Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 01.11.2001, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 01.11.2001, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur I. nóvember2001 íslandsbanki kynnti kosti lífeyrissparnaðar íslandsbanki stóö fyrir fundi í Eyjum sl. Jjriðjudagskvöld þar sem Gunnar Baldvinsson og Daníel Arason frá íslandsbanka Eignar- stýringu kynntu kosti lífeyrissparnaðar Siguröur Friðriksson hjá Islandsbanka var nokkuö ánægður með fundinn, þó hann liefði viljað sjá mun fleiri mæta og kynna sér þessi mál. A milli 35 - 40 manns hefðu mætt, sem væri allt of fátt rniðað við mikilvægi þess sem rætt var um. Hann sagði talsverða umræðu hafa orðið um ýmsar sparnaðarleiðir sem hægt er að velja um, og kosti viðbótar- lífeyrissparnaðar ylír höfuð. „Fólk gerir sér ekki almennilega grein fyrir hvað liggur að baki sparnaöinum. I raun er þetta hluti af kjarasamningi, þar sem hluti af launahækkun sem launþegi samdi um, var í því l'ornii að reiknaö er með að launþegi leggi fyrir 2% - 4% í viðbótarsparnað, og fái þá á móti 2,4% mótframlag frá atvinnurekanda og ríkinu. Ef launafólk er ekki með viðbótar- sparnaö þá er það ekki að fá þau 2,4% sem það á rétt á og þar af leiöandi einungis að nýta sér hluta af umsömdum kjörum. Flestir voru að semja um 6% -7% launahækkun frá síðustu áramótum, en hefðu eins getað samiö um 8% - 9% launahækkun, og sleppt því að senija um viðbótarsparnaðinn, en þetta var leið sem var valinn og samþykkt af launþegunum, og því er það heldur skrýtið að fólk vilji ekki ná sem mestu út úr sínum kjarasamningi,“ sagði Sigurður að lokum. Myndin er frá fundinum. X KRAKKARNIR við búrið góða. Kakadú gaf Rauða- gerði nýlt fiskabúr Á leikskólanum Rauðagerði hefur verið fiskabúr undanfarin ár, búrið var gamalt en hægt var að kaupa allt það sem í það vantaði. í síðustu viku fóru starfsmenn Rauðagerðis í gæludýrabúðina Kakadú til að kaupa varabluti en eigendum verslunarinnar leist ekkert á búrið og sögðust ætla að athuga málið. Skömmu seinna mættu þær með nýtt og glæsilegt fiskabúr með öllu tilheyrandi. Börn og starfsfólk rauðu deildarinnar vilja koma á framfæri þakklæti til eigenda Kakadú fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Vel heppn- að villi- bráðar- kvöld Villibráðarkvöldið á laugar- dagskvöldið á Prófastinum brást ekki hragöluukuni gestanna. Þar voru í boði um 30 réttir sem upprunnir voru bæði af sjó og landi. Jón Ingi Guðjónsson og Steinunn Guðmundsdóttir, sem eiga og reka Prófastinn, höfðu fengið fríðan hóp kokka í lið með sér og fór Hjálmar Baldursson fyrir liópnum sem skipaöur var þeini Aðalsteini Baldurssyni, Heiöari Hinrikssyni og Kristjáni Karlssyni. Víða hafði verið leitað fanga, skarfurinn bafði verið skotinn við Bjarnarey, hvalkjötið að norðan, hreindýrakjötið og selkjötið að austan, kanínukjiitið frá Danmörku og sverðfiskurinn sunnan úr höfum. Salöt og sósur af ýmsum gerðum fylgdu með og útkoman var í einu orði sagt frábær. Þetta er annað árið sem Jón Ingi og Steinunn efna til villibráðarkvölds og hafa þau bæði tekist Ijómandi vel. Eru þeir 70 gestir sem mættu á iaugar- daginn örugglega farnir að hlakka til næsta villibráöarkvölds að ári. VEISLUBORÐIÐ svignaði undan kræsingunum sem smökkuðust mjög vel. V. ■ ' * V- STEINUNN og Jón Ingi gáfu sér tíma til að srnakka á kræsingunum og sitja hér til borðs með Sigurlaugu Harðardóttur og Dagbjörtu Emilsdóttur. Keikó verður til sýnis um helgar Undanfarin tvö ár hafa Keikó- samtökin leitast við að halda hvalnum sem mest frá samningi við mannfólk. Því hefur verið erfitt fyrir Vestmanna- eyinga og ferðamenn að fá að fylgjast með þjálfun hans. Til að gera áhugasömum kleift að fylgjast með, hafa þjálfarar Keikó ákveðið að þjálfa hann kl. 14.00. laugardaga og sunnudaga næstu helgar. Ef veður leyfir ætti að vera auðvelt að fylgjast með lrá útsýnis- pallinum eða Skansfjöru. Þar sem bátaumferð í námunda við aðsetur Keikós getur truflað þjálfun, biðjum við fólk að fylgjast frekar með frá landi en sjó. Við vonum að þetta gleðji þá fjöl- mörgu bæjarbúa sem hafa veitt okkur aðstoð, stuðning og hvatningu undan- farin þrjú ;ír. Fréttatilkynning

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.