Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 26
26
Fimmtudaíiur 21. desember 2000
Samkórinn:
Öðru vísi jólatónleikar
BÁRA Grímsdóttir, stjórnandi Samkórsins, hefur lyft Grcttistaki í tónlistarlífi Eyjanna og voru
tónleikarnir í síðustu viku enn ein sönnun þess.
Árlegir jólatónleikar Samkórs
Vestniannaeyja voru í
Safnaðarheimilinu á
þriðjudagskvöldið í síðustu viku.
Húsfyllir var og greinilegt að gestir
kunnu vel að meta það sem kórinn
hafði fram að færa því Samkórinn
slapp ekki af sviðinu fyrr en hann
lial'ði tckið nokkur aukalög.
Bára Grímsdóttir
tónlistarmaður tluttist til
Vestmannaeyja fyrir nokkrum
árum og var endurreisn Samkórs
Vestmannaeyja meðal hcnnar
fyrstu verka. Síðan hefur
Samkórinn látið til sín taka tvisvar
á ári, á jólatónleikum og
vortónleikum.
Jólatónleikar Samkórsins núna
voru þeir sjöundu undir stjórn
Báru og hefur kórinn vaxið með
hverju verkefni. Á dagskránni var
fjöldi jólasálma, eðli málisins
samkvæmt. Ekki var farin öllu
leyti hefðbundin leið í lagavali og
útsctningum og fyrir vikið voru í
boði svolítið öðru vísi jólatónleikar
sem gerði þessa kvöldstund enn
skemmtilegri. Athyglisverðast var
að heyra Immanúel nú í nátt sem
er að finna í handriti Hymnodia
sacra og er í handriti frá 1772
skráðu í Vestmannaeyjum af séra
Guðmundi Högnasyni.
Annars komu lögin víða að og
komst kórinn vel frá sínu og var
sumt ljómandi vel gert, ekki síst
þegar Helga Jónsdóttir og Hildur
Hauksdóttir sungu Hljóða nótt
eftir Franz Gruber, sem flestir
kannast við sem Heims um ból,
studdar af hinum konunum í
kórnum og gítarundirleik.
Annars er lítið um þessa tónleika
að segja, nema takk fyrir
skcnuntilcga kvöldstund.
Undirleikari var Michelle Gaskell
og einnig Eyvindur Steinarsson.
SÁLARHORNIÐ
Vafasamt
faðemi
„Mér þykir til um það að þegar Sonur Guðs varð maður,
spilaði hann eftir reglunum, hörðum reglum; í smábæjum er
ekki alltaf komið vel ífam við unga drengi sem alast upp með
vafasamt faðerni!"
Ur The Jesus I never knew eftir Philip Yancey, og þýtt af
Hrund Snorradóttur. Ath. allar tilvitnanir úr bókinni.
Jólaboðskapurinn er fagnaðarboð-
skapur, friðarboðskapur. Hann er
sveipaður dýrðarljóma og við sjáum
tyrir okkur mynd af Maríu Mey þar
sem hún meðtekur boðun sína sem
mikla blessun. En erum við ekki
dálitið óraunsæ að halda að svo hafi
verið í raun og vem? Eftirfarandi er
tekið úr bókinni sem vitnað er í hér
að ofan, og gefur okkur ef til vill
raunsærri mynd af atburðum jól-
anna.
„María varð hrædd þegar eng-
illinn birtist henni, og þegar engillinn
tilkynnti henni háleitu orðin um Son
hins Hæsta, á hvers ríki enginn endir
mundi verða, var henni efst í huga
eitthvað mun veraldlegra, „En ég er
hrein mey!“
„í dag, þar sem miljónir ungl-
ingsstúlkna verða ófrískar utan hjón-
abands á ári hverju, hefur skiln-
ingurinn á spádómnum sem María
fékk, misst þá neyð sem hún var í, en
í smáu gyðinglegu samfélagi á fyrstu
öldinni hafa fréttimar, sem engillinn
kom með, ekki alveg verið vel-
komnar. Samkvæmt lögmálinu var
trúlofuð kona, sem varð ófrísk, hór-
kona, og hana átti að grýta til
dauða.“ Skoðum líka annað.
Af hverju fór María í þetta erfiða
ferðalag til Betlehem, komin á
steypirinn?
„Það hefði verið nóg að karlmaður
sem var höfúð heimilisins mætti einn
til rómverska manntalsins. Dró Jósef
ófríska konu sína með sér til
Betlehem til að vemda hana fyrir
smáninni sem fylgdi fæðingunni í
heimaþorpi hennar?“ Sennilega er
það skýringin.
C.S. Lewis sagði eitt sinn: „í dag
þegar ég les atburðina um fæðingu
Jesú, skelf ég við tilhugsunina um að
örlög heimsins hvfldu á herðum
tveggja dreifbýlisunglinga!!“
„Hversu oft endurskoðaði María
orð engilsins þegar Sonur Guðs
sparkaði í legvegg hennar? Hversu
oft efaðist Jósef um hans eigin sam-
skipti við engilinn - bara draumur?-
þegar hann þurfti að þola skömmina
af að búa meðal þorpsbúa sem gátu
augljóslega séð hícama unnustu hans
breytast?
Hvað með ömmur og afa, skyldu
þau hafa útilokað Maríu? Eða boðist
til þess að taka bamið að sér, eins og
þekkist svo víða í dag?
