Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 28
28
Fréttir
Fimmturiamir?! rip.semher 2000
Stórendurbætur ó Bíóinu
Þetta var orðið nauðsynlegt
-segja Sigurgeir Scheving og Ruth Zohlen sem reka Bíóið
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á bíósalnum í Félags-
heimilinu. Þau Sigurgeir Scheving
og Ruth Zohlen, sem hafa rekið
bíóið undanfarið ár, hafa í haust
staðið í ströngu í þeim endurbótum.
Aðalbreytingamar em þær að skipt
hefur verið um öll sæti í salnum,
rauðbólstruðu trésætin, sem þar voru
áður, voru bæði komin til ára sinna
auk þess sem þau vom orðin úr sér
gengin og léleg. I stað þeirra eru nú
komin sæti úr harðplasti, bólstmð með
dökkbláu áklæði. Þessi sæti eru
reyndar ekki ný af nálinni, vom áður í
Laugarásbíói, en lítið notuð og líta út
sem ný væm. Þá var undirstöðum
undir sætin breytt, ekki er lengur
stallað milli sætaraða heldur sjö gráðu
flái á gólfinu sem er hið sama og er í
flestum bíóhúsum. Nýju sætin eru
rúmbetri en þau gömlu þannig að
betur fer um gesti í þeim en á móti
kemur að sætum fækkaði og nú er 131
sæti í salnum. Hægt verður að bæta
við um tíu sætum ef þarf þannig að
salurinn taki um 140 manns.
„Við greiðum sjálf þann kostnað sem
þetta hefur haft í för með sér,“ segja
þau Sigurgeir og Ruth. „Hann er
kominn í tvær og hálfa milljón en
þetta var nauðsynlegt enda vomm við
ákveðin í að hætta þessum rekstri ef
ekki fengist að gera endurbætur. Fólk
var hreinlega hætt að mæta hingað
vegna þess hvemig salurinn leit út,
þetta var ekki boðlegt lengur.“
Þau Sigurgeir og Ruth segja að um
áramót í fyrra hafi þau keypt rekstur
bíósins af Guðna Hjörleifssyni. Okk-
ur var sagt upp með árs fyrirvara árið
1998 vegna endurskipulagningar en
gerðum þá samning við bæinn sem
hljóðaði upp á að salurinn yrði lag-
færður fyrir maí árið 2000. Við
keyptum reksturinn með því fororði
að gerðar yrðu endurbætur. Ur þeim
varð ekkert og þá var komin upp sú
staða að starfseminni yrði hætt þar
sem okkur fannst þetta ekki boðlegt
lengur. „Við vorum komin á fremsta
hlunn með að flytja til Reykjavíkur,
vorum meira að segja búin að kaupa
hús þar, en hættum svo við, ákváðum
að berjast áfram og seldum húsið í
Reykjavík aftur. Við höfum sett allt
okkar í þetta. Reyndar kemur þessi
útlagði kostnaður okkar upp í leigu á
húsinu en á öðrum stöðum á landinu,
svo sem á Akranesi, í Hafnarfírði og á
Seyðisfirði hafa bæjaryfirvöld veitt
milljónum króna til uppbyggingar á
bíóunum, vegna menningarlegs hlut-
verks þeirra."
Það er ekki aðeins salurinn sem tekið
hefur stakkaskiptum til hins betra.
Sjoppan, sem áður var á ganginum
framan við salinn, hefur nú verið færð
niður í anddyrið. Þar, og á ganginum
inn af anddyrinu, er búið að koma
fyrir sætum og borðum fyrir gesti.
Bærinn stóð straum af flutningi sjopp-
unnar, þar sem hún var teiknuð á
framtíðarendurbætur Félagsheim-
ilisins, en annan kostnað hafa þau
Sigurgeir og Ruth borið. „Það sem
vakti fyrir okkur með þessu var að
ekki yrði einungis um bíóferð að ræða
heldur gæti fólk einnig hist og
spjallað. Það er hægt núna,“ segja þau
Sigurgeirog Ruth.
Þau segjast einnig vilja nýta betur
þessa góðu aðstöðu, t.d. með því að fá
hingað listafólk, bæði af lands-
byggðinni og Reykjavíkursvæðinu.
„Við rekum gistiaðstöðu við hliðina á
bíóinu þannig að kostnaðurinn við
slíkt á ekki að standa í vegi fyrir því.
Fyrsti hópurinn er væntanlegur fljót-
lega eftir áramótin, Embluhópurinn,
sem er skipaður tónlistarfólkinu Didda
fiðlu, K.K., Báru Grímsdóttur og
Kristínu Olafsdóttur. Þau ferðuðust
um vestanhafs í sumar við frábærar
undirtektir."
