Harmoníkan - 28.02.1992, Side 22
DAGUR HARMONÍKUNNAR
Föngulegur kvennahópur sem spilaði á hátíðinni, m.a. í 37 manna hljómsveit undir stjórn Karls Jónatanssonar.
Frá vinstri aftari röð, Aldís Aðalbjarnardóttir, (í síðasta blaði með mynd frá Galtalækjarmóti misritaðist föðurnafn Aldísar
á því viljum við biðjast velvirðingar) Jóna Einarsdóttir, Svanhildur Valdimarsdóttir, Kristrún Sigurðardóttir söngkona,
Asta Akadóttir, Björk Þorleifsdóttir og Asgerður Jónsdóttir.
Fremri röð frá vinstri, Sigurlaug Aðalsteinsdóttir, Asta Arnardóttir, Amanda Dunn, Líney Friðfinnsdóttir og Svanhildur
Magnúsdóttir.
Það er Harmoníkufélag Reykja-
víkur sem heldur „Dag harm-
oníkunnar" hann var að þessu sinni í
Tónabæ fyrir fullu húsi áhorfenda,
staðið var til hliðar við sal hússins
beggja megin og aftast.
Fjöldi manns kom fram eins og
nærri má geta, konur jafnt sem karl-
ar, einleikarar, dúettar, kvintett og
fl.
Hljómsveit félagsins er ekkert
smásmíð, alls 37 manns auk stjórn-
andans Karls Jónatanssonar, 33
harmoníkuleikarar, 1 raf. bassaleik-
ari, 1 trommari og 2 gítarleikarar.
Gestaspilarar sem jafnframt voru
heiðursgestir dagsins komu frá Ak-
ureyri, þeir Flosi Þórir Sigurðsson og
Hörður Kristinsson. Dagur Harm-
oníkunnar er haldinn þrisvar á vetri,
janúar, febrúar og mars síðan sam-
einast allir þeir er komið hafa fram á
Degi harmoníkunnar í apríl á Hátíð
harmoníkunnar.
H.H.
Heiðursgestir á Degi harmoníkunnar komu frá Akureyri, frá v. Flosi Þórir Sig-
urðsson og Hörður Kristinsson.
22