Fréttablaðið - 26.03.2013, Side 6
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VEISTU SVARIÐ?
1. Vel tenntar höfuðkúpur hvaða dýra
fundust í fjöruferð á Snæfellsnesi
nýverið?
2. Hversu margir farþegar fóru um
Reykjavíkurfl ugvöll í fyrra?
3. Hvað heitir leikmaðurinn og þjálf-
arinn sem varð bikarmeistari bæði í
karla- og kvennafl okki í blaki?
SVÖR:
1. Rostunga 2. 363 þúsund. 3. Elsa Sæný
Valgeirsdóttir.
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur
og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði
í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös
á sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta
kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu
sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku.
Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum,
ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki
ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli.
Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli- eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
smá af sultu og njóttu þess.
KÝPUR Kýpverskir ráðamenn segja
samkomulagið sem tókst snemma
í gærmorgun vera sársaukafullt.
Þríeyki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins og seðlabanka Evrópu-
sambandsins hefur fallist á að veita
Kýpverjum neyðarlán upp á tíu
milljarða evra, jafnvirði um það bil
1.600 milljarða króna, gegn því að
næststærsti banki landsins fari að
stórum hluta í gjaldþrotameðferð.
„Þetta þýðir ekki að við séum búin
að sigrast á þessu, heldur hefur okkur
í raun tekist að koma í veg fyrir
brottför af evrusvæðinu, sem hefði
haft skelfilegar afleiðingar,“ höfðu
fjölmiðlar eftir Michalis Sarris, fjár-
málaráðherra Kýpur. Samkomulagið
felur í sér að innistæður umfram 100
þúsund evrur í Laiki-bankanum muni
líklega að stórum hluta tapast. Stór
hluti innistæðnanna var í eigu rúss-
neskra auðjöfra, sem hafa notfært
sér Kýpur sem skattaskjól. Almenn-
ingur á Kýpur sleppur hins vegar að
mestu með skrekkinn, því innistæð-
ur upp að 100 þúsund evrum verða
fluttar í annan banka og njóta fullrar
tryggingar.
Þetta er í fyrsta sinn sem Evrópu-
sambandið fellst á að láta innistæðu-
eigendur taka á sig hluta tapsins. Á
Grikklandi voru það á endanum fjár-
festar sem tóku á sig hluta tapsins,
og þurfti að fá samþykki þeirra til.
En ekki var hróflað við innistæðum
í grískum bönkum, ekki frekar en á
Írlandi, Spáni eða í Portúgal.
Óttast er að þetta fordæmi geti
haft áhrif á auðjöfra víða um heim,
sem muni hér eftir hika við að geyma
fé sitt á bankareikningum í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins.
Afleiðingarnar á Kýpur eru meðal
annars þær að bankakerfi landsins
skreppur verulega saman, fer úr því
að vera áttföld landsframleiðsla niður
í viðráðanlega stærð. Jafnframt verð-
ur Kýpur af þeim tekjum sem hafa
komið frá því að vera skattaskjól.
gudsteinn@frettabladid.is
Neyðarlánið bjargar
Kýpur fyrir horn
Kýpur fær tíu milljarða evra úr neyðarsjóði Evrópusambandsins, sem dugar til að
ríkisskuldir Kýpur fara niður í 140 prósent af landsframleiðslu. Frekari samdráttur
heldur þó áfram að hækka þetta hlutfall, svo brátt gæti þurft fleiri neyðarlán.
BANKASTARFSFÓLK MÓTMÆLIR Starfsfólk Laiki-bankans á Kýpur hefur tekið
þátt í mótmælum fyrir utan þinghúsið í Nikosíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kýpur er eyja í austanverðu Miðjarðarhafinu, litlu minni en Vestfirðir að
stærð. Þar býr rúmlega milljón manns og eru um 800 þúsund þeirra grísk-
ættaðir en hinir flestir af tyrkneskum uppruna. Árið 1974 reyndi herfor-
ingjastjórnin á Grikklandi að innlima Kýpur í Grikkland. Tyrkir brugðust
ókvæða við, hertóku tyrkneska hluta eyjunnar og æ síðan hefur eyjan
verið tvískipt. Gríski hlutinn fékk inngöngu í Evrópusambandið árið 2004
og tók upp evruna árið 2008.
➜ Tvískipt eyja í Miðjarðarhafinu
Í meira en viku hafa stjórnvöld á Kýpur leitað logandi ljósi að 5,8
milljörðum evra, ríflega 900 milljörðum króna, sem Evrópusambandið
krefst að verði mótframlag Kýpverja gegn tíu milljarða evra neyðarláni,
sem vonast er til að geti bjargað bönkunum á Kýpur frá falli og ríkis-
sjóðnum frá því að fara í greiðsluþrot.
Fyrst var hugmyndin sú að leggja skatt á allar innistæður í kýpverskum
bönkum. Þeirri hugmynd var hafnað af kýpverska þinginu á þriðjudaginn í
síðustu viku.
