Harmoníkan - 01.05.1999, Side 11
Jónsmessunótt
lag: Bragi Hlíðberg
Jónsmessunótt
Hver man ekki miðsumaryl, þessa nótt, björtu nótt
þá töfranna gull verða til - yfir tindum er rótt,
í dögginni glitrar og grær, allur gróður þá,
því vornóttin bjarta býður mér allt, sem best er að njóta og fá,
á Jónsmessunóttu ég óskastein á, sem uppfyllir heita þrá.
Vorgolan strýkur vangana blítt og vermir um laut og gil
en veistu hvað nóttin okkar á til.
Komdu með mér, vorið vakir
vefur okkur töfrabirtu og yl.
Já glitrandi gimsteininn þann, er mér gaf þessi nótt
í minningu mætur er hann, þegar myrkt er og hljótt
þá orna ég mér við þann eld sem ég átti þá
því vornóttin bjarta býður mér allt, sem best er að njóta og fá
á Jónsmessunóttu ég óskastein á, sem uppfyllir heita þrá.
Sigrún Halldórsdóttir
Þegar ég var beðinn að lána lagið
„Jónsmessunótt“ til birtingar í blað-
inu, mundi ég eftir því að hún Sigrún
Halldórsdóttir í Búðardal hafði ort
svo fallegt ljóð við þetta lag og sent
mér. Strax þá ætlaði ég mér að fá
það birt í Harmonikublaðinu, henni
til sæmdar og öðrum til ánægju, en
það fór með það eins og stundum
með góðan ásetning, að það dróst
úr hömlu.
Nú er úr því bætt og vil ég senda
Sigrúnu þakkir mínar öðru sinni fyrir
ljóðið en ég veit að harmonikuunn-
endur kunna vel að meta.
Bragi Hlíðberg
■ 'v
i eg vaiai
harmóniku
ckrcv/s'/o/*
-leikur í bínum höndum!
hljóðfæraverslun_________
Leifs H. Magnússonar
GULLTEIGI 6, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 568 8611
11