Harmoníkan - 01.02.1988, Blaðsíða 22

Harmoníkan - 01.02.1988, Blaðsíða 22
Frá liðnum árum — Hannes Arason, Akureyri Lýður Sigtryggsson Hartvig Kristofíersen Harmonikutónleikar Lýður Stgtryggíson Lýður Sigtryggsson er ættaður frá Akureyri. Hann fór utan fyrir átta árum síðan, til tónlist- arnáms, fyrst til Danmerkur og síðan til Noregs. Þar hefur hann sex síðustu árin stundað harmoníkunám hjá Hartvig Kristoffersen, jafnframt því sem hann hefur stundað hljóðfræði- nám við Tónlistarskólann í Oslo. Var aðalkennari hans þar skólastjórinn Tryggve Lindeman. Lýður hefur víða spilað á skemmtistöðum í Noregi og haldið sérstæða tónleika og hlotið mikið lof fyrir þá. En í marsmánuði síðastl. hlotnaðist honum sá heiður að verða „Harmonikumeistari Norð- urlanda 1946“, því að þá spilaði hann í Stokkhólmi á samkeppnismóti harmonikuleikara, sem þar fór fram. Voru þar þátttakendur, auk hans, harmonikusnillingar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, og voru honum dæmd fyrstu verðlaun. Önnur verðlaun fékk Finni og þriðju verðlaun Svíi. Slík mót sem þetta voru algeng fyrir stríð, en hafa ekki verið haldin síðan 1939. Þetta er í fyrsta sinn sem íslendingur tekur þátt í þeim. Sænsk blöð, sem hingað hafa borizt, ljúka miklu lofsorði á Lýð, bæði fyrir smekklega meðferð á við- fangsefnum og fyrir mikla tækni. Er því mikill heiður fyrir Lýð Sigtryggs- son að hann skuli hafa orðið har- monikumeistari Norðurlanda. Hartvig Kristoffersen kennari Lýðs Sigtryggssonar, er þekktur norskur harmonikusnilling- ur, sem síðustu tuttugu árin hefur haldið óteljandi tónleika í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, ýmist sem ein- leikari, með hljómsveitum eða í félagi við sænska harmonikuleikarann Vilgot Malmquist. Munu eflaust margir harmonikuaðdáendur hér kannast við þá. Eftir blaðaummælum að dæma, er hann í röð allra fremstu harmonikuleikara Norðmanna, en þeir eiga, eins og kunnugt er, mikið af slíkum snillingum. Kristoffersen hef- ur spilað inn á margar grammófón- plötur, einnig oft i útvarp, auk þess er hann hljómsveitarstjóri. EFNISSIÍRÁ: Dúellar PIETRO DCIRO: The Accordionisl, inarz EDVARD GRIEG: Úr „Pélri Gaul" Harlviq KrisloHersen. einleikur PAUL: Najooloon Insl Chnrge W. A. MOZART: Menuell í D-dúr FR. SUPPÉ: Morgunn, miðdagur og kvöld í Vín, íorleikur Lýður Siglryggsson. einleikur Jassþállur T. BERG: Sprellemann — Novelly fox Carry me back lo old Wirginny (Amerískt þjóðlag í Swing úlselningu) Harlvig Krisloffersen. einleikur Frá góðum, gömlum límum Lýður Siglryggsson. einleikur V. MONTI: Czardas J. RADILLA: EI Relicario R. FROSINI:: Tilbrigði yfir „Carnival í Venedig" Dúellar G. VERDI: Kvarlell úr „Rigolello" P. DEIRO: Beauliful Days, vals V. ARIENZO: Lido. mazurka H. KRISTOFFERSSEN: „bingvallamarz" (lileinkaður Lýð Siglryggssyni) MINNING Hafsteinn Ólafsson Hafsteinn Ólafsson harmoníku- leikari lést 19. nóvember 1987, 72 ára að aldri. Hann er fæddur í Reykjavík 31. ágúst 1915, og bjó þar alla tíð. Síðastliðin 30 ár starfaði Hafsteinn sem eftirlitsmaður hjá Mjólkursam- sölunni í Reykjavík. Hann hefur unn- ið mikið að málefnum harmonikunn- ar gegnum árin og er eftir því sem ég best veit fyrsti formaður harmoníku- félags í landinu, „Félags Harmoníku- leikara Reykjavík.“ Það félag er stofnað 22. nóvember 1936, stofn- fundurinn var haldinn á hótel Heklu. Framhaldsstofnfundur var haldinn 25. nóv. en á þriðja stofnfundinum 6. desember ’36 er Hafsteinn kosinn for- maður. Þegar F.H.U.R. er hleypt af stokkunum 1977 er hann einn af stofnendunum. Hafsteinn lék mikið á dansleikjum fyrrum, m.a. á Hreða- vatni og þá með Ársæli Kjartanssyni, einnig í útvarp. Bragi Hlíðberg getur þess í fyrsta tbl. Harmoníkunnar að Hafsteinn hafi verið aðal hvatamaður þess að hann komst í tíma hjá Sigurði Briem, í nótnalestri. Nú siðustu 50 ár- in átti Hafsteinn sömu harmoníkuna sem er af gerðinni Excelsior, m. hnöppum. Eftirlifandi kona Hafsteins er Steinunn Sigurbjörnsdóttir sem fædd er í Keflavík, þeim varð 9 barna auð- ið. Við viljum senda öllum aðstand- endum, okkar bestu kveðjur. 777 sölu Excelsior hnappaharmoníka, model 921 m. sœnskum gripum, lítið notuð. Upplýsingar í síma 97-71530. Bjarni H. Bjarnason. 22

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.