Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 30

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 30
30 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 VERÐLAUNAHAFARNIR og aðstandendur keppninnar. Aftari röð f.v. Marta María, Magnea, Sif, Kristmann, Sveinn og Páll. Fremri röð Henný Dröfn, Sara Dís, Eva Dögg og Jón. Skátafélagið Faxi, Fréttir, Tölvun, Vöruval og Heildverslun Karls Krist- manns stóðu fyrirpiparkökuhúsakeppni á aðventunni. Voru húsin til sýnis í Skátaheimilinu um síðustu helgi og á sunnudaginn voru úrslitin kunngjörð. Magnea Traustadóttir har sigur úr býtum. Hún fékk matarkörfu í verðlaun og svo fengu allir þátttakendur konfektkassa. Það var greinilegt að allir höfðu lagt sig fram við piparhúsagerðina. Eru aðstandendur ánœgðir með hvernig til tókst og œtla að efna til annarrar keppni að ári. Á myndinni til hægri er húsið sem fékk 1. verðlaun en að ofan er Marta María með frumlegasta húsið, sem reyndar er ekta skátatjald. Staða Iþróttafélags Vm orðin mjög slæm Enginn öruggur í hópa- leiknum Þó svo að aðeins tvær vikur séu nú eftir af hópaleiknum er ekki hægt að segja að nokkur hópur sé orðinn ömggur um að komast áfram upp úr riðlakeppninni. Reyndar er keppnin enn það jöfn að flestir hópamir eiga enn möguleika á að komast áfram. Um síðustu helgi vom það helst leikimir í 1. deildinni, sem illa gekk að giska á um úrslit. Þó nokkrrir hópar náðu 8 réttum og allir aðrir með 6 eða 7. Þ.e.a.s. allir aðrir en Austurbæjargengið sem aðeins náði 5 réttum og þar með kom að gengissiginu sem allir helstu spekingar vom búnir að spá að hlyti að koma, enda var gengið hjá þeim fyrmrn Austurbæingum búið að vera óvenju gott í síðustu tveimur umferðunum á undan. Þar sem næsta laugardag ber upp á Þorláksmessu, getur verið erfitt fyrir tippara að komast undan ýmsum kvöðum sem á þá em lagðar þann dag og mæta inn í Týsheimili. En ef menn setja smá hvíta lygi ekki fyrir sig er auðvitað hægt að segjast vera að fara í skötuveislu í hádeginu, en mæta í staðinn í kökuveislu (hljómar svipað), inn í Týshemili og horfa um leið á stórleik Liverpool og Arsenal, sem að sjálfsögðu verður sýndur á stómm skerm þar. Að lokum viljum við óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vonandi verður einhver tipparinn heppinn og fær þann stóra svona rétt fyrir jólin. A-riðill: Doddamir 56, Dumb and Dumber 56, Bahamas Boys 55, F.F 52 og Austurbæjargengið 50. B-riðUl: Reynistaður 58, Jó-Jó 58, H.H 57, Bonnie & Clyde 55 og Húskross 53. C-riðill: Pömpiltar 56, Landa- fjandar 56, Yngvi Rauðhaus 55, Vinir Ottós 55 og R.E. 53. D-riðill: Klaki 59, Tveir á toppnum 58, Óléttan 57, Bláa Ladan 57 og Vinstri bræðingur 54. Sigur ogtap Annar flokkur karla lék tvo leiki á einum degi en á sunnudaginn hélt liðið til Akureyrar og var spilað gegn KA og Þór. Fyrri leikur liðsins var gegn Þór og vom strákarnir að leika gegn liði af svipuðum styrkleika og IBV enda var leikurinn jafn og spennandi allann tímann. Lokatölur urðu 25- 26, eins marks sigur ÍBV sem er jafnframt fyrsti sigur liðsins í vetur og lyfti ÍBV sér upp um eitt sæti með honum, IBV er í tólfta og næstneðsta sæti með fjögur stig eftir tíu leiki. Markahæstir vom þeir Sigurður Ari (12), Davíð (5) og Sindri Ólafs. (4). Seinni leikurinn var gegn KA og tapaðist hins vegar nokkuð stórt, 30-18 vom lokatölur leiksins en KA menn eru í toppbaráttu deildarinnar og þvf Ijóst fyrir leikinn að róðurinn yrði IBV þungur. Markahæstir vom þeir Davíð (5), Sigþór (5) og Sindri Ólafs. (4). íþróttafélag Vestmannaeyja, sem tekur þátt í 1. deildinni í körfu- knattleik, virðist vera á niðurleið. Eftir ágætis byrjun í haust hefur leikur liðsins hægt og sígandi legið niður á við á meðan önnur lið bæta sig og tvö töp gegn nágranna- liðunum um helgina eru síst til þess að bæta stöðu liðsins í deildinni. ÍV lék gegn Selfossi og Þór ffá Þor- lákshöfn en tapaði báðum leikjunum og situr því á botni deildarinnar með 4 stig eftir tíu leiki. Fyrri leikur liðsins á föstudaginn var gegn Selfossi, en Selfyssingar hafa verið á hraðri uppleið eftir frekar slaka byrjun. Leikurinn var hin besta skemmtun enda var hann jafn og spennandi allan tímann. I hálfleik munaði aðeins þremur stigum á liðunum en staðan var 40-37 fyrir heimamenn. Fyrir síðasta leik- hluta höfðu leikmenn IV hins vegar snúið leiknum sér í vil og leiddu með einu stigi 71-72 en heimamenn vom sterkari á endasprettinum og tryggðu sér fimm stiga sigur 100-95. Stigahæstir ÍV: Halldór Halldórsson 25, Ásgeir Skúlason 18, Ragnar Steinsen 14. Seinni leikur liðsins var á laug- ardaginn, var nú leikið gegn Þór og fór leikurinn fram í Þorlákshöfn en fyrir leikinn var liðið tveimur stigum fyrir ofan ÍV og því mikið í húfi. ÍV spilaði hins vegar illa í leiknum og tapaði stórt, 112-77. Stigahæstir ÍV: Ragnar Steinsen 22 stig, Ásgeir Skúlason 15 og Eggert Baldvinsson 13.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.