Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Síða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2000, Síða 18
18 Fréttir Fimmtudagur 21. desember 2000 allt saman. En eftir talsverðar bolla- leggingar ákváðum við að gefast ekki upp og halda okkar striki þótt vissulega væri þetta talsvert meira en reiknað hefði verið með. Þótti alveg rosalega flott Það átti að afhenda bátinn í ágúst og Oskar heimtaði að ég kæmi með sér út. Ég spurði hann hvort hann væri ekki með öllum mjalla. Þarna áttum við orðið sex böm, Óskar Þór sem fæddist 10. nóvember 1951, Leó sem fæddist 4. ágúst 1953 og Þómnni sem fæddist 11. október 1954. Svo fæddist Ingibergur síðar eða 27. ágúst 1963. „Þú kemur bara krökkunum fyrir og kóngur á Leó. Auðvitað þurfti að hafa fyrir þessu en gæfan lék við okkur og ég held að okkur hafí aldrei dreymt um þá vel- gengni sem við nutum. Óskar var duglegur í sinni sjósókn og umfram allt var hann gætinn sjómaður." Ég var oft hrædd Hvemig myndirþú lýsa líft sjómannskonunrtar? „Lífsbaráttan var erfið á þessum fyrstu ámm í okkar búskap. Nú var ég alin upp á útgerðarheimili og hafði alltaf fylgst vel með. Oft var ég hrædd þegar menn vom á sjó í vondum veðmm á litlum bátum. Þegar við bjuggum austur á Gjábakka var ná- ÞESSI mynd er tekin við afhendingu Þórunnar Sveinsdóttur VE 401 árið 1971. endaði sem eldiviður fyrir eldsmiðju suður við Straumsvík.“ Við áttum Nönnu í fimm ár en þá langaði Óskar að fá sér stærri bát. Það var erfitt um þær mundir og varð að sækja um leyfi til slíks auk þess sem nær ekkert framboð var af bátum. Þá sá Óskar bátinn Leó VE í Reykjavík. Þorvaldur Guðjónsson, frá Sandfelli, átti hann en báturinn hafði verið í nokkurri niðurníðslu um skeið. En það varð úr að Óskar keypti bátinn og kom honum í stand. Um haustið fóm þeir á reknet og lönduðu í Sandgerði. Við höfðum engan síma þegar þetta var, höfðum sótt um það en ekki fengið, ég held að það hafi verið skortur á línum eða eitthvað þannig, því að síma fengum við ekki fyrr en 1953. Það var því erfitt fyrir eigin- konur sjómannanna að fylgjast með þeim þegar þeir voru að veiðum annars staðar. En ég var með útvarpið stillt á bátabylgjuna og á hverjum morgni kl. 7.45, þegar þeir voru á reknetunum, heyrði ég þegar Óskar kallaði í land og tilkynnti hvenær hann yrði inni og hver aflinn væri. Þannig gátum við fylgst með. Þetta þætti nú varla boðlegt í dag, á tímum tölvu, tækni og farsíma en þetta gerðum við okkur bara ánægð með enda þekktist ekki annað þá. Verðið á bátnum hækkaði um 55 prósent Svo var enn aukið við útgerðina? „Þó að viðbrigðin væm mikil að fara af Nönnu litlu yfir á Leó þá langaði Óskar í stærri og betur búinn bát. Hann sótti um leyfi árið 1958 en það gekk ekkert of vel. Þá var verið að smíða bæði togskip og vertíðarbáta í Austur-Þýskalandi og Óskar ákvað að láta á það reyna hvort hann gæti ekki fengið einn þeirra. Hann fór niður í alþingi, hitti þar að máli Eystein Jónsson, ráðherra, sagðist vera með gamlan bát og langaði til að endumýja hann. Eysteinn spurði hvaða bát hann ætti og svo fór að hann kannaðist við bátinn sem hafði verið gerður út fyrir austan og hét þá Týr. „Þú ætlar þó ekki að segja mér að þetta sé hann gamli Týr, smíðaður 1916?“ spurði Eysteinn. Jú, Óskar hélt nú að þetta væri sá bátur og eftir það gekk þetta, Eysteinn gekk í málið og leyfið fékkst. Þeir voru saman í þessum kaupum, Óskar og fósturfaðir hans, Sigmar Guðmundsson, og skrifað var undir samningana á fimmtugsafmæli Sig- mars. Þessir bátar voru á mjög góðu verði, áttu að kosta eina og hálfa milljón og við vomm búin að reikna út að þetta gæti allt gengið. En vorið 1959 kom heldur betur skellur. Þá var tilkynnt að 55% hækkun yrði á verði skipanna með svonefndu yfirfærslu- gjaldi. Óskari leist ekkert á blikuna og var um tíma að hugsa um að hætta við VIÐ Óskar ferðuðumst mikið saman. Þarna erum við uppáklædd í Flórída árið 1979. kemur með,“ sagði Óskar og það var gert. I Reykjavík fómm við að skoða eitt af 250 tonna togskipunum sem smíðuð vom í þessu átaki í Austur- Þýskalandi, Pétur Thorsteinsson BA. Ég man alltaf hvað okkur fannst