Harmoníkan - 01.05.1999, Side 19

Harmoníkan - 01.05.1999, Side 19
laganna. Samkvæmt þeirri lagagrein get ég sótt um fulla aðild að S.Í.H.U. og er ekki hægt að hafna umsókninni, ef ég einfaldlega segist vera formaður fyrir harmonikufélagi sem hafi verið stofnað fyrir meira en 12 mánuðum. Hér þyrfti að vera ákvæði eitthvað í þá áttina að félag sæki um aðild við stofnun og fái síðan inngöngu með fullum réttindum og skyldum að ári liðnu að settum ákveðnum skilyrðum. Ég hef áður bent á þessa veilu í lög- um S.Í.H.U. en þar vantar tilfinnanlega ákvæði um „réttindi og skyldur“. Reyndar er þess getið í 7. grein lag- anna um landsmót „að verði halli, deilist hann á félögin í réttu hlutfalli við fjölda félagsmanna“. Gott og vel, en hvernig ætlar stjórn S.Í.H.U. að deila þeim kostnaði milli félaga ef S.Í.H.U. hefur ekki haldbær gögn um fjölda einstaklinga í hverju félagi? Þá má spyrja, fyrst deila á hugsanlegu tapi í hlutfalli við félagafjölda hvers félags - hvort ekki sé rétt að fulltrú- ar/formenn hafi þá sama atkvæða- vægi í ákvarðanatöku og kosningum, líkt og gert er í hlutafélögum - þ.e. eft- ir fjölda þeirra félagsmanna sem þeir eru fulltrúar fyrir? Þessu þarf stjórn S.Í.H.U. að gefa meiri gaum. Til að fé- lag geti verið innan S.Í.H.U. þyrftu að vera almenn ákvæði um félög og fundarsköp, þ.e.a.s. félag verður að hafa lágmarksfjölda félagsmanna, halda aðalfund árlega sem væri boð- aður og framkvæmdur samkvæmt al- mennum félagslögum. Skila stjórn 5. Í.H.U. árlega fundargerð (eða skýrslu) síðasta aðalfundar ásamt fé- lagaskrá á aðalfundi S.Í.H.U, og til að halda réttindum þurfi að gera slíkt ár- lega, annars missi félagið aðild fram að næsta aðalfundi S.Í.H.U. Á móti þarf S.Í.H.U. að koma skilaboð- um/upplýsingum um sína starfsemi, þar með talið ársreikningi til hins al- menna félagsmanns, annaðhvort beint eða í gegnum aðildarfélögin sem hefðu þær skyldur að koma þeim áfram. S.Í.H.U. þarf að hafa lög og reglur sem almennt gilda um félaga- samtök t.d. Landssambönd skáta, íþróttafélaga (svo einhver séu nefnd) og ýmissa áhugamannafélaga til að geta staðist almennar kröfur um fé- lagslega uppbyggingu ef til samstarfs kæmi t.d. á milli landa eða á alþjóða- grundvelli. Lítum þar næst á 4. 5. og 6. grein. Þar er tekið fram hvernig kjósa skuli í stjórn og á aðalfundi skulu sitja kjörnir fulltrúar ásamt for- mönnum en í lögunum stendur: „Kjörnir fulltrúar skulu leggja fram gild kjörbréf. Hvert félag hefur tvö at- kvæði séu báðir fulltrúar mættir". Við lestur 6. greinar vaknar önnur spurn- ing, hafa þeir sem sitja í stjórn S.Í.H.U. og eru ekki fulltrúi eða formaður ákveðins félags, atkvæða- og tillögu- rétt á fundum? Raskast þá ekki líka hlutfallið - eitt félag = 2 atkvæði? Geta þeir hinir sömu boðið sig áfram til stjórnarstarfa og ef svo er hafa þá ekki aðrir óbreyttir félagar innan að- ildarfélaga sama rétt? Á þá að kjósa í stjórn S.