Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.2003, Blaðsíða 16
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293
Enn
hársnyrtistofa
sfr-ii -481 3e>e,€>
LTOTERHK
VEITINGAHUS
BÁRUSTÍG 11
SÍMI 481 3393
Góður matur. Góð þjónusta.
Kostar minna en þú heldur.
Sendibílaakstur - innanbæjar
Vilhjálmur B i 9 481-2943 j 9 897-1178 ergsteii JEwairs* nsson ISA8ÍLL
DRAUMUR um bikar rættist ekki á laugardaginn.
Bls. 14 og 15.
Ingi Sigurðsson lagði fram
greinargerð sína vegna fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2003 á fundi
bæjarstjórnar á fimmtudag. Var
þetta í fyrsta skipti sem áætlunin
var gerð í samræmi við ný lög og
reglur um bókhald og reikn-
ingsskil sveitarfélaga sem tóku
gildi um áramótin 2001 og 2002.
Seinni umræða um áætlunina
verður á bæjarstjórnarfundi
klukkan 18.00 í dag.
Samkvæmt áætluninni verða
heildartekjurbæjarsjóðs 1690 millj-
ónir króna og heildargjöld 1663
milljónir. Ekki er búist við frekari
lántöku bæjarsjóðs á árinu en á síð-
asta ári jukust lántökur bæjarsjóðs
um 46 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun 2003 lögð fram:
Rekstrarafgangur
upp á 27 milljónir
Stærstu málaflokkarnir eru
fræðslu- og uppeldismál sem taka
til sín 540 milljónir, hækka um
4,6% á milli ára. Æskulýðs- og
íþróttamál 82,7 milljónir króna og
hækka um 3,7% á milli ára.
Gert er ráð fyrir 11 milljónum
króna í endurnýjun þaks á eldri
íþróttasal Iþróttamiðstöðvarinnar
ásamt eftirstöðvum á framkvæmd-
um í sundlaugarsal. 10 milljónir
eiga að fara í standsetningu efri
hæðar viðbyggingar við Týsheimili
vegna flutnings IBV úr Þórsheimili.
5 milljónir eiga að fara í viðhald í
Barnaskólanum og 5 milljónir
króna í viðhald á leikskólanum
Rauðagerði.
L
Fundur um nýtt aðalskipulag á laugardaginn
Nýtt aðalskipulag Vestmannaeyja
2002 til 2014 er í vinnslu og ný-
lega var lögð fram tillaga tvö sem
nú er til kynningar, bæði í Ráð-
húsinu, í húsi Bæjarveitna og á
Netinu. Auglýst hefur verið eftir
athugasemdum við tillöguna og
hugmyndum um breytingar. Til
að hnykkja á því enn frekar er
boðað til fundar í Höllinni kl.
10.00 á laugardagsmorguninn
þar sem fólki gefst kostur á að
koma að undirbúningi aðalskipu-
lagsins.
I viðtali við Fréttir sögðu Helgi
Bragason, formaður skipulags- og
bygginganefndar og Páll Zóphón-
íasson, tæknifræðingur sem unnið
hefur að skipulaginu, að tillaga tvö
sem nú liggur frammi sé þeirra leið
til að gefa bæjarbúum frekari kost á
að koma að tillögugerðinni. „Það er
ekki skylt fara þessa leið en við
lítum á þetta sem umræðutillögu
sem búið er að safna saman í hug-
myndum og tillögum að aðalskipu-
lagi. Eru sumar þeirra kontnar til
framkvæmda,“ sagði Páll.
Hann hefur farið í gegnum allar
fundargerðir bæjarstjórnar og
nefnda á vegum bæjarins frá 1988
til dagsins í dag í leit að efni þar
sem skipulag kemur við sögu.
„Fyrsta tillagan fór aðeins fyrir
samstarfshóp sem komið var á fót
en nú erum við að stíga næsta skref
með tillögu tvö sem fjallað hefur
verið um í fjölmiðlum og er að
finna á vefsíðu bæjarins, sem er
vestmannaeyjar.is,“ sagði Hqlgi
sem hvetur fólk til að kynna sér
tillögurnar. „Við fögnum öllum
tillögum og hugmyndum því skipu-
lag skiptir okkur öll máli,“ bætti
Helgi við.
„I aðalskipulagi kristallast áform
bæjarstjórnar til allra þátta í bæjar-
lífinu næstu árin. Þó að það komi til
hennar kasta að taka lokaákvörðun
erum við með þessu að halda op-
inni lýðræðislegri leið fyrir alla
bæjarbúa að koma að verkinu,"
sagði Páll.
Þeir vænta mikils af fundinum á
laugardaginn þar sem skipt verður
upp í fimm hópa. Þeir eru samgöng-
ur og byggð, sem tekur yfir höfnina,
flug, vegi og stíga. Opin svæði sem
taka yfir friðuð svæði, svæði til
sérstakra nota, skógrækt og beiti-
land, íþróttasvæði, skotsvæði.
mótocrosssvæði, tjaldsvæði og leik-
svæði í byggð. Ferðamál sem tekur
til samgangna, minjaverndar, að-
stöðu fyrir ferðamenn og menn-
ingarhús. Veitur og virkjanir en í
þeim málaflokki er að finna sorp-
mál, efnisnám og jarðborun. Loks
eru það svo atvinnumál sem taka á
miðbænum. hafnarsvæðinu og
iðnaðarhverfi.
„Fundurinn byrjar klukkan 10.00 á
laugardaginn og hvetjum við sem
flesta til að mæta til að kynna sér
þessi mikilvægu mál,“ sagði Helgi.
Þegar þessari vinnu lýkur og tillag-
an hefur farið í gegnum kerfið hefur
aðalskipulagið reglugerðarígildi og
þá gæti orðið of seint að breyta hlut-
unum,“ sagði Páll.
01 i !(:[•! >1
27. feb. - 5. mars
Kötlu sproutu rjómi
Mömmu sultur 400 gr
Mömmu rabb sulta 500 gr
Oetker bollumix
Konsum suðusúkkulaði 200 gr
Völu kókosbollur 4 stk
Ora Fiskibollur 1/1 ds
Ora Fiskibollur Vi ds
Ora Smóar fiskibollur
Pepsi /Appelsín í dós 0,5 Itr
Bacon
Rófur
Kötlu gular baunir
Jack Rabbit gular baunir
Búrfells Saltkjöt
SS saltkjöt blandað
SS saltkjöt valið
Svína gúllas
Folalda gúllas
Verð Nú
kr/kg
kr/kg
kr/kg
kr/kg
kr/kg
kr/kg
kr/kg