þetta allt vera fiott um borð, sérstaklega að allt skyldi vera þiljað með harðplast- plötum úr viðarlíki, þetta þótti alveg rosalega flott um borð í fiskiskipi. Við fómm með Gullfossi til Dan- merkur og ókum svo til Þýskalands. Skrokkar skipanna vom smíðaðir inni í miðju landi, í Brandenburg, rétt sunnan við Berlín og síðan fleytt niður til Stralsund þar sem innréttingar og önnur vinna fór fram. Þegar við komum út var verið að ganga frá inn- réttingum í bátinn og Óskar fylgdist með því verki. Þá komst hann að því að ætlunin var að spara fíniríið og stóð til að þilja með dúk í stað platna. Þá barði minn maður í borðið og neitaði. Siggi Þórðar var með honum þarna úti, því verið var að smíða Eyjaberg fyrir hann, og hann tók þátt í þessum mótmælum. Og þeir gáfu sig ekki. Á endanum vom bæði skipin þiljuð með sams konar harðplasti og var í Pétri Thorsteinssyni og meira að segja vom settar fiauelsgardínur fyrir glugga. Þetta þótti rosaflott þegar Leó kom heim. En það dróst með afhendinguna og mér var farið að líða hálfilla, börnin vom að koma heim úr sveitinni og skólinn að byrja hjá þeim. Það endaði með því að ég sagði Óskari að ég ætlaði heim og gerði það. Hingað kom ég þann 11. október og mikið var ég fegin að vera komin heim. Nýi Leó kom svo til Eyja 20. des- ember og ég man hvað Óskari fannst mikill lúxus að vera á svona stómm bát. Árin sem fýlgdu á eftir voru líka alveg frábær, líklega besm árin hans til sjós enda varð hann þrívegis afla- lægðin við sjóinn svo mikil að maður gat fylgst með út um gluggann þegar bátamir vom að koma að og stundum var ég kvíðin þá. Það segir sig nokkuð sjálft að það var fullt starf hjá sjómönnum að stunda sjóinn og vinnudagurinn oft langur. Það kom því í hlut annarra að annast það sem gera þurfti í landi og því þurftu konumar að sjá um þá þætti. Ég sá um fjármálin hjá okkur og daglegan rekstur heimilisins rétt eins og aðrar konur sem áttu sína menn á sjónum. Svo kom líka fyrir að maður þurfti að taka beinan þátt í útgerðinni, t.d. kom fyrir að Óskar hringdi í land og bað mig að fara niður í beituskúr og biðja strákana að bæta við fjómm bjóðum. Þá vissi ég að hann var að fiska þótt hann segði það ekki beinum orðum. Strákamir okkar vom heldur ekki háir í loftinu þegar þeir byrjuðu að vinna við þetta með okkur. Fjöl- skyldan var öll í þessu og þannig var þetta á mörgum fleiri heimilum. Á sumardaginn fyrsta var það alltaf fastur liður hjá mér að fara með tertur og annað gott með kaffinu um borð. Það var fastur liður að fagna sumar- komunni á þann hátt um borð. Og alveg frá því að við hófum útgerð 1947 héldum við alltaf vertíðarlok heima hjá okkur. buðum skips- höfninni heim og síðan á ball á eftir. Sigurlaug, tengdadóttir mín, tók þennan sið upp eftir að þau tóku við útgerðinni og hefúr farist það myndar- lega úr hendi eins og annað.“ En áfram var haldið að stœkka skipakostinn ? ,Já, Þómnn Sveinsdóttir var smíðuð í Stálvík og kom hingað 1971. Sigurjón tók við henni en Óskar var áfram um skeið með Leó. Svo urðu mikil umskipti í útgerðinni þegar nýja Þómnn Sveinsdóttir kom. Og árið 1977 stofnuðum við svo fiskvinnsluna Nöf ásamt þeim Sigurjóni og Gísla Sigmars. Upp úr því hætti Óskar til sjós og fór að vinna við fyrirtækið í landi og hélt því áfram meðan heilsa og kraftar entust.“ Þá sá ég hvað gott var að búa í Vestmannaeyjum Hvaða áhrif hafði gosið á ykkar líf? „Það átti að munstra á Leó þann 23. janúar 1973, allt klárt til að byrja vertíð og ég man að komin var fimm manna fjölskylda í kjallarann á 111- ugagötunni, sjómenn sem vom ráðnir á Leó. Við fómm um borð í Leó og vomm með síðustu bátum sem fóm úr höfn hér á gosnóttina. Mig minnir að það hafi verið um 70 manns um borð. I Þorlákshöfn var okkur boðið í kaffi upp í Meitilinn en ég vildi ekki þiggja það heldur sagði mínu fólki að við skyldum koma beint til Reykjavíkur. Þar áttum við íbúð sem beið okkar, við höfðum átt hana í tvö ár og nú kom LENGI vel voru netateinarnir þurrkaðir eftir hverja vertíð. Hér er Oskar með sonarsoninn Gylfa Sigurjónsson. Myndin tekin 1971.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.