Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | FRÉTTIR | 13
VEIÐIVÖTN
Slasaðist á vélsleða
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð
út síðdegis á sunnudag vegna vélsleða-
slyss við Grænavatn í Veiðivötnum.
Maður sem ók fram af hengju kvartaði
undan verkjum og var illa áttaður.
Þyrlan var komin á staðinn um klukkan
17.00. Flogið var beint á Landspítalann
í Fossvogi þar sem var lent 17.40.
SLYS Meðlimir Flugbjörgunar-
sveitarinnar á Hellu björguðu
tveimur unglingsstúlkum sem
lent höfðu í sjálfheldu á Þríhyrn-
ingi fyrir hádegi á mánudag.
Stúlkurnar höfðu farið einar
í gönguferð á fjallið þegar þær
lentu í sjálfheldu í klettabelti og
hringdu þá eftir aðstoð.
Samkvæmt tilkynningu frá
Landsbjörg gekk vel að komast
að stúlkunum en björgunarmenn
fóru upp í fjallið og komu að þeim
ofan frá. Tryggðu þeir öryggi sitt
og stúlknanna með línum áður en
haldið var niður. Stúlkurnar voru
ómeiddar þegar að var komið en
þær voru að vonum skelkaðar
eftir ævintýrið. - hó
Björgunarveitir kallaðar út:
Unglingsstúlkur
í sjálfheldu
JEPPAR Meðlimir Flugbjörgunarsveitar-
innar á Hellu björguðu stúlkum úr sjálf-
heldu á Þríhyrningi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur í tvígang
komið upp um umfangsmikla
kannabisræktun á höfuðborgar-
svæðinu síðustu daga.
Karlmaður á fertugsaldri hefur
játað að hafa staðið að ræktun
í íbúðarhúsnæði í austurborg
Reykjavíkur þar sem lagt var hald
á 160 plöntur og átta kíló af kanna-
bisefnum. Ekki var búið í húsinu.
Þá hefur karl á fimmtugsaldri
játað ræktun í iðnaðarhúsnæði í
Kópavogi þar sem 125 plöntur voru
teknar. Þar segir lögregla miklu
hafa verið kostað til við að koma
upp ræktuninni. - óká
Lögregla upprætir kannabis:
Hald lagt á 185
plöntur og átta
kíló kannabiss
PLÖNTUR Lögregla minnir á að í „fíkni-
efnasímanum“ 800-5005 er tekið við nafn-
lausum ábendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ísrael skilar
skattgreiðslum
til Palestínu
1ÍSRAEL, AP Stjórnvöld í Ísrael ætla að hefja á ný greiðslur á
skattfé til palestínskra stjórnvalda.
Ísrealar hafa fryst greiðslurnar frá því
Palestína fékk áheyrnaraðild að Sam-
einuðu þjóðunum á síðasta ári.
Ekki kom fram í yfirlýsingu Ben-
jamins Netanyahu, forsætisráðherra
Ísraels, hversu háar upphæðir verða
færðar til Palestínu. Ísrael innheimtir
í hverjum mánuði skattgreiðslur
sem nema um 100 milljónir banda-
ríkjadala, sem samsvarar um 12,3
milljörðum króna, fyrir stjórnvöld í
Palestínu.
Flóttamenn fórust
þegar báti hvolfdi
við Jólaeyju
2ÁSTRALÍA Tveir fórust og tveir slösuðust lífshættulega þegar
báti með 95 flóttamenn innanborðs
hvolfdi undan ströndum Jólaeyju,
sem tilheyrir Ástralíu.
Skip áströlsku strandgæslunnar var
skammt undan þegar bátnum hvolfdi
og tókst skipverjum að bjarga öllum
um borð. Mikið er um að flóttamenn
frá Afganistan, Írak, Íran og Srí Lanka
reyni að komast til Jólaeyjar, sem er
nyrsta eyjan sem tilheyrir Ástralíu.
Ekki hefur verið upplýst um þjóðerni
þeirra sem voru í bátnum.
HEIMURINN
1
2
3
3 INDLAND Gestir hópast að 40 metra hárri styttu af guðinum
Búdda sem var vígð í garði í borginni
Rabong á Norður-Indlandi, skammt
frá landamærum Tíbet, í gær.
NORDICPHOTOS/AFP