Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | FRÉTTIR | 11
AFSLÁTTUR AF
ELDSNEYTI Í DAG!
N1 KORTHAFAR FYLLA
Á BÍLINN OG BAUKINN Í DAG
N1 korthafar um allt land fylla á tankinn og bæta í sparibaukinn
um leið í dag því þeir fá 8 kr. afslátt af eldsneytislítranum.*
Þessu til viðbótar safna N1 korthafar að sjálfsögðu jafn mörgum
punktum og venjulega en einn punktur jafngildir einni krónu í öllum
viðskiptum við N1.
*A
thug
ið
að
hefð
b
und
in afsláttarkjö
r b
æ
tast ekki o
fan á sértilb
o
ð
d
ag
sins
WWW.N1.IS MEIRA Í LEIÐINNI
8 KR.
„Það voru mistök að sakfella þessa ein-
staklinga,“ segir Gísli Guðjónsson réttarsál-
fræðingur, sem vann að málinu með starfs-
hópnum og skrifaði heilan kafla í skýrsluna
ásamt Jóni Fr. Sigurðssyni.
Gísli hefur unnið að yfir þúsund málum
þar sem hann hefur þurft að leggja mat á
sannleiksgildi vitnisburða í sakamálum. Hann
segist aldrei hafa lagt eins mikla vinnu í neitt
mál og þetta.
Þá segir hann jafnframt að Guðmundar- og
Geirfinnsmálin séu einstök á heimsvísu, ekki
síst með tilliti til þess hversu lengi sakborn-
ingarnir sættu gæsluvarðhaldi. Það eigi sér
enga hliðstæðu, nema þá helst í Guantanamo
Bay-fangabúðum Bandaríkjamanna á Kúbu.
Gísli segir að þegar hann hafði farið í þaula
yfir öll gögn málsins hafi hann ekki verið í
nokkrum vafa um þá niðurstöðu að lítið mark
væri takandi á vitnisburðum sakborninganna.
Hluta af ástæðunni segir hann vera þá
að íslenska réttarkerfið hafi einfaldlega
ekki ráðið við svo flókið mál. „Málið var svo
flókið að íslenska kerfið réð ekki við það.
Þess vegna var fenginn þýskur sérfræðingur
[Karl Schütz] til aðstoðar. Ég held að það hafi
skemmt málið að fá hann inn í þetta. Það er
greinilegt að hans skoðun var sú að þessir
einstaklingar væru allir sekir og að hann
þyrfti að ná fram játningu.“ - sh
➜ Sakfellingin mistök, segir einn reyndasti réttarsálfræðingur heims
Hvergi nema í Guantanamo Bay
GÍSLI H. GUÐJÓNSSON
„Mér finnst eðlilegt að bíða eftir
niðurstöðu ríkissaksóknara, það er sá
farvegur sem menn hljóta að horfa
til núna,“ segir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra, um leiðirnar
þrjár sem starfshópurinn leggur til
í skýrslu sinni að hægt sé að fara í
kjölfarið.
„Í öðru lagi hljóta menn að bíða
eftir því hver vilji hinna sakfelldu
sjálfra er– hvort þeir vilja hafa frum-
kvæði að málinu. Og í þriðja lagi,
reynist þær leiðir torsóttar, hljótum
við að íhuga hitt– sem er lagafrum-
varpsleiðin.“
Ögmundur áréttar að hópurinn
telji eðlilegt að framhald verði á
málinu. „En hvort sem svo verður þá
tel ég að þessar lyktir núna marki
að mörgu leyti tímamót fyrir þá sem
hlut eiga að máli.“
Ögmundur segir að lögreglu-
og fangelsisyfirvöld munu nú fá
skýrsluna í hendur til yfirferðar, í því
skyni að kanna hvort brotalamirnar
sem afhjúpast í skýrslunni hafi allar
verið bættar síðan þá, eða hvort enn
þurfi eitthvað að gera í kerfinu. - sh
➜ Ráðherra bíður
Eðlilegt að
bíða eftir
saksóknara
Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksókn-
ari, segir að hún og fleiri saksóknarar
við embættið muni nú leggjast yfir
skýrslu starfshópsins og meta hvort
tilefni sé til að taka málið upp aftur.
Þau hafi þó ekki sett sér tímamörk
í því sambandi. „Það er nú ýmislegt
annað sem knýr dyra líka, en ætli við
reynum ekki að vera tilbúin með eitt-
hvað fljótlega eftir páska.“
- sh
➜ Saksóknari skoðar
skýrsluna
Eitthvað klárt
fljótlega eftir
páska
ÖGMUNDUR JÓNASSON
SIGRÍÐUR J. FRIÐJÓNSDÓTTIR
Reynist þessar leiðir
torsóttar, hljótum við við
að íhuga hitt – sem er laga-
frumvarpsleiðin
Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra
Málið var svo
flókið að íslenska
kerfið réð ekki við það.
Þess vegna var fenginn
þýskur sérfræðingur
[Karl Schütz] til að-
stoðar. Ég held að það
hafi skemmt málið að
fá hann inn í þetta.
Gisli Guðjónsson
réttarsálfræðingur