Fréttir - Eyjafréttir - 18.12.2008, Blaðsíða 27
Fréttir / Fimmtudagur 22. febrúar 2007
27
af okkur. Námsmannaskipti, eins og eru milli Norðurlandanna og Fudan háskóla, gera það að verkum að
skilningur milli þjóðanna eykst og það byggjast upp sambönd sem geta nýst báðum þjóðum.
ZHAN við Guilfoss. Við í Kína getum lært margt af ykkur eins og þið
Sannkallað draumaland
/
-Zhan Guang frá Kína var ánægður með heimsókn til Islands og Eyja
ZHAN og Árni í Alþingishúsinu. Ýmislegt kom Zhan á óvart. í fyrsta lagi hvað þinghúsið er lítið, svona
eins og forstofan í kínverska þinginu -Kom einnig á óvart hvað þingmaðurinn var hreinskiptinn og alúð-
legur og kom fram við fólk á jafnréttisgrundvelli. Þetta er alvöru pólitík, sagði Zhan.
Fyrir þremur vikum var hér á ferð-
inni Zhan Guang sem er nemandi
við Fudan háskóla í Shanghæ í
Kína. Við forvitnuðumst um hann
og hvað hann væri að gera hér
svona langt að heiman og gáfum
honum orðið.
„Eg ólst upp í litlu þorpi á bökk-
um Gula fljótsins í miðju Kína og
eru íbúar þar um 100.000 manns.
Þar er stundaður landbúnaður en
einnig töluverður iðnaður þar sem
við njótum j»óðs af samgöngum
um fljótið. Eg komst inn í Fudan
háskólann sem er í hópi þriggja
virtustu háskóla í Kína eftir að hafa
þreytt inntökupróf sem um fimm-
hundruð þúsund manns tóku þátt í
og varð ég nr. 23 í þeim hópi og
komst því inn.
Eg lauk námi sem skipaverkfræð-
ingur en stjórnmálin hafa heillað
mig lengi og sneri ég mér því að
stjórnmálafræðinni. Eg hef unnið
með náminu við Norræna setrið í
háskólanum en það er stofnun sem
styrkt er af Norðurlöndunum og er
hugsuð til að efla samskipti og
samvinnu Kína og Norðurlandanna
í námi og viðskiptum.
I skólanum kynntist ég Helgu
Kristínu Kolbeins sem var að læra
opinbera stjórnsýslu þar. Er norska
ríkisstjórnin bauð mér til náms-
dvalar í Noregi þá notaði ég tæki-
færið til að koma til Islands og
auðvitað til Vestmannaeyja sem
hafa heillað mig mikið eftir lestur
bóka um Island."
Náttúran og mannlífið
heillandi
„Þegar maður kemur frá þéttbýlinu
í Kína þá finnst manni að Island og
sérstaklega Vestmannaeyjar sé
dularfull ævintýraveröld. Þið horfið
út um gluggann og sjáið náttúruna í
öllu sínu veldi, heyrið og sjáið
hafið berja klettana, getið séð bæði
sólina og tunglið um hábjartan dag,
það hef ég aldrei séð. Himinninn
svo heiður og tær og stjörnubjart að
nóttu en ég hef aldrei séð stjörnur í
Shanghai og afar sjaldan heiðan
himin vegna misturs frá iðjuverum
og umferð. Þið lifíð hér í sátt við
náttúruna og engu máli virðist
skipta hvort náunginn sé alþingis-
maður, verkamaður eða embættis-
maður, þið komið eins fram hvert
við annað. Eg skoðaði Framhalds-
skólann með Helgu og var í
kennslustund með henni. Þar velja
nemendur námsbrautir sínar eftir
hugðarefnum og kennarar koma
fram við nemendur sína á jafnréttis-
grundvelli. Hvort tveggja væri
óhugsandi í Kína. I ævagömlu kín-
versku handriti er lýst þjóðfélagi
sem er eins konar Paradís eða
Utópía. Þjóðfélag sem er einangrað
frá öðrum og allir lifa saman í sátt
og samlyndi við góð lífskjör, þið
komist næst því að vera það full-
komna samfélag af þeim sem ég
hef kynnt mér, sannkallað drauma-
land.
Þinghúsið
Mér var boðið að heimsækja Al-
þingi og tók Árni Johnsen, alþing-
ismaður ykkar, þar á móti mér,
leiddi mig um húsið og ræddi við
mig um flokkakerfið á Islandi og
stöðuna í efnahagsmálunum. En
bankarnir voru að hrynja um þetta
leyti. Ég var mjög stressaður og
vissi eiginlega ekki við hverju ég
mætti búast að koma inn í þing-
húsið og hitta alþingismann því að
í Kína er afar sjaldgæft að fólk fái
tækifæri að koma þar inn og hvað
þá hitta þingmenn en margt kom á
óvart. í fyrsta lagi hvað þinghúsið
er lítið, svona eins og forstofan í
kínverska þinginu, en afar fallegt
og ekki síður hvað þingmaðurinn
var hreinskiptinn og alúðlegur og
kom fram við fólk á jafnréttis-
grundvelli. Þetta er alvöru pólitík.
Einnig fór ég í skoðunarferð hjá
Alþýðusambandinu og Starfs-
greinasambandinu og hitti fjölda
fólks þar. Mér sýnist verkalýðs-
hreyfmgin vera öflug á íslandi.
Hitti forsetann aftur
Ég var á Islandi í heila viku, fór
víða og kynntist náttúrunni og
menningunni og hitli fjölda fólks.
Það er greinilegt að þjóðfélagið
stendur föstum fótum og sýnist mér
að þið séuð vel í stakk búin að
takast á við kreppuna þó bakslag
verði í lífskjörum um einhvern
tíma. Sem dæmi um hve Island er
ótrúlegt þjóðfélag þá var ég að
skoða Bessastaði ásamt Arnari og
Helgu. Ég var að taka myndir og þá
birtist forsetinn skyndilega ásamt
eiginkonu sitini. Voru þau að koma
úr gönguferð með hundinn sinn og
ræddi ég aðeins við þau. Þetta sæi
ég ekki gerast í nokkru öðru landi.
En áður hafði ég hitt forsetann í
Shanghai er hann hélt fyrirlestur í
háskólanum, fyrirlestur sem var
gerður góður rómur að og kveikti
áhuga margra á Islandi.
Alvaran framundan
Nú sný ég aftur til Noregs og held
sfðan aftur til Kína í febrúar. Ég
býst við að stunda nám í stjórn-
málafræðinni næstu tvö árin og fer
svo til Beijing eftir það að vinna í
stjórnsýslunni. Við f Kína getum
lært margt af ykkur eins og þið af
okkur. Námsmannaskipti eins og
eru milli Norðurlandanna og Fudan
háskóla gera það að verkum að
skilningur milli þjóðanna eykst og
það byggjast upp sambönd sem
geta nýst báðum þjóðum.
Þó þið séuð að ganga gegnurn
vissa erfiðleika nú þá munið þið
komast í gegnum þá. Þið eigið gott
jyjóðfélag og á íslandi býr gott fólk.
Eg vil þakka fyrir frábærar mót-
tökur hjá öllum sem ég hitti. ísland
og sérstaklega Vestmannaeyjar
munu eiga bústað í hjarta mínu um
alla framtíð," sagði Zhan að
endingu.