Á endanum varð niðurstaðan sú að næststærsta banka landsins, Laiki-
bankanum, verði skipt upp í tvo banka, slæman og góðan.
Í „góða bankann“ verði flutt bæði þau lán, sem fullvíst þykir að verði
í skilum, og bankainnistæður upp að 100 þúsund evrum, eða um 16
milljónum króna. Þessi banki verði síðan sameinaður Kýpurbanka, sem er
stærsti banki landsins.
„Slæmi bankinn“ fari hins vegar í gjaldþrotameðferð, en í honum verði
skilin eftir þau lán, sem óvíst er að innheimtist, og sá hluti innistæðna
sem er umfram 16 milljón króna lágmarkstryggingu.
Þetta á að tryggja 4,2 milljarða evra upp í mótframlagið.
➜ Banka skipt í „góðan“ og „slæman“
Krísan á Kýpur
HALLDÓR
BALDURSSON
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
LÖGREGLUMÁL Tvær konur voru
fyrir helgi kærðar fyrir vörslu
fíkniefna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði konurnar, sem eru
mæðgur, í bifreið í austurhluta
Reykjavíkur um kvöldmatarleyti
á fimmtudag. Þegar heim til
mæðgnanna var komið fundust
þar fíkniefni. Ung börn voru á
heimilinu og var Barnaverndar-
nefnd sett í málið. - sv
Ung börn á heimilinu:
Mæðgur voru
með fíkniefni
í fórum sínumDANMÖRK Tveir danskir bræður af sómölskum uppruna voru í gær
dæmdir fyrir héraðsdómi í Árósum
í þriggja og hálfs árs fangelsi hvor
um sig fyrir að hafa sótt æfinga-
búðir fyrir hryðjuverkamenn. Um
tímamótadóm er að ræða þar sem
aldrei fyrr hefur verið dæmt eftir
þessum lagabókstaf, sem var tek-
inn í lög árið 2006.
Bræðurnir sem eru 24 og 19
ára gamlir hafa búið í Danmörku
í 16 ár og eru danskir ríkisborg-
arar, búsettir í Árósum. Sá eldri er
dæmdur fyrir að hafa sótt æfinga-
búðir Al-shabaab hryðjuverkasam-
takanna rétt utan við Mógadisjú í
Sómalíu í fyrravetur, en hinn er
dæmdur samsekur fyrir að hafa
stutt bróður sinn bæði fjárhags-
lega og andlega.
Sá eldri, sem hefur setið í gæslu-
varðhaldi í tíu mánuði, hafnar
málatilbúnaðinum og segist hafa
verið í Sómalíu að heimsækja
skyldmenni.
Bræðurnir hafa báðir áfrýjað
dómnum. - þj
Tveir danskir bræður urðu þeir fyrstu til að fá dóm fyrir hryðjuverkaþjálfun:
Tímamótadómur í Danmörku
FRÁ ÁRÓSUM Tveir danskir bræður af
sómölskum uppruna voru í gær dæmdir
í héraðsdómi í Árósum fyrir að hafa sótt
þjálfun fyrir hryðjuverkamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORGILS
SLYS Talið er að eldri og reyndari
fallhlífarstökkvarinn sem lést í
slysi í Flórída á laugardag, hafi
reynt að koma hinum yngri til
bjargar í stökkinu. Mennirnir lét-
ust báðir þegar þeir skullu til jarð-
ar, en aðalfallhlífar þeirra opnuð-
ust ekki og varabúnaðurinn ekki
fyrr en of seint.
Lögreglan í Tampa í Banda-
ríkjunum rannsakar enn tildrög
slyssins, en fram kom í fjölmiðl-
um vestanhafs í gær að ekkert
benti til þess að nokkuð saknæmt
hafi átt sér stað. Lögreglan rann-
sakar meðal annars efni úr mynd-
bandsupptökuvél sem annar fall-
hlífarstökkvarinn var með á
hjálmi sínum. Mennirnir voru
báðir íslenskir og hluti af fallhlíf-
arklúbbnum Í frjálsu falli, sem
skipulagði ferðina til Bandaríkj-
anna.
Hjörtur Blöndal, formaður
klúbbsins, sagði í samtali við Rík-
isútvarpið í gær að hópnum hafi
verið boðin áfallahjálp á sunnu-
dag, en hún hafi verið afþökkuð.
Þau hafi haldið góðu sambandi við
fjölskyldur hinna látnu á Íslandi
og að ákvörðun hafi verið tekin
um að halda kyrru fyrir á Flórída
og halda áfram að stökkva.
„Það er það sem Andri og Örvar
hefðu viljað,“ sagði Hjörtur í sam-
tali við Ríkisútvarpið.
Mennirnir sem létust hétu Andri
Már Þórðarson, 25 ára, og Örvar
Arnarson, 40 ára. Báðir ókvæntir
og barnlausir. Andri var í námi hjá
Örvari. - sv
Lögreglan skoðar myndband úr öryggishjálmi annars stökkvarans:
Reyndi að bjarga nemanum
ÖRVAR
ARNARSSON
ANDRI MÁR
ÞÓRÐARSON