Harmoníkan - 01.05.2000, Side 7
píanónótum Hugsaðu þér fyrirhöfnina?
Einn vetur spiluðum við líka saman við
Sigurður Hallmarsson, á böllum víðsveg-
ar út í sveitum og á Akureyri“.
Svo lék ég í Lúðrasveit Akureyrar til
nokkurra ára á blásturshljóðfæri, sem
heitir Jufonium, það er ansi stór ( es )
lúður. Harmonika kom aldrei til greina í
lúðrasveitinni. Aftur á móti lék ég með
karlakórnum Geysi rússnesk þjóðlögt í
u.þ.b. eitt ár við tónleikahald kórsins hér
í Eyjafirðinum og nágrenni skömmu eftir
1950.
Einnig tók ég þátt í að leika undir við
ýmis skemmtiatriði hér um slóðir”. Og
Guðni heldur áfram frásögninni. „Sum-
arið 1954 hélt ég suður til Reykjavíkur,
að vinna við smíðar í Trésmiðjunni Víði.
Pétur Pétursson ( þulur) hafði þá umsjón
með útvarpsþætti, þar sem framkomu
ýmsir skemmtikraftar og fékk hann mig
til að koma fram í þættinum, sem tekinn
var upp á ýmsum stöðum m.a. í Tívolí.
Myndfrá 1941 tekin á Siglufirði. Hljómsveitarmenn eru taliðfrá vinstri, aftast Þórður
Kristinsson trommur, Guðni Friðrikson harmonika, Karl Jónatanson saxófónn, framar, Jakop
Lárusson harmonika, og svo pianóleikarinn sem heitir einfaldlega Sigurður Gunnar Henrý
Konráð Rasmus.
i eg vaiai
harmóniku
Y\V\YVhV*HHí
cixce/s'So/*
-leikur í bínum höndum!
hljóðfæraverslun_________
Leifs H. Magnússonar
GULLTEIGI 6, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 568 8611
7