Fréttir - Eyjafréttir - 25.09.2008, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 25. september 2008
15
✓
Argangur 1959
Mikið hefur verið um árgangsmót í Eyjum í haust, eitt og fleiri um hverja helgi. Hér eru þeir sem mættu þegar árgangur 1959 hélt sitt mót. Fremri röð: Sigmar Garðarsson, Gylfi
Sigurðsson, Eygló Kristinsdóttir, Sigrún Þórarinsdóttir, Kristín Bernharðsdóttir, Marta Jónsdóttir, Guðný Oskarsdóttir, Þorbjörg Theódórsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Jóna
Garðarsdóttir, Svanhildur Guðlaugsdóttir, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Hafdís Þorsteinsdóttir, Sigríður Petra Hansen og Lovísa Heiðarsdóttir.
Aftari röð: Birkir Agnarsson, Vignir Þ. Hjálmarsson, Eyjólfur Heiðmundsson, Brynjólfur G. Jónsson, Þorsteinn Finnbogason, Unnur S.Karlsdóttir, Ágústa Hafsteinsdóttir, Ólafur
Guðnason, Drífa Kristjánsdóttir, Bryngeir Torfasson, Bjarney Stefánsdóttir, Aðalheiður Hafsteinsdóttir, Ægir Pálsson, Elín Sigurbjörnsdóttir, Anna S. Karlsdóttir, Lárus Guðjónsson,
Sólveig Þóra Arnfinnsdóttir, Guðmundur Ingvarsson, Helga Sveinsdóttir, Rósa Guðjónsdóttir, Ester Birgisdóttir, Auðbjörg Björgvinsdóttir, Anna V. Ólafsdóttir, Gunnhildur
Kristjánsdóttir, Sigríður Garðarsdóttir og Lovísa Sigurðardóttir.
Omar Garðarsson svarar Sigurmundi Einarssyni ferðafrömuði:
Saman náum við árangri
-Annars verðum við undir í baráttunni þegar Landeyjahöfn kemst í gagnið
Sigurmundur Einarsson, sem rekur
fjölþætta ferðamannastarfsemi í
Vestmannaeyjum, fer mikinn í
skömmum á mig í Fréttum 11.
september sl. Tilefnið var lítil frétt í
blaðinu á undan um að kannski
megi standa betur að móttöku
skemmtiferðaskipa. Ekki ætla ég
að svara Sigurmundi efnislega en
tek ofan fyrir honum að verja
starfsfólk sitt sem ég hef enga
ástæðu til að ætla að standi ekki
sína plikt.
En hvað var svona meiðandi við
þessa frétt sem sagði frá því að um
20 skemmtiferðaskip hefðu komið
til Eyja í sumar og það mætti þakka
aukinni markaðsstarfsemi? Jú,
inntakið var að meira mætti hafa út
úr farþegum skipanna og ástæðan
sögð sú að engin skipulögð starf-
semi er í bænum til þess að taka á
móti farþegum og beina þeim í
skoðunarferðir og nýta sér áhuga
þeirra á verslun. Dæmi væru um að
farþegar hafi gengið út úr rútum í
skoðunarferðum þar sem þeir áttu í
erfiðleikum með að skilja þá ensku
sem leiðsögumaðurinn talaði.
„Ljóst er að átaks er þörf til þess
að nýta þá auðlind sem skemmti-
ferðaskipin eru. Samræma þarf
kraftana og vinna að þessu verkefni
af fagmennsku. Ef til vill er slíkt
ofmælt þar sem í ferðaþjónustu í
Vestmannaeyjum er hver höndin
upp á móti annarri og samvinna
erfiðleikum háð. Spuming er
hvenær utanaðkomandi aðilar sjá
sér þama leik á borði og taka á
móti skipunum af fagmennsku og
myndugleik," segir í lokaorðum
fréttarinnar.
Breyttar aðstæður
Fréttir standa við hvert orð sem
þarna stendur. Ekki meira um það
en hvað ætla aðilar í ferðamennsku
og bæjaryfirvöld að gera til að
takast á við breyttar aðstæður með
tilkomu Landeyjahafnar árið 2010.
Gera má ráð fyrir að þá muni
ferðamenn streyma til Vestmanna-
eyja en hvemig ætla Vestmanna-
eyingar að bregðast við. Ætla þeir
að vera gerendur eða áhorfendur?
Þetta er spurning sem menn verða
að svara strax. Ætli Eyjamenn að
vera í fyrmefnda hópnum er eins
gott að taka til hendinni strax því
örugglega eru aðilar innan greinar-
innar famir að skoða þann mögu-
leika sem opnast með Landeyja-
höfn.
Hægt er að sjá fyrir sér að hingað
komi rútur fullar af ferðamönnum
þar sem Vestmannaeyjar eru orðnar
vaikostur sem þeir stóru í greininni
bjóða upp á. Jafnvel sem viðbót
við Gullna hringinn, Gullfoss og
Geysi. Þá gæti myndin verið sú að
rúturnar koma upp úr Herjólfi eftir
hálftíma siglingu hér yfir. Stoppað í
tvo tíma, farið um Heimaey undir
leiðsögn fólks sem fylgir með og
næsti áningarstaður Hvolsvöllur þar
sem fólkið fengi að borða.