Þungun Maríu, sem var fátæk og
faðemi bamsins óþekkt, hefði í dag
verið réttlætanlegt tilefni til fóstur-
eyðingar; og að hún segist hafa orðið
þunguð af heilögum anda hefði bent
til þarfar fyrir sálfræðihjálp, og gert
málstaðinn um að binda enda á
meðgönguna enn sterkari. Þar af
leiðandi hefði okkar kynslóð, sem
þarf jafnvel meira á frelsara að halda
en nokkur önnur, verið of mann-
úðleg til þess að leyfa honum að
fæðast!“
Ég vona lesandi góður að þessi
lesning hafi verið fróðleikur sem
hjálpar okkur til að nálgast jóla-
boðskapinn á nýjan og þroskandi
hátt. Gleðileg jól!
Jón Kjartansson skrifar:
Bögglingur með lágar bætur
Það má eflaust til sanns vegar færa að tveir ungir
forustumenn, nýteknir við sínum stéttarfélögum,
rati ekki enn um myrkviði laga og reglugerða um
atvinnuleysistryggingar, en hitt var þeim strax
ljóst að hæstu atvinnuleysisbætur, um 61.000 kr, á
mánuði, eru langt undir fátækramörkum.
Strax daginn
eftir elds-
voðann í
ísfélaginu,
og þegar
ljóst var
hversu alvar-
legt áfall at-
vinnulífið í
Vestmanna-
eyjum hafði
hlotið, komu
forystumenn stéttarfélaganna og
forsvarsmenn Isfélagsins saman til
fundar til að kanna á hvem hátt unnt
væri að draga sem mest úr því áfalli
sem starfsfólk fyrirtækisins hafði
orðið fyrir.
Stéttarfélögin ákváðu strax að opna
Alþýðuhúsið og hafa þar einskonar
félagsmiðstöð og samastað fyrir allt
starfsfólk ísfélagsins. En það hefur
haft mjög heillavænleg áhrif á allt
starfsfólkið og dregið úr örvæntingu
og kvíða þess fyrir því óvissuástandi
sem vissulega er framundan hjá því og
aukið á samheldni þess og samstöðu.
Einnig var rætt um á hvem hátt unnt
væri að greiða út bætur til starfsmanna
og hvort hægt væri að gera það í formi
kauptryggingar, en fljótlega kom á
daginn að umtalsverður munur er á
kauptryggingu og hæstu atvinnu-
leysisbótum og fyrirtækið hreinlega
treysti sér ekki til að brúa það bil sjálft
af skiljanlegum ástæðum.
í yfirlýsingu sem kom frá Verka-
lýðsfélögunum og ísfélaginu segir
einfaldlega að í ljós haft komið að
lagaheimild hafi skort á að hið opin-
bera brúaði það bil, en jafnframt er
lýst vonbrigðum með að ekki skyldi
vera unnt að koma þeirri skipan á.
Isfélagið setti strax á stofti sjóð sem
á að bæta úr brýnustu þörf starfs-
manna sem verst em settir og er hann
í vörslu sóknarprestanna í Eyjum.
Það skal tekið sérstaklega fram að
forstöðumaður og starfsfólk Svæðis-
vinnumiðlunar Suðurlands brá fljótt
við og kom út í Eyjar til að aðstoða
okkur heimamenn við skráningu
þeirra starfsamanna sem misstu at-
vinnuna, um 80 manns, en fyrir vom á
atvinnuleysisskrá un 50 manns.
Það kom einnig lljótt í ljós að
samhugur Islendinga er mikill þegar
alvarlegir atburðir gerast og vanda ber
að höndum, ótrúlegur fjöldi fýrirtækja
og einstaklinga hefur á ýmsan hátt
boðið fram aðstoð sína og gefið margt
sem komið hefur sér vel og glatt þá
sem um sárt eiga að binda.
Þess vegna varð ég mjög undrandi
þegar ég fékk að sjá símbréf skrifað á
bréfsefni Vinnumálastofnunar, ódag-
sett, óundirritað og ekki unnt að sjá
hvaðan það er sent, þar sem einhver
virðist, fyrir hönd stjómar Atvinnu-
leysistryggingarsjóðs vera að, annars
vegar senda forsvarsmönnum stéttar-
félaganna og Isfélagsins tóninn fyrir
vanþekkingu þeirra á lögum og
reglum um atvinnuleysisbætur og hins
vegar að frábiðja sér að vera gerður að
blóraböggli og lýsir undmn á fávisku
forsvarsmanna stéttarfélaganna og
fyrirtækisins.
Það má eflaust til sanns vegar færa
að tveir ungir forustumenn nýteknir
við sínum stéttarfélögum rati ekki enn
um myrkviði laga og reglugerða um
atvinnuleysistryggingar, en hitt var
þeim strax ljóst að hæstu atvinnu-
leysisbætur, um 61.000 kr, á mánuði,
em langt undir fátækramörkum og
þeim forsvarsmönnum starfsfólksins
því nokkur vorkunn þótt þau vildu
reyna að hækka greiðslumar um 20 -
30 þúsund á mánuði.
Eftir að hafa fengið að lesa þetta
nafnlausa bréf er ég litlu nær um hvað
er að bögglast fyrir brjóstinu á bréf-
ritara. Ég á bágt með að trúa því að
þeir sem sitja í stjóm Atvinnu-
leysistryggingarsjóðs hafi lagt blessun
sína yfir þessi skrif. ég hefði haldið að
hún væri langt yfir slíkt hafin og hafi
að auki um margt þarfara að hugsa en
að lítilsvirða það fólk sem vinnur
hörðum höndum að því að aðstoða þá
sem um sárt eiga að binda.
Eflaust er skýringin sú að menn þar
á bæ em að frábiðja sig ábyrgð af
þessum skammarlega lágu bótum. En
hver svo sem ber ábyrgð á þessum
skrifum ætti sá að beina hneykslun
sinni annað.
Jón Kjartansson
fyrx’erandi formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja.