Harmoníkan - 01.02.1988, Page 17

Harmoníkan - 01.02.1988, Page 17
Félagar úr harmoníkufélagi Vingáker. Þrír ungir menn leika saman — fyrir miðju er AndersLarsson 15 ára, en hann er með betri harmoníkuleikurum í dag. UlvAdolfssonsiturá harmoníkutöskunni og ték með tilþrifum um nóttina. Merkileg harmoníka Forsíðumyndin er af Árna Sveinssyni frá Skagafirði. Árni var síðustu æviár sín búsettur í Keflavík en þessa mynd sendi hann vini sínum Jónasi Guð- jónssyni, Kirkjuvegi 18, Keflavík og aftan á myndina er ritað m.a. ,,Hér sérðu mynd af mér og kœrustunni sem erað verða 45 ára en karl minnað verða 63. Þykir mona mín undraverð- ur forngripur því enginn hefur séð harmoníku með lúðri nema þessa. Svo slœr hún allar aðrar harmoníkur útað hœgt er enn í dag að spila á hana gömludansana. 18/11 1955 Árni Sveinsson Vallargötu29A Keflavík. “ í dag er ekki vitað um afdrif þessarar merkilegu harmoníku, en allir sem kynnu að geta gefið einhverjar upp- lýsingar um hvar hún er niðurkomin núna eru beðnir um að láta okkur vita strax. Undirritaður minnist þess að hafa í æsku séð Árna spila á ,,monu“ en eftirminnilegast frá því var að horfa á hann festa lúðrinum á har- moníkuna. Eins og fyrr segir, erum við að leita að þessu hljóðfæri og höf- um grenslast eftir nikkunni hjá ætt- ingjum Árna og eins i þjóðmynjasafni íslands, en án árangurs. Þó er mögu- leiki á að hún sé í einhverju byggða- safni eða hjá einstaklingi — við von- um hið besta. Þorsteinn Þorsteinsson 17

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.