Harmoníkan - 01.05.1999, Page 18
Hvað er Samband íslenskra harmonikuunnenda
Éghefverið undanfarið að velta
fyrir mér starsemi S.I.H.U. en upp-
lýsingar þar að lútandi liggja ekki
á lausu og fáir vita um hljóðan
þeirra laga sem S.Í.H.U. starfar eft-
ir.
Ef einhver Jón í einhverju harm-
onikufélagi er spurður um hvað
Samband íslenskra harmoniku-
unnenda sé (hér eftir skammstafað
S.Í.H.U.) er nœsta víst að svarið
verði eitthvað á þessa leið:
Sér það ekki um landsmótin er
það ekki í tengslum við hliðstœð
samtök í öðrum löndum? Vissu-
lega hefur S.Í.H.U. hönd í bagga
með landsmótum þó svo að mestur
þungi undirbánings þeirra sé í
höndum þess félags sem um það
sér hverju sinni. Upplýsingar frá
S.Í.H.U. til hins almenna félags-
manns í félagi innan vébanda þess
eru nœsta litlar og oftar en ekki
alls engar ef ekki kœmi til nokkur
orð öðru hverju í þessu blaði -
Harmonikunni. Stjórn S.I.H.U. er
œtlað að starfa eftir lögum sem
samþykkt eru á aðalfundi og sam-
kvœmt þeim, er ekki gert ráð fyrir
neinu sérstöku upplýsingaflœði.
Að þessu tilefni skulum við líta á
nágildandi lögS.Í.H.U.:
Lög S.Í.H.U. (samþykkt á aðalfundi
20. júní 1996)
1. Sambandið heitir Samband ís-
lenskra harmonikuunnenda
skammstafað S.Í.H.U. stofnað 3.
maí 1981.
2. Markmið sambandsins er að
stuðla að og efla harmonikuleik á
íslandi, kynna starf harmonikufé-
laga, efna til tónleikahalds, stuðla
að útgáfu íslenskrar harmoniku-
tónlistar og efla harmoniku-
kennslu. Halda skal landsmót á
þriggja ára fresti. Ennfremur sjá
reglugerð um markmið S.Í.H.U.
vegna styrkja og verðlaunaveit-
inga.
3. Öll starfandi íslensk harmonikufé-
lög geta orðið aðilar að Sambandi
íslenskra harmonikuunnenda ef
þau hafa starfað í eitt ár eða leng-
ur.
4. Stjórn sambandsins skipa fimm
menn: formaður.varaformaður,
gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi
(kosnir á aðalfundi). Kjósa skal
Þorsteinn R. Þorsteinsson
tvo varamenn og tvo endurskoð-
endur úr hópi fulltrúa. Formaður
skal vera kosinn í sérstakri kosn-
ingu en aðrir stjórnarmenn í einu
lagi, það á einnig við um vara-
menn, skulu þeir sem flest at-
kvæði hljóta fara í aðalstjórn og
framv. Að öðru leyti skiptir stjórn-
in sjálf með sér verkefnum.
5. Aðalfundur skal haldinn í tengsl-
um við landsmót þriðja hvert ár.
Hann skulu sitja kjörnir fulltrúar,
einn frá hverju félagi ásamt for-
mönnum félaganna sem eru sjálf-
kjörnir. Sama gildir um aðra boð-
aða fundi sambandsins. Kjörnir
fulltrúar skulu leggja fram gild
kjörbréf. Hvert félag hefur tvö at-
kvæði séu báðir fulltrúar mættir.
6. Ef stjórnarmenn S.Í.H.U. eru ekki
formenn eða fulltrúar aðildarfé-
laga skal sambandið greiða útlagð-
an kostnað þeirra vegna stjórnar-
funda.
7. Sambandsfélög sem falin er fram-
kvæmd landsmóts verða gerð
ábyrg fyrir framkvæmd þess og
fjárskuldbindingum með þeirri
undantekningu að verði halli,
deilist hann á félögin í réttu hlut-
falli við fjölda félagsmanna ef sjóð-
ur S.Í.H.U. hrekkur ekki til, en
verði tekjuafgangur af slíku móti
renna 2/3 hlutar til S.Í.H.U. en 1/3
hluti til mótshaldara.
