Harmoníkan - 01.02.1988, Blaðsíða 6
A ð tjaldabaki rétt fyrir tónleikana, Sigur-
bergur Baldursson, sem aðstoðaði
Gunnara'sviðinu, GunnarK. Guðmunds-
son, Elsa Haraldsdóttir og Jón I. Júlíus-
son.
óvart því ávallt hafði verið talað um
húsfylli árlega. En hvers vegna komu
svo fáir? Var miðaverð of hátt (1000
kr. ísl.). í það minnsta virtust norð-
mennirnir ekki vera lausmjólka á aur-
ana sína þegar þeim var boðið uppá
hljómplötur og snældur meðan á
dansleiknum stóð sem hófst eftir tón-
leikana. F.H.U.R. og Gunnar K.
Guðmundsson buðu uppá fyrrnefnda
hluti, en þeir sem fjárfestu í slíkum
minningum frá íslandi voru fáir, því
miður.
Annars voru tónleikarnir vel fallnir
til að láta sér líða vel, þeir voru fjöl-
breyttir, maður heyrði gömludans-
ana, Frosini tónlist, leikna á harmon-
iku af hinum 13 og hálfsárs gamla
Odd Gunnar Kallevik frá Noregi sem
unnið hafði Frosini keppni unglinga á
síðustu Títanohátið þrátt fyrir að að-
eins voru 25 mánuðir síðan hann hóf
að leika á harmoníku, efnilegur ungur
Ævintýralegt atriði Gunnars K. Guð-
mundssonar, að leika á harmoníkuna í
öfugri stöðu, hér leikur hann Bjórtunnu-
polka og Jóhannes Péturson sér um
bassaundirleik. (Mynd Ingrid Hlíðberg).
maður það. Aulis Jauhola frá Finn-
landi lék og slíka tónlist á klassískan
gitar, skemmtilegt og óvenjulegt.
Tvöfalda harmoníkan var vel kynnt,
og það af ungu fólki, m.a. Arnstein
Fjerdinngren, sem margir kannast við
hér heima. Fulltrúi ungu kynslóðar-
innar frá íslandi var Jakob Yngvason
aðeins 16 ára gamall, með frábæran
einleik. Óvenjulegasta atriðið var er
Gunnar K. Guðmundsson lék, það er
nógu ótrúlegt að leika án handar, og
hvað þá með þvi að snúa hljóðfærinu
við, örugglega einstakt. Síðastan en
ekki sistan vil ég nefna okkar virta
harmoníkuleikara Braga Hlíðberg,
hvílíkt öryggi, hreint ótrúlegt.
Tónlistarhátíðinni (trekkspillgalla
eins og norðmenn nefndu hana) í
Grieghöllinni lauk með því að einleik-
arar og fl. er komu fram fengu af-
hentan minjagrip.
Eftir stórskemmtilega nótt heim á
hóteli að þessu loknu, fóru nokkrir úr
hópnum heim á sunnudeginum vegna
vinnu sinnar, en þeir sem eftir voru á
þriðjudeginum eins og áætlað var.
Eftirtaldir tónlistarmenn komu
fram fyrir íslands hönd:
Nú gætu lesendur spurt, kom ekki
eitthvað spaugilegt fyrir eða óvænt í
ferðinni? Svo vill nú reyndar til að
ýmislegt smálegt gerðist. Einhverju
sinni fórum við nokkur saman út að
borða á nálægu veitingahúsi við hót-
elið, það var fjölbreyttur matseðill og
sitthvað var pantað á diskana, margir
fengu sér pútu (kjúkling) og vissi
maður ekki annað en hún flygi fljótt
Gunnar K. Guðmundsson. Myndin er
tekin í matsal hótel Bryggen sunnudaginn
I. nóv. 1987, d einskonar skemmtifundi
sem haldinn vard vegum norðmannanna.
Hljómsveit félags harmoníkuunnenda Reykjavík Stjórnandi Þorvaldur Björnsson.
Jón Ingi Júlíusson harmoníka Dagskrá
Jóhannes Pétursson Þingvallamars eftir
Sigurgeir Björgvinsson Hartvig Kristoffersen
Jakob Yngvason Syrpa af lögum eftir
Gunnar A. Guðmundsson Þorleifur Finnsson Sigfús Halldórsson
Elsa Haraldsdóttir Syrpa af rússneskum
Kristín Kalmannsdóttir bassaharmoníka Þorsteinn Þorsteinsson gítar Þórir Magnússon trommur Einleikarar voru þessir: Bragi Hlið- berg, Gunnar K. Guðmundsson og Jakob Ingvason. þjóðlögum
6