Harmoníkan - 28.02.1992, Blaðsíða 3

Harmoníkan - 28.02.1992, Blaðsíða 3
Útgefendur gg áb.menn: Hilmar Hjartarson, Ásbúð 17, Garðabæ, sími 91-656385. Þorsteinn Þorsteinsson, Torfufelli 17, 111 Reykjavík, sími 91-71673. Forsíðumyndin: Það er Jóna Einarsdóttir sem nú prýðir forsíðu blaðsins. Hún hefur unnað harmoní- kunni frá bamœsku og lagt metnað sinti við nám í harmoníkuleik ásamt að halda uppi merki hennar á fjölmennum veitingastöðum. Jóna heillar áheyrendur með leik sínum, kvenlegum yndisþokka og Ijúflegri framkomu þar sem hún spilar. Myndin er tekin á Kringlukránni 8.febrúar 1992. Blaðið kemur út þrisvar á ári. í október, endaðan febrúar og í endað- an maí. Gíróreikningur nr. 61090-9. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.300 1/2 síða kr. 6.200 1/4 síða kr. 3.900 1/8 síða kr. 2.300 Smáauglýsingar (1,5 dálksentimetri) kr. 650 + kr. 120 fyrir hvem auka dálksentimetra. Berum höfuðið hátt Frá því að fyrstu harmoníkufélögin voru stofnuð hefur styrkur þeirra aukist með ári hverju með tilheyrandi starf- semi. Þó hefur það komið fyrir að félag hefur sofnað, hætt allri starfsemi og ekki svarað bréfum sem því hefur borist. Því miður eru til félög í dag sem ekki svara bréfum eða sýna neitt lífsmark. það er spuming hvort við eigum að hafa þau á- fram á skrá í blaðinu á bls. 2, það fer eftir gangi mála. Sennilega fer það eftir áhuga og krafti formanns hvers félags hversu lífleg starfsemin er hverju sinni, en þá þurfa almennir félagar einnig að vera vakandi. Árið fyrir landsmót S.Í.H.U. er kraftur og áhugi meðal félaga og æfingar teknar alvarlega því allir ætla að standa sig á mótinu. Síðan er eins og áhuginn dofni og nánast eins og fólk leggist í dvala. Það er því greinilegt að eitthvað þarf að vera frammundan sem heldur áhuganum vakandi, ferðalög, tónleikar, útvarps- þáttur eða eitthvað í þá áttina. Nokkur félög hafa fyrir reglu að koma saman einu sinni í mánuði með einhverskonar skemmtifundi, þar sem félagar koma fram og spila, einn eða fleiri í einu, en þar sem áheyrendur em að uppistöðu þeir sömu vill áhuginn sljóvgast. Hvað er til ráða - hvað er hægt að gera til svo almennur áhugi eflist á ný? Sem dæmi um hvað er hægt að gera, er skemmtun í enda vetrarstarfsins með þátttöku frá öðru félagi. Það hefur áður verið minnst á þetta í blaðinu, en hefur ekki verið reynt ennþá. Skemmtunin gæti falist í tónleikum með þátttöku tveggja eða fleiri harmoníkufélag þar sem hvert félag flytti nokkur lög en síðan almennur dansleikur á eftir. Allir vilja standa sig og vera sínu félagi til sóma. Þar af leiðandi skapast ákveðinn metn- aður milli félaga, en einnig sterkari tengsl fólks sem áhuga hafa á harm- oníkunni. Margir em oft beðnir að spila við hin ýmsu tækifæri og oftar en ekki er verið Hilmar Hjartarson að spila fyrir félög aldraðra eða við tækifæri sem snúa að þeim málefnum. Þama myndast kjörið tækifæri fyrir fólk að koma fram og sjaldan þarf að kvarta undan áheyrendum sem em nær undan- tekningalaust ákaflega þakklátir. Einnig kemur það fyrir að harm- oníkuleikarar eru beðnir að spila við önnur tækifæri og er það einnig af hinu góða. Þetta lítur þá út fyrir að vera allt saman gott og blessað - eða hvað?Oft þegar er verið að fá harmoníkuleikara til að spila er ætlast til að þeir (þær) geri þetta ánægjunar vegna, eða greiðsla sem í boði er, tvö til tvöþúsund og fimm- hundruð krónur, sem dugar stundum rétt fyrir leigubifreið fram og til baka.Það þykir ódýr „popphljómsveit" í dag sem fæst til að spila á dansleik fyrir minna en tífalda þessa upphæð á mann. Þessu þurfum við að breyta, þú og ég. Þetta er ekki spuming um hvað þú ert að spila lengi umrætt kvöld. Ef þú ert feng- inn til að spila á einum stað, getur þú ekki ráðið þig á annan stað sama kvöldið. Það gildir því einu hvort það eru einn eða fjórir klukkutímar sem þú spilar um kvöldið. Margskonar þjónusta er rekin af Þorsteinn Þorsteinsson ýmsum stéttum iðnaðarmanna og þykir sjálfsagt að greiða fjórar klukkustundir útseldrar vinnu, fyrir útkallið. Bemm höfuðið hátt og látum ekki traðka á harmoníkutónlist og um leið okkur sjálfum. Við skulum muna að góð harmoníka kostar sitt alveg eins og önn- ur hljóðfæri og það fer ekki síður tími í að ná árangri á hana. Harmoníkan er ekki þriðjaflokks hljóðfæri og því á- stæðulaust að vera með einhverja minnimáttarkennd. Það getur þó reynst erfitt ef einhverjir taka þetta ekki til greina, heldur fara út og suður, í tíma og ótíma fyrir litla sem enga þóknun. Þeir sem slíkt gera valda því að næsti maður á erfitt með að taka eitthvað sanngjamt fyrir hið sama. Nú ber ekki að skilja það svo, ég hafi eitthvað á móti því að gera smá greiða eða vinna góðverk, því fer fjarri. Munum að til eru menn sem hafa stóran hluta tekna sinna af hljóðfæraleik og á það jafnt við um harmoníkuleikara sem aðra. Ef margir aðrir eru tilbúnir að ganga í þeirra verk fyrir lægra gjald þá er illa farið. Þ.Þ. 3

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.