Og ekki króna yrði eftir í Vest-
mannaeyjum.
Ekki geri ég ráð fyrir að þetta sé
sú sýn sem ferðaaðilar og bæjar-
stjórn hafa af þróun ferðamennsku
framtíðarinnar í Vestmannaeyjum.
En svona verður þetta verði ekki
brugðist við. Þess vegna segi ég við
Sigurmund og aðra í greininni,
gyrðið ykkur í brók og setjið á
laggirnar starfshóp í samstarfi við
bæjarstjóm til að fara yfir málið.
Þama er verk að vinna og engan
tíma má missa því engir vita betur
en þið að ferðaiðnaðurinn skipu-
leggur sig eitt, tvö og jafnvel þrjú
ár fram í tímann.
Ekki útiloka samstarf
Það er ekkert að því að fara í sam-
starf við einhvem af þeim stóru en
skoða verður alla möguleika, líka
hvar styrkur okkar liggur og hvar
við erum veikastir. Ekki væri verra
að fá sérfræðing á sviði ferðamála
til að fara yfir stöðuna því betur sjá
augu en auga. Ætli aðilar í ferða-
mennsku í Vestmannaeyjum að vera
gerendur verða þeir að koma upp úr
skotgröfunum, meta hvað vel er
gert og hvar megi bæta þjónustuna.
Og mér er alveg sama hvað
Sigurmundur segir, samstaðan
hefur ekki verið fyrir hendi meðal
fólks í ferðaiðnaði í Vestmanna-
eyjuin. Sé það rangt, eins og hann
ýjar að er það hið besta mál og ætti
að auðvelda ykkur að takast á við
breyttar aðstæður. Til þess hafið þið
fullan stuðning Frétta, þvf þetta er
hagsmunamál allra Eyjamanna.
Omar Garðarsson, ritstjórí.
Es. Við Simmi erum ennþá v'inir og
verðum.
Lögrcglan:
Skemmdarverk
Það var í ýmis hom að líta hjá lögreglu í
vikunni sem leið og
má m.a. nefna
eignaspjöll, umferð-
aróhöpp ofl. Þá
þurfti lögreglan, að
vanda, að aðstoða fó
ölvunarástands þess.
Eitt skemmdarverk var tilkynnt til lögreglu
eftir skemmtanahald helgarinnar. Um var að
ræða rúðubrot að Vesturvegi 26 aðfaranótt 20.
september sl. Ekki er vitað hver þama var að
verki en þeir sem einhveija hugmynd hafa um
það em vinsamlegast beðnir um að hafa sam-
band við lögreglu.
Fréttatilkynning - Konukvöld
Beggi og Pacas og Páll
Konukvöld Hallarinnar verður haldið þann
29. nóvember og mun allt verða gert vitlaust
það kvöld.
Búið er að bóka Pál Oskar sem á að halda
uppi stuðinu og Beggi og Pacas úr Hæðinni
verða veislustjórar.
Dagskráin er enn í mótun og munu þær
Margrét Hildur hárgreiðslumeistari og
Hjördís Elsa sjá um að gera þetta kvöld
ógleymanlegt fyrir þær fjölmörgu
konur sem munu leggja leið sína í Höllina
þetta kvöld.
Einsi Kaldi mun sjá um matinn og lofar
Einsi einhverju óvæntu (kannski að hann
komi nakinn fram)
Dansleikur mun fara fram eftir miðnætti ef
í Höllinni 29. nóvambar:
✓
Oskar skemmta
allt verður eðlilegt
með hljóðmál
Hallarinnar (sem við
vonum svo sann-
arlega) og verður
húsið opnað þeim
sem ekki ætla
að koma á sjálfa
skemmtunina um
kvöldið uppúr miðnætti og er dansleikurinn
öllum ætlaður.
Nú þegar er búið að panta fyrir á annað
hundrað manns á þetta frábæra konukvöld
sem Höllin stendur fyrir.
Nánari upplýsingar og borðapantanir í síma
Hallarinnar 481-2675 á skrifstofutíma.
Lögreglan:
Ökumaður í dópi
Ökumaður var stöðvaður um helgina vegna
gruns um að hann
væri undir áhrifum
fíkniefna við aks-
turinn.
Annar varr sektaður
fyrir að virða ekki biðskyldu og annar fyrir
að hafa ekki ljósabúnað í lagi.
Tvö umferðaróhöpp urðu í vikunni og varð
töluvert tjón á ökutækjum en ekki alvarleg
meiðsl á fólki. Fyrra óhappið var þegar tvær
bifreiðar lentu saman á gatnamótum
Dalavegar og Strembugötu. Seinna óhappið
varð á gatnamótum Hólagötu og Kirkjuvegar.