8. Tillögur um lagabreytingar skulu
berast stjórn sambandsins eigi
síðar en tveim mánuðum fyrir að-
alfund. Stjórnin sendi tillögurnar
til sambandsfélaganna ekki síðar
en einum mánuði fyrir aðalfund.
9. Lögum þessum má aðeins breyta
á aðalfundi.
10. Lög þessi öðlast þegar gildi.
í annarri grein laganna er vitnað í
reglugerð um markmið S.Í.H.U. og er
því vert að láta reglugerðina fylgja
með hér.
REGLUGERÐ UM MARKMIÐ S.Í.H.U.
vegna styrkja og verðlaunaveitinga
1. Stjórn S.Í.H.U. skipi nefnd sem
ákveði hvort og hverjum skuli
veita viðurkenningu á landsmót-
um. Einnig ef til verðlaunaveitinga
kemur utan landsmóta á samkom-
um er tengjast sambandinu. (Ein-
leikarar, hljómsveitir t.d.)
2. Að S.Í.H.U. stuðli að því að harm-
onikuleikurum verði gefinn kostur
á einhvers konar keppni, þar sem
verðlaun eru veitt, þeim til hvatn-
ingar. Einnig má hugsa sér að
verðlauna sérstakar framfarir í
harmonikuleik.
3. Að heiðursgestir landsmótanna fái
árituð skjöl í hendur til staðfest-
ingar á þeirri viðurkenningu sem í
því felst að vera heiðursgestur
landsmóts
4. Samkvæmt skipulagi 5. landsmóts
S.Í.H.U. (lagakeppni) fá tónskáld
félaganna viðurkenningu fyrir tón-
smíðar sínar. Æskilegt er að sam-
bandið viðhaldi þessum sið á
komandi landsmótum. Einnig að
S.Í.H.U. gefi út nótur af þeim lög-
um sem keppa í lagakeppninni (á
landsmótum), sem viðurkenningu
fyrir þátttöku.
5. Að S.Í.H.U. haldi nákvæma skrá
yfir þá aðila er viðurkenningu hafa
hlotið og fyrir hvað þeir fengu
hana.
6. Að S.Í.H.U. styrki efnilega harmon-
ikuleikara t.d. með greiðslu vegna
skólagjalda, námskeiðhalds eða
þátttöku í mótum hérlendis og er-
lendis.
7. Auglýsa skal eftir umsóknum í
Harmonikunni og fleiri blöðum
telji stjórn S.Í.H.U. þess þörf. Um-
sóknum skulu fylgja videoupptök-
ur, með leik umsækjanda ásamt al-
mennri kynningu.
8. Reglugerð þessari má breyta á
haustfundi og aðalfundi.
Lítum fyrst á aðra grein laganna
þar sem vitnað er í reglugerð.
í reglugerðinni um markmið
S.Í.H.U. er talað um í fyrstu grein,
nefnd sem á að fylgja henni eftir. Ekki
er getið um hversu fjölmenn hún
skuli vera né heldur hvað haft skuli til
viðmiðunar varðandi verðlaunaveit-
ingar. Geta einstaklingar, félög eða
hópar sótt um styrk til nefndarinnar,
eða er hægt að gefa ábendingar um
hugsanlega styrkþega? Hvert ber þá
að snúa sér? í 7. grein reglugerðarinn-
ar segir - „Auglýsa skal eftir umsókn-
um í Harmonikunni og fleiri blöðum
telji stjórn S.Í.H.U. þess þörf.“ - Ekki
kannast ég við að hafa séð að þessu
hafi verið framfylgt og ef það reynist
rétt, til hvers er verið að setja svona
reglugerðir ef ekki ber að fara eftir
þeim? Lítum þar næst á þriðju grein
18