Fréttir - Eyjafréttir - 01.11.2001, Blaðsíða 20
Enn
G L l_
há rsrryr'tis'tO'Fa
SÍMI 481 3é>€>€>
MINNSTA bjórhátíð í heimi var haldin um síðustu helgi á Mánabar þar sem þeir
Tryggvi Már og Sigfús Gunnar ráða ríkjum. Aðsókn var góð og ekki dugðu
minna en líterskönnur og sjálfir voru þeir klæddir upp á bæheimsku.
Það er helst að frétta af bátum
Vinnslustöðvarinnar að Sig-
hvatur VE landaði tæpum 500
tonnum af sfld sl. sunnudag.
Gæði sfldarinnar voru góð og var
hún flökuð og heilfryst. Sighvatur
er kominn aftur á miðinn og Kap
VE fer til síldveiða næstu daga.
Tregt hefur verið í netin undanfarið
en kropp^ hjá trollbátunum. Jón
Vídalín ÁR landaði fullfermi af
karfa sl. mánudag.
Paparnir með afmælisveislu í Höllinni
Frétta- og nuglýsingasimi: 481-3310 * Fax 481-1293
Um þessar mundir á hljómsveitin Papar
fimmtán ára afmæii og munu þeir halda
upp á tímamótin með stórtónleikum og
dansleik í HöIIinni á laugardagskvöldið.
Hljómsveitin Papar er upphaflega stofnuð í
Vestmannaeyjum og því er vel við hæfi að
minnast tímamótanna hér auk þess sem Páll
Eyjólfsson, einn stofnandi hljómsveitarinnar,
segir aðstöðuna í Höllinni þá bestu á landinu.
Páll segir að allir söngvarar sveitarinnar í
gegnum tíðina muni mæta á svæðið. Fyrsti
söngvarinn var Hermann Ingi Hermannsson
eldri og þegar hann hætti tók sonur hans og
alnafni við. Ingvar Jónsson var síðar söngvari
sveitarinnar og sinnti því lengst þeirra félaga.
Núverandi söngvari sveitarinnar heitir
Matthías Matthíasson en hann var áður söng-
vari Reggea on ice.
„Eins ætlar hann Ósvaldur Freyr að taka
nokkur lög með okkur en eini fyrrverandi
meðlimur Papanna sem ekki kemst er James
Olsen, en hann er nú búsettur í Danmörku og
er upptekinn við spilamennsku," sagði Páll.
Papar hafa gefið út sjö diska á þessum
fimmtán árum og ætlunin er að þeir fari yfir
ferilinn um kvöldið fyrir matargesti.
„Við munum spila sitt lítið af hverjum diski,
svona eftir minni,“ sagði Páll og bætti við að
hann vonaðist til að sjá sem flesta í Höllinni
næsta laugardagskvöld og lofaði hann góðu
skemmtiprógrammi og fjörugum dansleik á
eftir.
Vikutilboð 1. - 7. nóv,
Always dömubiiuli
328 kr.-áaur 358-
Homepride sósur
249 kr. - áður 288-
Fary
uppþvottarlögur,
0,5 Itr.
218 kr.-
áður 235-
Mr. Propre hreinsiklútar
489 kr. - áður 478-
Hershey
Rally
súkkulaði, 4 stk.
199 kr.-
áður 348■
SS. beikonbollur 848 kr/kg. - áður 898-
SS. hakkbollur í súrsætri sósu 549kr/kg. - áður 648-
Hershey
ís sýróp
365 kr.-
áður 438-
Pampers blautklútar
398 kr. • áður 448-
Oscar
lílauta-, grænmetis- og fiskikraftur 199 kr. - áður 238-
Lambakraftur 234 kr. - áður 278-
Anda-, kalkún- og villibráðarkraftur 287 kt. • áður 332-
Rútuferðir - Bus TOURS
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
® 4814909/896 6810 • Fax 481 1927
Vilhjálmur Bergsteinsson
SMBÍFiMMíÍLL
«r 481-2943
* 897-1178
Dalabúið fór á eina
og hálfa milljón
Eins og fram hefur komið í
Fréttum hefur Dulubúið verið selt
til Breiðabakka sf.
Nokkur umræða hefur farið fram í
bænum um það hvers vegna Dala-
búið var ekki auglýst áður en það
var selt. Guðjón Hjörleifsson bæjar-
stjóri sagði í viðtali að enginn hefði
sýnt áhuga á að kaupa Dalabúið
fyrr en nú. „Þeir sem keyptu búið
hafa haft afnot af húsnæðinu undan-
farið eitt og hálft ár og þegar lagt í
það ákveðin kostnað," sagði
Guðjón.
Hann sagði að Dalabúið hefði ver-
ið selt á eina og hálfa milljón og
m.a. voru sett þau skilyrði fyrir söl-
unni að kaupendur lagfæri þak og
rennur innan árs og einnig hafa
eigendur sett fram hugmyndir um
menningarlega þjónustu í húsinu.
„Það var mat tæknideildar að miðað
við viðhaldsþörf annarra stofnanna
þá yrðu ekki farið í endurbætur á
húsnæði Dalabúsins á næstunni. Ef
ekkert yrði að gert þá myndi bygg-
ingarnar grotna niður. Mér finnst,
miðað við ástand hússins, gott ef
einhverjir vilja laga það til og það
nýtist þá fyrir hesta og hestafólk."
Sighvatur Bjarnason
með 500 tonn af síld