Bíóið var opnað að nýju um síðustu
mánaðamót með sýningum á mynd-
inni Dancer in the dark, með Björk
Guðmundsdóttur. Þau Ruth og
Sigurgeir segja að aðsókn hafi verið
fremur léleg á þá mynd en síðan hafi
hún farið vaxandi með sýningum á
gamanmyndum. Framundan eru sýn-
ingar á 2. dag jóla og milli jóla og
nýárs á myndinni Islenski draumurinn
og einnig verður þá á dagskrá fjöl-
skyldumyndin Astríkur og Steinríkur.
I dag er svo sýning á mynd Sveins
Magnúsar Sveinssonar, Pysjuævin-
týrinu, sem tekin var í Eyjum í sumar.
Reyndar er þessi sýning lokuð,
einungis fyrir aðstandendur myndar-
innar og þá sem komu að töku hennar
hér í sumar, aðrir verða að bíða betri
Sigurður Markússon skrifar:
Afsökunarbeiðni
til viðskiptavina
KA-Tangans
Kœru viðskiptavinir verslunar, KA
verslana, Tanganum Vestmanna-
eyjum.
Eg vil byrja á því að biðja við-
skiptavini okkar afsökunar, sem hafa
orðið fyrir því að úttektir þeirra á sín
debet-og kredit kort hafa ekki verið
færð með eðlilegum hætti. Um er að
ræða tímabilið frá 17. nóvember til 4.
desember. Uttektir á þessu tímabili í
verslun okkar á Tanganum bárust ekki
á réttum tíma til kortafyrirtækja og
banka. Þrátt fyrir að KA verslanir hafi
samning við fyrirtæki, sem á að
fylgjast náið með að svona lagað geti
ekki gerst, að þá gerðist það og ekkert
hægt annað en að harma það.
Við eigið eftirlit komu síðan þessi
leiðu mistök fram. Þá var óskað eftir
því við bankana og kortafyrirtækin,að
um leið og viðskiptavinum yrðu til-
kynnt þessi mistök, að þeir sem það
vildu, gætu skipt þessum útttektum á
tvö greiðslutímabil en því var hafnað.
Við hjá KÁ verslunum vitum að
þetta hefur komið einhverjum afar illa
en því miður gátum við ekki gert
annað í stöðunni.
Með ósk um gleðileg jól öllum til
handa,
Sigurður Gunnar Markússon
framkvæmdastjóri KA verslana.
SIGURGEIR og Ruth ætla að hefja bíómenningu til vegs og virðingar á ný í Vestmannaeyjum.
tíma með að sjá hana.
„Nú er það undir Vestmanna-
eyingum sjálfum komið hvert fram-
haldið verður á þessum rekstri og
hversu góð þjónustan verður. „Við
höldum því fram að við höfum stigið
fyrsta skrefið í þeirri áætlun sem kynnt
var á ráðstefnunni Eyjar 2010 í haust.
Að fólk hafi hér þá aðstöðu sem jafnist
á við það besta annars staðar og nýti
sér það sem er að finna í þeirra
heimabæ. Ef það gerist og fólk notar
sér þessa góðu aðstöðu í bíóinu, þá
kvíðum við ekki framhaldinu," segja
þau Sigurgeir og Ruth.
Mikil breyting hefur orðið til
hins betra í sal
Félagsheimilisins, nú er hægt að
láta fara vel um sig í sætunum
sem er mikil framför. Það er því
ekkert til fyrirstöðu fyrir
bíótíkla að drífa sig í Bíóið hjá
Sigurgeir og Ruth sem bjóða
upp á nýlegar myndir.
Séra Bára Friðriksdóttir skrifar:
Aðventa í Landakirkju
Það hefur verið mikið um að vera í
Landakirkju á aðventunni. Margir
hópar úr skólunum og leikskólunum
hafa komið í kirkjuna í desember í
jólastund með presti. Þar hefur tendr-
ast hin sanna jólagleði þegar bömin
horfa hugfangin á altaristöfluna af
fæðingu frelsarans og syngja Bjart er
yfir Betlehem.
Við Eyjamenn búum við góðan
kost að hafa þessa einstæðu altaris-
töflu, því myndefnið af Jesúbaminu í
gripahúsi og lotningarfullum vitring-
um er einsdæmi hér á landi.
Við höfum að sumu leyti lifað
harða aðventu hér í Eyjum. Áföll
dunið yfir sem snerta mörg heimili.
Þá hefur verið gott að sjá þann kristna
loga, kærleiksþelið berast á milli
manna þegar hver styður annan. Þar
er kristni arfurinn greyptur inn í vit-
und þjóðarinnar, að leggja öðmm lið
þegar á þarf að halda. Það er á svona
dögum sem við þurfum andlega nær-
ingu aldrei sem fyrr. Vestmanna-
eyingar hafa verið duglegir að sækja
sér þá næringu í kirkjuna sína á
aðventu, í Landakirkju hafa komið
1495 í helgihald í desember, þar af
502 böm úr skólum og leikskólum
með kennurum sínum. Prestamir
hlakka til að halda heilög jól með
söfnuðinum íkirkjunni.
Bið ég ykkur Guðs blessunar á
komandi jólum.
Séra Bára Friðriksdóttir.