Harmoníkan - 01.05.1999, Blaðsíða 6

Harmoníkan - 01.05.1999, Blaðsíða 6
Landsmótið á Siglufirði Omar Hauksson formaður F.H.U.S.í kyrmingu blaðsins Það að standa í forsvari fyrir fé- lagi eða hverju öðru því sem stjórna þarf, að halda utan um, eða skipu- leggja samskipti hópa og einstak- linga er hreint ekki heiglum hent. Þeir sem lenda í að vera kosnir for- menn fyrir félag kannast líklega við að mörgu þarf að hyggja á slíku heimili. Maðurinn sem mig langar að kynna hér fyrir lesendum blaðsins hefur haldið um stjórnartauma Fé- lags Harmonikuunnenda á Siglufirði í liðlega þrjú ár, og tekst nú að auki það vandasama verk á hendur að vera yfirmaður mesta mannfagnaðar harmonikuunnenda hér á landi, Landsmót S.Í.H.U. sem fram fer á Siglufirði fyrstu helgi júlímánaðar nú í sumar. Þetta síðasta landsmót fyrir aldamót verður það sjöunda í röð- inni frá upphafi og á vafalaust eftir að sópa til sín miklum mannfjölda. í þessum nyrsta kaupstað íslands hafa gegnum tíðina, íbúarnir vanist því að íbúafjöldinn rokki til um nokk- ur þúsund manns um helgar eða í landlegum síldaráranna og mun því umfangið kringum landsmótið ekki koma Siglfirðingum úr jafnvægi ef ég giska rétt. Á ráðstefnu landssam- bandsins síðastliðið haust heyrði ég að Ómar er sneisafullur nýrra hug- mynda um hvaðeina sem tengist mótinu. íormaður Harmonikufélags Siglufjarðar Félag hans hefur að auki ráðið til sín framkvæmdarstjóra fyrir lands- mótinu, Theodór Júlíusson leikara sem m.a. vann sér það til frægðar að koma síldarævintýrinu af stað á sín- um tíma. Ómar Hauksson er fæddur á Siglufirði 28 desember 1950 og hefur alla sína tíð haldið sig við þann stað. Ómar starfar sem skrifstofustjóri hjá Rækjuvinnslunni Pólum h/f. Hann hefur gegnum tíðina unnið mikið að félagsmálum, m.a. í leikfé- laginu á Siglufirði. Þá er Ómar þekktur, sem síldar- spekúlantinn á síldarævintýrinu á Siglufirði, sem núorðið stendur allar helgar yfir sumarið og tengist Síld- arminjasafni staðarins. Nokkru eftir stofnun Félags Harmonikuunnenda á Siglufirði gekk Ómar til liðs við félag- ið. Hann hefur leikið í félagshljóm- sveitinni til margra ára, leikur þar á bassagítar og syngur þegar það á við. Ómar segir það að leika með hljómsveitinni vera upprifjun og endurminningar frá sjöunda ára- tugnum þegar hann var í hljómsveit- arbransanum, en síðan séu liðin um 30 ár og lítið strengi strokið eða snert allan þann tíma. En nú er Ómar formaður F.H.U.S. og er ég for- vitnaðist um komandi landsmót seg- ist hann sjá fyrir sér vænsta mót, það sé spennandi vérkefni, en ný- stárlegt fyrir sig og sína. Þörf er á góðu samstarfi við önnur félög, og vonandi að öll taki vel undir og skynji hið veigamikla hlutverk sem þeim er ætlað á þessari æðstu sam- komu íslenskra harmonikuunnenda. Ómar segir félag sitt staðráðið í að vinna heimavinnuna vandlega, taka vel á móti fólki og gera vistina sem ánægjulegasta, fyrir utan það sem veður og vindar stjórna. Ómar er kvæntur Kristínu Jónsdóttur frá Vík í Mýrdal og eiga þau 4 börn. H.H. Sautján dans- og dægurlög, sem hitta í mark hjá fullorðna fólkinu. Söngur: Svanhildur S. Leósdóttir. Harmonika: Kristján H. Þórðarson Trommur: Brynjar Kristjánsson Bassi: Karl Ingólfurog Grímur Vilhjálmsson Gítar og hljómborð: Kristján Edelstein Saxófónn: Ríkharður Jóhannsson Upplýsingar hjá útgefanda í síma 462 1277 & gsm 891 6277 eftir kl. 17. 6

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.