
1,2% frá 1. des. 1999 til 1.
desember síðastliðinn.
í fyrra voru íbúar í Eyjum 4583
talsins. Fæðingar á þessu tímabili
vom 60 og aðfíuttir 228 eða samtals
288 nýir íbúar. 29 létust á tímabilinu
pg 313 fluttu héðan, samtals 342.
íbúatalan 1. des. sl. var því 4529,
íbúum hefur fækkað um 54 á
tímabilinu. Athygli vekur að fækk-
unin er minni hjá kvenfólki, þeim
fækkaði aðeins um 9 en körlum um
45.
Enn sígur því á verri hliðina í
íbúaþróun í Vestmannaeyjum og
ljóst að eitthvað verður róttækt að
gerast eigi það markmið að nást að
íbúafjöldinn verði kominn upp í
5200 manns árið 2010, eins og
ályktað var á ráðstefnunni 2010 í
haust.
eyjafrettir.is