Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 17

Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 17
getið var um í fyrsta tbl. 1999-2000 urðu formannsskipti hjá landsambandinu. Sig- rún Bjarnadóttir lét af formennsku og við tók Jóhannes Jónsson frá Akureyri. Jó- hannes sagði í ávarpi sínu, að hann finndi hjarta sitt slá til harmonikuunnenda og vonaði að á því yrði engin breyting. Hann kæmi til nteð að byggja á fyrra starfi sambandsins, um framgang harm- onikunnar væri hann ekki kvíðinn. Jó- Dúettfrá v. Guðmundur Samúelsson og Hreinn Vilhjálmsson F.H.U.R.náðu góðum samleik, eins og þeir sannfœrðu áheyrendur um á Siglufirði. hannes var hylltur með dynjandi lófataki. Um kvöldið var síðan sameiginlegt borð- hald í Miðgarði með fjölbreyttu ívafi, gamanmálum af ýmsum toga, góðri tón- list og að sjálfsögðu sveif hin sanni stór- fjölskylduandi harmonikuunnenda, sem frægur er, yfir vötnunum. Sleginn var botn í dagskrána með dansleik af þeirri gráðu, sem gleymist seint. Umsjá og framkvæmd þessa framhaldsaðalfundar og alls sem honum tengdist var í örugg- um höndum Harmonikufélags Skaga- fjarðar og F.H.U. í Húnavatnssýslum. H.H. Þessir heiðursmenn sáu um undirbúning og framkvœmd framhaldsaðalfundarins í Varmahlíð, ásamt borðhaldi, dansleik og skemmtiatriðum með aðstoð félagsmanna sinna. Frá v. Gunnar Agústsson form. F.H.Skagafirði og formaður F.H.Húnavatns- sýslu Þórir Jóhannsson. Túlkun Braga Hlíðberg á Ólífu- blómum Frosinis hafði mikil áhrifá áheyrendur, sem risu úr scetum og klöppuðu fyrir þessum meistara harmon- ikunnar íþakklœtis- og virð- ingarskyni. Myndin er tekin á Landsmótinu 1999. Harmonikukikari aldarinnar 1900-2000 Þegar blaðið reið á vaðið með að fá áskrifendur til að velja harmonikuleikara aldarinnar, var öldungis óljóst hver við- brögðin yrðu. Öllum áskrifendum voru send gögn með 2. tbl. 1999-2000 og fljótlega tóku að berast svör. Þá kom í ljós að áskrif- endur reyndust ekki skoðanalausir. um hver gæti með réttu talist harmonikuleik- ari aldarinnar, eða hvort harmonikan gæti talist hljóðfæri aldarinnar. Svör bárust af öllu landinu, frá konum og körlum, ung- um sem öldnum og niðurstöðurnar liggja nú fyrir. Toppsætið á Bragi Hlíðberg með yfirgnæfandi magn atkvæða. Á hæla hans kemur Grettir Björnsson, í þriðja sæti lendir Hrólfur Vagnsson og Reynir Jónasson vermir það fjórða. Bragi Hlíð- berg telst því réttkjörinn sem harmoniku- leikari aldarinnar, samkvæmt vali áskrif- enda blaðsins. Allir svarendur, utan fimm, völdu harntonikuna sem hljóð- færi aldarinnar, en þessir fimm töldu pí- anó, fiðlu og gítar vel koma til greina. Aðrir harmonikuleikarar sem hlutu til- nefningu voru Lýður Sigtryggsson, Grét- ar Geirsson, Bjarni Böðvarsson, Jóhann Jósepsson, Hafsteinn Ólafsson, Ólafur Pétursson, Jóhannes Garðar Jóhannesson, Matthías Kormáksson, Friðrik Jónsson, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Aðal- steinn Isfjörð, Garðar Olgeirsson, Karl Jónatansson, Guðni Friðriksson, Örvar Kristjánsson, Baldur Geirmundsson, Jón Árnason, Lára Hrönn Pétursdóttir, Einar Guðmundsson, Gísli Brynjólfsson og Rútur Hannesson. Harmonikan þakkar áskrifendum þátt- tökuna og óskar harmonikuleikara tuttug- ustu aldarinnar innilega til hamingju og mun honum verða afhent sérstakt heiður- skjal því til staðfestingar. Síðar mun blaðið gera hæfileikamanninum Braga Hlíðberg betri skil. H.H. Sumarmót Hurmonikuun Vesturlands ZOOO Harmonikumót H.U.V. í Þverrárrétt veróur dag 23.-25. júní 2000 um Jónsmessuhelgina.Við hvetji til að koma og njóta skemmtilegrar helgar í Þverrárrétt við sþjall og spil í nýuppgerðu samkomuhúsi staðarins ásamt að upplifa hina alkunnu tjaldstemmningu. Allir velkomnir Uppls.Geir i síma 431-2140 Rafn í síma 437-1917 17

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.