Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Síða 14
14 Frcttir Fimmtudagur 30. janúar 2003 Þingmenn funduðu með stéttarfélögunum, bæjarstjórn og fulltrúum atvinnulífsins: Kalla eftir frumkvæði heimamanna Það kom greinilega fram á fundi stéttarfélaga með þing- mönnum Suðurlandskjör- dæmis fyrir skömmu að ekki verður lengur vikist undan því að taka á þeim vanda sem við blasir í atvinnumálum bæjarins. I síðustu viku voru tæplega 160 manns atvinnu- lausir sem er umtalsvert meira en í upphafi árs 2001 þegar bærinn var enn í sárum eftir Isfélagsbrunann í byrjun desember 2000. Auk þess hefur fólki fækkað sem gerir stöðuna enn alvarlegri og er nú svo komið að farið er að hrikta í ýmsum undir- stöðum samfélagsins. Frummælendur voru Bald- vin Kristjánsson skólameistari, Arnar Hjaltalín formaður Dríf- anda-stéttarfélags, Stefán Jónsson verkstjóri í Skipa- lyftunni, Guðrún Erlingsdóttir formaður Verslunarmanna- félags Vestmannaeyja og bæjarfulltrúi V-listans, Ingi Sigurðsson bæjarstjóri, Elías Björnsson formaður Sjó- mannafélagsins Jötuns og Valmundur Valmundsson stjórnarmaður í Jötni. Þing- mennirnir voru Drífa Hjart- ardóttir, Kjartan Olafsson, Lúðvík Bergvinsson, Guðni Agústsson landbúnaðarráð- herra og Isólfur Gylfi Pálma- son. Margrét Frímannsdóttir mætti ekki vegna veikinda. Veruleg fækkun nemenda Baldvin, skólameistari Framhalds- skólans, sagði að fækkun íbúa segði til sín í færri nemendum við skólann. „Við erum að sjá verulega fækkun nemenda á síðustu sex til sjö árum,“ sagði Baldvin. „Þá voru yfir 300 nemendur í dagskóla en fyrir þann tíma voru þeir á bilinu 270 til 280. í haust voru nemendur 235 en nú erum við að leggja upp með 210 nem- endur.“ Baldvin sagði líka að samsetning útskriftamema styngi í augu því verknám erá miklu undanhaldi. „Arið 1988 útskrifaðist 31 nemandi og af þeim voru sjö stúdentar en af starfs- menntunarbrautum 24, 1993 eru stúdentar 13 og aðrir tólf og í haust útskrifuðum við 23 stúdenta en átta af öðmm brautum. Þetta sýnir stöðugt meiri sókn í bóknámið. Fyrir vikið er erfiðara að halda út starfsnámi og eru dæmi þess að nemar hafi gefist upp á biðinni og farið annað. Eina verk- námsbrautin sem við höfum rekið með nokkurri reisn er vélstjómar- brautin og á nokkurra ára fresti erum við með nemendur á rafiðnaðar- brautum." Um ástæður fyrir minni áhuga á verknámi sagði hann að atvinnu- möguleikar skiptu þar máli. Atvinnumál í uppnámi Amar Hjaltalín sagði ekki ofsögum sagt að atvinnumál í Vestmannaeyjum séu í uppnámi. Hann kom inn á framtak Gunnlaugs Ólafssonar og Haraldar Gíslasonar sem höfðu for- göngu um að tryggja heimamönnum tryggan meirihluta í Vinnslustöðinni. Amar tók þetta sem dæmi um það jákvæða sem er að gerast í atvinnu- málum. Þá nefndi hann að efla þyrfti ferðaþjónustu sem þýddi fleiri störf en hann sagði að fargjöld Herjólfs stæðu ferðaiðnaði fyrir þrifum. „Verðlagn- ingin setur almennt launafólk í fjötra. Þetta þarf að laga og fá fieiri ferðir með Herjólfi." Arnar sagðist gera þá kröfu að frystitogarar komi með allt sem um borð kemur í land. A meðan svo er ekki hefur sjóvinnslan ákveðið forskot á landvinnsluna. „Togararnir geta líka hent öllu sem ekki passar í vinnsluna og er kvótinn reiknaður út frá afurðum sem þeir koma með að landi á meðan frystihúsin verða að miða kvótann við það magn af fiski sem þau fá í hús. Krafan hlýtur að vera sú að báðir sitji við sama borð og vigti eins. Héðan er líka sent mikið af fiski með gámum sem er mikil blóðtaka fyrir fisk- verkafólk. Það þarf að setja reglur sem jafna aðstöðu fólks og þið stjómar- þingmenn, hafið valdið til þess,“ sagði Amar. Þurfum ný upptökumannvirki Stefán Jónsson tók í sama streng og sagði ekki bjart yfir jámiðnaði í Vest- mannaeyjum. Við erum ekki þekktir fyrir svartsýni né neikvæðni en í dag fmnst okkur sem hér búum ekki vera bjart yllr atvinnumálum okkar," sagði Stefán og nefndi að stærri upptöku- mannvirki fyrir skip væm skilyrði þess að Skipalyftan gæti dafnað. „Nýlega kom út skýrsla um sam- keppnisaðstöðu skipaiðnaðar á íslandi. Hluti af þessari skýrslu olli mér miklum vonbrigðum. Þar segir að veruleg umframafkastageta sé í upp- töku skipa og þjónustu við þau, ef miðað er við innlenda llotann. Ljóst sé að markaðurinn sé frekar að dragast saman miðað við fjölda skipa og ljóst að ekki eru forsendur fyrir ríkis- styrktum aðgerðum eins og koma fram í hafnaráætlun til að endurbæta og auka afkastagetu í greininni. Þar þyrfti frekar að vinna að sameiningu og bættri nýtingu þeirra mannvirkja sem eftir stæðu,“ sagði Stefán og vitnaði í fyrmefnda skýrslu. Búið var að santþykkja 60% fram- lag á hafnaráætlun til þurrkvíar í Vestmannaeyjum. Hefur það verið mikið kappsmál Skipalyftunnar að það gangi eftir en beðið er eftir úr- skurði um hvort styrkurinn standist gagnvart EES-samningnum. „Ég vil benda á að staðsetningar okkar vegna eigum við erfitt um sameiningu þar sem við búum á eyju. Einnig finnst okkur erfitt að horfa á eftir verkefnum í burlu þar sem við erum ekki samkeppnisfærir smæðar okkar vegna. En ágætu þingmenn, þá koma þessar tvær spumingar sem mig langar að leggja fyrir ykkur. Sú fyrri er: Hvað hafið þið gert á síðasta kjörtímabili í því að efia atvinnu í Vestmannaeyjum, hvort sem það er að blása nýju atvinnulífi inn í bæjar- félagið eða auka það sem fyrir var? Síðari spumingin er: Hvernig ætlið þið að beita ykkur á nýju kjörtímabili, með það í huga að hér verði aftur blómlegt atvinnuh'f?“ spurði Stefán. Samanþjappað vald Guðrún Erlingsdóttir sagði að að- gangur að Ijármagni skipti atvinnulífið ntiklu og framboðið væri nóg. „Við þurfum ekki að kvarta undan því að eiga ekki menn í stjórnum þessarar sjóða. En getur það verið að það hái okkur að sömu menn sitja í fieiri en einni stjóm og taka sömu afstöðu til erindanna í fieiri en einum sjóði. Sem dæmi má nefna að stjórnarformaður Fjárfestingarfélagsins situr í stjóm Líf- eyrissjóðsins og eignarhaldsfélagsins. Stjórnarformaður Eignarhaldsfélags- ins er einnig Sparisjóðsstjóri auk þess sem stjórnarformaður Nýsköpunar- sjóðs atvinnulífsins situr einnig í stjórn Lífeyrissjóðsins auk Spari- sjóðsins," sagði Guðrún og hélt áfram „Landsbyggðinni blæðir á meðan að stóm byggðakjamamir stækka stækka. Er komið kvótakerfi á fjármagn eins og í sjávarútvegi sem kemur í veg fyrir nýliðun í atvinnulífinu?" spurði Guð- rún. Fiskistofa til Eyja? Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri, lagði áherslu á mikilvægi samgangna fyrir Vestmannaeyjar og á síðustu mánuð- um hefði örlað á viðleitni til úrbóta á því sviði. Um atvinnumálin sagði Ingi að hjá Svæðisskrifstofu atvinnumála í Vest- mannaeyjum hefði Vilborg Þorsteins- dóttir, fyrrum fomiaður Verkakvenna- félagsins Snótar, verið ráðin í hálft starf til að leita að störfum fyrir þá sem atvinnulausir eru. Hann kom líka inn á fækkun íbúa og sagði að nú væri svo komið að Framhaldsskólinn og Sjúkrahúsið ættu undir högg að sækja. Ingi ítrekaði þá skoðun sína að göng væru sá kostur sem kæmi Vestmannaeyingum best og þau kæmu Suðurlandsundirlendinu líka til góða. Einna athyglisverðast hjá Inga var sú hugmynd hans að flytja Fiskistofu til Vestmannaeyja, því þar ætli hún best heima. „Þá þarf að efla Rannsóknasetrið og þær stofnanir sem þar em. Þar er fullt af tækifæmm," LÚÐVÍK í ræðustól. sagði Ingi. Að sögn Inga voru um miðjan nóvember 90 aðkomusjómenn á Eyja- flotanum en sú tala hefði náðst eitthvað niður um áramótin. Þá sagði hann að menn ættu ekki að einblína á að fá hingað ný fyrirtæki, það þyrfti líka að hlúa að þeim sem fyrir em. Kreppir að sjómönnum Elías Bjömsson, formaður sjómanna- félagsins Jötuns, sagði nýtt að nú væm 35 sjómenn í Vestmannaeyjum skráðir atvinnulausir. „Það er orðið kreppt að þegar þeir láta skrá sig atvinnulausa," sagði Elías og nefndi að of margir aðkomumenn væm á bátum frá Eyjum. „Kvótinn verður 20 ára í maí nk. þegar lög um hann voru sett,“ sagði Elías. „Ég spáði strax árið 1984 að framsal á veiðiheimildum myndi leiða yfir okkur ógæfu og að þeir ríku yrðu ríkari og þeir fátækari yrðu fátækari. Því miður hefur þetta ræst.“ Elías minntist líka á Guðna Olafsson VE, íjölveiðiskip sem kom nýtt til Vestmannaeyja á síðasta ári en hefur verið leigt til Nýja Sjálands. „Bátum hefur aldrei fækkað eins mikið og á síðasta ári. Það er ekki bara að sjómönnum fækki, því margfeldis- áhrif leiða til þess að störfum fækkar í iðnaði og þjónustu og ég tala nú ekki urn þær tekjur sem bærinn verður af,“ sagði Elías. í djúpri lægð Vilborg Þorsteinsdóttir sagði að tala atvinnulausra væri að nálgast 160, voru 155 miðvikudaginn í síðustu viku. „Við emm tilbúin að vinna í fiski en þá vinnu er ekki að fá í dag,“ sagði Vilborg og bætti við. „Okkur stendur til boða að sækja um styrki til hinna ýmsu verkefna hjá Atvinnuleysissjóði. Það á bæði við bæinn og fyrirtækin sem geta sótt um að fá starfsfólk til ákveðins verks sem sjóðurinn borgar að hálfu. Það hefur lítið verið sótt um þessa styrki í Vestmannaeyjum," sagði Vilborg. Kvótasetning leiddi af sér hörmungar Valmundur Valmundsson, sjómaður og stjómarmaður í Jötni, sagðist fullyrða að ef ekki hefði verið settur kvóti á keilu, löngu, skötusel og kolmunna á síðasta ári væri enginn sjómaður í Vestmannaeyjum atvinnu- laus. Hann fullyrti að útgerð í Grindavík réði yfir helmingi alls keilukvótans sem væri ein afleiðingin af þessari lagasetningu Arna Mathie- sen, sjávarútvegsráðherra. Munu lifa af fiski Þá var komið að þingmönnum og var Drífa Hjartardóttir (D) fyrst í pontu. Hún sagði að Vestmannaeyingar lifðu á fiski og svo verði áfram. Drífa sagðist vera í bakhópi sem styddi Atvinnuþróunarsjóð kvenna sem því miður væri of lítið notaður. „Því miður hafa fáar sótt um og ég skora á konur að sækja um í sjóðinn en það má ekki vera í samkeppni við það sem fyrir er. Konur hafa verið að stofna fyrirtæki fyrir lítið fé og eru að vinna úr jurtum og fiski. Ef konur í Vest- mannaeyjum hafa áhuga geta þær rætt við mig,“ sagði Drífa. Hún sagðist hafa rætt við sjávarút- vegsráðherra um stöðu mála í kjör- dæminu og kvað hún hann hafa tilkynnt sér að von væri á reglugerð sem ætti að geta létt undir. „Það er orðið alvarlegt mál þegar atvinnuleysi er orðið þetta mikið í Vestmanna- eyjum sem er stærsta löndunarhöfn landsins." Drífa, sem á sæti í stjóm Byggða- stofnunar. sagðist hafa komið þar að verkefnum tengdum Vestmanna- eyjum og nefndi í því sambandi Islensk matvæli og Karató ehf. sem á og rekur Höllina. „Um daginn var samþykkt að forstjóri Byggða- stofnunar ræddi við Þróunarfélagið um verkefni sem gætu skapað störf í Vestmannaeyjum," sagði Drífa og kallaði lika eftir fmmkvæði Eyja- manna. „I Noregi hitti ég konu sem vann á sjúkrahúsi í litlum bæ sem hafði sérhæft sig í endurhæfingu fólks sem hafði gengist undir aðgerðir á dýmm sjúkrahúsum. Þetta er dæmi um hvað hægt er að gera ef vilji er fyrir hendi."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.