Harmoníkan - 01.05.2000, Page 14
I.F.S.
Næsta keppni um Evrópumeistaratitil-
inn í Frosinitónlist fer fram í Svíþjóð 17-
19 nóvember í ár. Keppnin verður að
þessu sinni haldin í Hammarstrand sem
er bær um 100 kílómetra norður af
Stokkhólmi. í fyrra tók íslenskur kepp-
andi þátt í keppninni í fyrsta skipti. Það
var Matthías Kormáksson. (sjá 2. tbl.
1999-2000). Samkvæmt reglum sem
samþykktar voru á Helsinkiráðstefnu Al-
þjóðlega Frosinifélagsins á síðast ári, ber
keppanda að leika tvö Frosinilög, annað
að eigin vali en hitt, Ólífublómin, sem er
skyldulag.
Hér með er óskað eftir, að þeir sem
hafa hug á að taka þátt í umræddri keppni
fyrir Islands hönd, gefi sig fram við rit-
stjóra Harmonikunnar fyrir 1. ágúst
2000. Ef um fleiri en einn umsækjanda er
að ræða þarf keppni að fara fram til að
finna hæfasta þátttakandann. Hugmynd
að forkeppni liggur nú þegar á borðinu.
Látið vita sem allra fyrst.
Fulltrúi Alþjóðlega Frosinifélasins
cí Islandi
Hilmar Hjartarson
Evrópumeistarakeppnin
í Frosinitónlist 2000
Cr Pietro 1y,
& Frosini
tm
% HV
*OSINl S°
Matthías Kormáksson tekur hér við síðbúnu viðurkenningarskjali fyrir þátttökuna í Frosini
Grand Prix í Helsinki 1999, á heimili fulltrúa I.F.S. Við sama tilefni var Matthíasi afhentur
50.000 kr. styrkur til harmonikukaupa úr Frosinisjóð.
Camilla
Einn af keppendum í flokki ung-
menna, sem kepptu á tvöfalda harmoniku
á Titanohátíðinni í Noregi var ung og fal-
leg 17 ára norsk stúlka, Camilla Hauge.
Á hátíðinni bjó Camilla með nokkrum
ungmennum í 20 manna hermannatjaldi
inni á svæðinu, nálægt okkur hjónum,
svo það var sjálfgefið að fylgjast með
henni í keppninni og taka hana tali.
Camilla er frá Norður-Hörðalandi og hóf
að læra þar á tvöfalda harmoniku 10 ára
gömul. Hún hefur stundað nám í tónlist-
arskóla síðastliðin sjö ár. Hún hefur alltaf
fundið fyrir mikilli ánægju og gleði í
tenglum við hljóðfærið og því hafi hún
byrjað að spila sjálf, enda haft væntingar
hennar ekki brugðist í þeim efnum.
„Nei, í Noregi talar enginn um að það
sé hallærislegt að spila á tvöfalda harm-
oniku, það orð er ekki notað í þessu sam-
hengi“ segir Camilla, sem hefur tekið
þátt í keppnuin í vestur Noregi og svo á
Títanohátíðinni allar götur síðan 1995 og
líkar vel. Margir kepptu í hennar flokki
á Titano ‘99. Dómarar gáfu henni 69 stig,
en baráttan var hörð og metnaðarfull.
Camilla ráðleggur ungu fólki að velta
tvöföldu harmonikunni meira fyrir sér.
Harnionikulcikari
órsins 1999 í Svíþjóð
Svíar hafa valið harmonikuleikara árs-
ins 1999. Sá, eða öllu heldur sú, sem
hlaut þennan eftirsótta titil heitir Annika
Anderson. Annika er íslendingum að
góðu kunn, því hún hefur komið hingað í
tvígang. Fyrst 1991 í tilefni af 10 ára af-
mæli S.Í.H.U., en þá fór hún í tónleika-
ferð um landið ásamt, Anders Larson þá-
verandi unnusta hennar, Sigrid Öjefeld
og Conny Backström. I síðara skiptið
komu þau Annika og Anders í boði
F.H.U.R. og H.R. á sameiginlega árshá-
tíð félaganna árið 1994. Annika er mjög
fjölhæfur harmonikuleikari, fínlegur og
góður túlkandi. Hún er 25 ára gömul.
Hauge
Það viti ekki allir hve skemmtilegt sé að
leika á þesskonar hljóðfæri og að óhemju
fjölbreytta tónlist sé hægt að spila á þær.
Hún hefur mikinn áhuga á að koma til ís-
lands, til að sjá land og þjóð. „Þar að auki
eigi hún ættingja í Reykjavík“. Það eru
því jafnvel líkur á að þessi glæsilega
harmonikukona sæki okkur heim á næstu
árum.
H.H.
14