Fréttablaðið - 26.03.2013, Side 10

Fréttablaðið - 26.03.2013, Side 10
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | Ég geri ráð fyrir því að fólkið sem var þarna líka muni hafa uppi einhverjar aðgerðir og síðan muni þetta fljóta sína leið. Guðjón Skarphéðinsson Við erum orðin mjög þreytt. Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum Líka hversu grimmdarlegum aðferðum var beitt við rannsókn málsins. Pabbi var í rúm fjögur ár í gæsluvarðhaldi og af þeim í rúm tvö ár í einangrun. Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski 1974 1975 1977 1980 1997 1999 2000 2009 2011 2013 27. janúar 1974 Guðmundur Einarsson hverfur HREIN SNILLD Í ELDA- MENNSKUNA EKKERT MSG! ENGIN TRANSFITA ! ENGIN LITAREFNI! 19. nóvember 1974 Geirfi nnur Einarsson hverfur 20. desember 1975 Erla fyrst yfi rheyrð vegna hvarfs Guð- mundar 22. júní 2000 Endurupptöku- beiðni Erlu hafnað 19. desember 1977 Dæmt í málinu í sakadómi Reykjavíkur 22. febrúar 1980 Dæmt í málinu í Hæstarétti 15. júlí 1997 Fyrri endur- upptökubeiðni Sævars hafnað 18. mars 1999 Seinni endur- upptökubeiðni Sævars hafnað 1. maí 2009 Tryggvi Rúnar Leifsson lést 12. júlí 2011 Sævar Marinó Ciesielski lést 7. október 2011 Starfshópur um Guðmundar- og Geirfi nnsmál skip- aður af innanríkis- ráðherra 25. mars 2013 Skýrsla starfs- hópsins kynnt almenningi „Ég get ekki mikið sagt þegar svona stórmenni komast að þessari niðurstöðu og er því í vandræðum með að mótmæla þeim,“ segir Guðjón Skarphéðins- son, sóknarprestur á Staðastað. Hann sat í fjögur og hálft ár í fangelsi fyrir aðild sína að Geirfinnsmálinu. Í skýrslu nefndarinnar segir að það sé hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður Guðjóns, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, hafi verið falskur. Spurður hvort til greina komi að sækja bætur fyrir vistina á Kvíabryggju, segist Guðjón ekki vera kominn svo langt í lífinu að vera búinn að ákveða það. „Ég kann ekkert á peninga, en er það ekki venjan að mál fari einhverja svoleiðis leið? En ég get svo sem ekkert sagt um hvenær eða hvernig ég geri það. Ég er ekki með neinn lögfræðing, hann er dáinn og bróðir hans sem síðan varð lögfræðingurinn minn er líka dáinn, svo ég þori varla að biðja þann þriðja,“ segir Guðjón. „Ég geri ráð fyrir því að fólkið sem var þarna líka muni hafa uppi einhverjar aðgerðir og síðan muni þetta fljóta sína leið.“ Guðjón segir það ekki nýjar fregnir að framburður hans í málinu á sínum tíma hafi verið falskur, en hann efast um að hann muni lesa skýrsluna. „Ég hef enga ástæðu til að lesa þessa skýrslu, ég hef hana ekki undir höndum og þótt ég fengi hana efast ég um að ég myndi nenna að lesa hana.“ - sv ➜ Sat í fjögur og hálft ár í fangelsi fyrir vitnisburð sem nefndin metur falskan Íhugar að sækja bætur GUÐJÓN SKARP- HÉÐINSSON Erla Bolladóttir, einn sak- borninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, segir að niðurstaðan í skýrslu starfs- hóps innanríkisráðherra hafi ekki komið sér á óvart: „En ég gaf mér ekkert fyrirfram. Ég vonaðist eftir svona niðurstöðu. Þetta er mjög gleðileg niður- staða fyrir sakir réttlætisins.“ Aðspurð um þær leiðir sem starfshópurinn leggur til í framhaldi af rannsókninni segir Erla að hún hafi ekki skoðað þær niður í kjölinn. „Mér fyndist, miðað við það sem hefur verið lagt í málið til að ná þessari niðurstöðu, að þá væri ekki annað sæmandi en að stjórnvöld tækju þetta alla leið. Ég held að það sé vænlegra en að við færum enn og aftur af stað. Við erum orðin mjög þreytt,“ segir Erla. - þeb, shá ➜ Gleðilegt fyrir réttlætið Stjórnvöld eiga að fara alla leið ERLA BOLLADÓTTIR Hafþór Sævarsson, lögfræðinemi og sonur Sævars Ciesielski, segir það frábært að loksins sé komin viðurkenning frá hinu opinbera á því að játningar sakborninganna voru merkingarlausar. „Líka hversu grimmdarlegum aðferðum var beitt við rannsókn málsins. Pabbi var í rúm fjögur ár í gæslu- varðhaldi og af þeim í rúm tvö ár í einangrun. Það er grafalvarlegt mál og sorglegt að hann sé ekki hérna hjá okkur. Ég er hins vegar ánægður með að hans barátta skilaði árangri.“ - þeb, shá ➜ Sorglegt að Sævar sé ekki hér Barátta pabba skilaði árangri HAFÞÓR SÆVARSSON 10 SKÝRSLA STARFSHÓPS UM GUÐMUNDAR- OG GEIRFINNSMÁL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.