Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Qupperneq 12

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Qupperneq 12
12 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 í jólaösinni er ýmislegt að gerast Jólamarkaður sem mætti standa lengur Jólamarkaður handverksfólks hefur skapað sér fastan sess á aðventunni. Fyrst var hann haldinn í Alþýðuhúsinu en nú var hann í Sælahúsinu sem er hæfilega stórt fyrir slíkar uppákomur. A jólamarkaðnum kemur fram fólk sem vinnur heima hjá sér að framleiðslu ýmissa muna sem margir hverjir eru fallegir og bera vott um gott handbragð. Margt var þarna um skrautmuni sem sameina fegurð og nytsemi og það er einmitt þar sem handverkið rís hæst. Það hefur sýnt sig að bæjarbúar kunna að meta þetta framtak handverksfólksins og fjölmenna þeir á markaðinn. Til að auka aðdráttarafl enn frekar er boðið upp tískusýningar og svo skemmtilega vildi til að krakkarnir sem tóku þátt í fatahönnunarkeppni grunnskólanna voru að sýna fötin sem þau þau fóru með í keppnina. Ef eitthvað er hægt að finna að, er það helst að markaðurinn mætti standa lengur, eina viku eða tvær helgar. SVANA var með ýmislegt smálegt í boði. KRAKKARNIR í Barnaskólanum og Hamarsskóia gerðu góða ferð í hönnunarkeppni grunnskólanna, komu heim með tvenn silfurverðlaun og var stærsti hópurinn frá Eyjum. Gestir á jólamarkaðnum fengu tækifæri til að berja fötin augum og krakkarnir fengu gott klapp fyrir. Ásta seldi hefðbundnar hannyrðavörur. ERLA nuddari bauð upp á ýmis smyrsl á kroppinn. Jólafjör Á hverri jólafóstu slær starfsfólk Hraunbúða upp veislu fyrir íbúana og er þá glatt á lijalla. Veislumatur er á borðum og svo eru fengnir gestir utan úr bæ til að troða upp með skemmtiatriði. Auk þess lætur starfsfólkið ekki sitt eftir liggja. ÁRMANN Ragnar, sem hér er með Guðmundi félaga sínum, lék nokkur lög á klarinett. ó Hraunbúðum ALLA í Borgarhól, Anna á Grund, Magga og Anna voru mættar í sínu tínasta pússi. SAMA mátti segja um Siggu á Geithálsi, Friðriku og Halldóru. Apótek Vestmannaeyja: Jólaútlit konunnar Hanna María á Apótekinu fékk Önnu sem rekur fyrirtækið Anna og útlitið, til Eyja til að leiðbeina konum í að skerpa á eiginlegri fegurð þeirra. Þetta fór fram á Veitingahúsi Hótels Þórshamars þar sem líka var boðið upp á jólahlaðborð frá Grími í Veisluþjónustunni. Kvöldið tókst vel en Hanna María sagði að að ósekju hefðu fleiri mátt mæta. HANNA María og Anna og útlitið ásamt aðstoðarkonu. MILLI20 og 30 konur mættu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.