Í.H.U. aðeins úr hópi for- manna og kjörinna fulltrúa? Ef svo er, þá er 6. grein laganna óþörf og nánast út í hött. HÉR VANTAR SKÝR ÁKVÆÐI UM KJÖRGENGI. Það vaknar einnig sú spurning hvort rétt sé að skipuð/kosin verði uppstillingarnefnd er geri tillögur að skipun stjórnar? Slík nefnd væri óháð öðrum þ.e.a.s. að ekki er hægt að skipa nefndinni fyrir verkum með tilnefn- ingu stjórnarmanna, en engu að síður gefa henni ábendingar. Nefndin skili svo sem ein heild (án meiri- og minni- hlutaálits ef slíkt kæmi til), tilnefning- um á aðalfundi um skipun í stjórn en að sjálfsögðu væri einnig hægt að koma með tillögur um aðra á aðal- fundi. Það er spurning hvort uppstill- inganefnd sé til bóta, hún gæti hugs- anlega verið búin að kanna afstöðu einstaklinga til stjórnar- og formanns- setu og þannig sparað tíma sem oft fer í tilnefningar. í 8. grein er gert ráð fyrir að tillögur til lagabreytinga sé send sambandsfélögum, og þá vænt- anlega til umsagnar og skoðunar. Þar eru hinsvegar engin ákvæði um að hinn almenni félagsmaður fái að líta þær augum, hvað þá heldur að tjá sig um þær. Vantar hér ekki eitthvað á lýðræðið, eða finnst stjórnarmönnum S.Í.H.U. að hinum almenna félags- manni komi þetta hreint ekki við? Eitt er það sem hvergi er minnst á í lögun- um en það er félagsgjald/árgjald, sem er þó oftast haft með í venjulegum fé- lagslögum. Þessi upptalning mín er að sjálf- sögðu ekki tæmandi og eflaust má margt leggja til í viðbót. Ég tel þó flest, ef ekki allt sem ég minnist á eigi rétt á sér og að þingfulltrúar geti tæp- lega slitið næsta aðalfundi án úrbóta. Við lestur núverandi laga og reglu- gerðar S.Í.H.U. hljóta stjórnarmenn að finna annmarka, sem bæði þeir og aðrir þingfulltrúar ættu að finna hjá sér skyldu til að bæta úr hið snarasta. Gleymum því ekki að S.Í.H.U. er sam- tök harmonikufélaganna og félögin eru einstaklingarnir sem skráðir eu í hverju félagi. Með harmonikukveðjum Þorsteinn R. Þorsteinsson Frosini félag á Islandi í síðasta tölublaði Harmon- ikunnar var grein um stofnun Al- þjóðlega Frosinifélagsins í Stokk- hólmi ásamt lýsingu á keppni um Evrópumeistaratitilinn í Frosini- tónlist og vangaveltum um að stofna hér á landi félag til að m.a. geta ýtt undir áhuga ungs fólks í því tónlistarformi, og opna mögu- leika fyrir keppendur frá íslandi til þátttöku um Evrópumeistaratitil- inn. Með blaðinu fylgdi lítill bæk- lingur með smá lýsingu á tilgangi væntanlegs félags og umsókn fyrir þá er sína vildu áhuga. Viðbrögð við umsóknunum hafa komið hægt og rólega enn sem komið er, svo trúlega verður að endurskoða væntingar í þessu sambandi. Ekki var svosem ásetn- ingurinn að þruma þessu í gegn með einhverri flugeldasýningu, öðru nær. Best að fara með gát í þessu máli sem öðrum. Óneitan- lega er samt eðlilegt að vera við- búinn því að geta sent mann utan til þátttöku í keppninni, jafnvel í haust. Það verður ekki gerlegt nema til sé hreyfing eða félags- skapur í landinu, sem unnið getur að nauðsynlegum undirbúningi. Á þriðja tug manna hafa þegar skráð sig sem stuðningsaðila. Hugsjón gagnvart ungu fólki yrði sett á oddinn ásamt að framfylgja reglum Frosinifélagsins að öðru leiti. í ljósi þess að nú þegar hafa komið fram ungmenni í nýafstað- inni harmonikukeppni (F.H.U.R.) sýnist möguleikinn til þátttöku fyrir hendi. Ætti þetta að falla vel að þeirri uppbyggingu sem ætlast er til, miðað við lög flestra harm- onikufélaga hérlendis, að stuðla að framgangi harmonikunnar. Næsta Evrópumeistarakeppni fer fram í Helsingi í Finnlandi 19.-21. nóvember í haust. H.H. 19

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.