Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 19

Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 19
DAGUR HARMONIKUNNAR 5. MAI2012 Að venju voru haldnir tónleikar á Breiðumýri ítilefni af Degi harmonik- unnar. Hófst samkoman kl. 14 á því að formaður félagsins, Þórgrímur Björnsson, bauðfólkvelkomiðogvar mjög góð mæting eins og alltaf. Fyrstur spilaði Sigurður Hallmarsson af sinni alkunnu snilli og gleði. Þá spiluðu þau Hermann Hólmgeirsson og Guðrún Gísladóttir nemendur í harmonikuleik við Hafralækjarskóla og spiluðu þau frábærlega. Þá var öllum viðstöddum boðið upp á veitingar og var það mikið veislu- borð. Síðan spiluðu þeir félagar Sig- urður Leósson, Jón Árni Sigfússon, Ásgeir Stefánsson og svo spilaði Ásgeir með Stefáni Þórissyni. Að lokum spiluðu átta harmoniku- spilarar saman góða stund og var þetta allt mjög góð skemmtun og Ijúf stund. Guðrún Gísladóttir, ÞórgrímurBjörnsson formaður Harmonikufélags Þingeyinga. Hermann Hólmgeirsson Guðrún Gísladóttir Hermann Hólmgeirsson Sigurður Hallmarsson F.v. Stefán Þórisson, Rúnar Hannesson, Ásgeir Stefánsson, Inga Hauksdóttir, Sigurður Hallmarsson, Kristján Kárason, Sigurður Leósson, jón Árni Sigfússon 19

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.