Fréttablaðið - 26.03.2013, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | SKOÐUN | 17
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Ein helstu heilsufarsvandamál
sem þekkt eru í hinum vestræna
heimi, og þótt víðar væri leitað,
eru vandamál tengd stoðkerfi
okkar. Stoðkerfi er orð sem er
notað um beinin, auk vöðva- og
sinakerfi líkamans. Verkir og
óþægindi frá þessum svæðum er
einna algengast að valdi veikind-
um og fjarveru frá vinnustað. Það
er því afar mikilvægt að reyna
að draga úr álagi, hugsa um lík-
amsbeitingu okkar og vinna með
skipulegum hætti gegn aðstæð-
um sem geta haft slæm áhrif á
stoðkerfið.
Ein nálgunin er að framkvæma
svokallað áhættumat starfa, sem
á að gera reglubundið samkvæmt
lögum og reglum um heilsu- og
vinnuvernd, en þannig er mögu-
legt að nálgast vandamálin,
greina þau og vinna að úrbótum.
Það er þó ekki það eina sem er
mikilvægt því einstaklingarnir
sjálfir eru í lykilhlutverki þegar
kemur að því að koma í veg fyrir
veikindi tengd þessum svæðum.
Áhættuþættir tengdir stoðkerfa-
einkennum eru offita og yfirvigt,
hreyfingarleysi og lélegt þjálf-
unarástand auk vinnuumhverf-
isþátta.
Mjóbaksverkir eru afar algeng-
ir og geta verið margvíslegir,
allt frá vægum óþægindum til
snarpra verkja sem geta leitt
niður í annan eða báða fætur.
Þeir geta komið skyndilega við
átök eins og að lyfta eða bogra,
en einnig við slys. Slíkir verkir
geta orðið krónískir ef verkirnir
hafa staðið lengur en þrjá mánuði
samfleytt. Þá geta mjóbaksverkir
þróast við ranga líkamsbeitingu
eins og við setu eða langar stöður,
við burð og rangar æfingar. Ekki
má gleyma að ýmsir sjúkdómar
og kvillar geta einnig valdið slík-
um óþægindum og verkjum, en
helst ber að nefna slit og bólgu-
sjúkdóma, þrengingar í mænu-
gangi, liðskrið og svo auðvitað
beinþynningu og möguleikann á
krabbameini sem oftast er í formi
meinvarpa.
Besta leiðin
Í þeim tilvikum þar sem um
áverka er að ræða og verkir eru
mjög miklir eða einkenni eru frá
fleiri líffærakerfum en bakinu er
ráðlegt að leita læknis sem fyrst.
Sérstaklega ef um er að ræða
truflun á þvaglátum eða hægða-
losun, en slíkt bendir til mögu-
legs þrýstings á taugarætur eða
jafnvel mænu og mænusekk og
þarfnast frekari skoðunar.
Það sem í daglegu tali er kallað
þursabit getur framkallað mikil
óþægindi og jafnvel valdið því
að viðkomandi einstaklingur á
erfitt með að hreyfa og athafna
sig. Hið sama gildir um brjósklos,
sem er þrýstingur á taugarót eða
mænu, og í flestum tilvikum veld-
ur leiðniverk niður í þann fót eða
á það svæði sem taugin sinnir.
Mikilvægt er að greina vel á milli
þessara tveggja algengu vanda-
mála þar sem meðferð er ekki
sú sama og getur þurft að fram-
kvæma aðgerð hjá þeim sem þjást
af slæmu brjósklosi. Algengast
er þó, og sömuleiðis talin besta
leiðin, að nota sjúkraþjálfun,
bólgueyðandi lyf og tækla orsök
vandans sem getur verið fjölþætt.
Yfirleitt er sjúklingurinn vel mót-
tækilegur, en þetta getur reynt
á þolinmæðina og fæstir vilja
kveljast að óþörfu og getur það
leitt til togstreitu og ofmeðhöndl-
unar en það er vel þekkt í dag að
of oft hafi verið gripið til aðgerð-
ar vegna bakverkja.
Virk forvörn
Greiningarúrræði eru margvís-
leg, allt frá hefbundinni læknis-
skoðun að flókinni myndvinnslu.
Hið merkilega er þó að í flestum
tilvikum bætir myndgreining-
in litlu við áætlaða meðferð og
hefur fyrst og fremst í för með
sér aukinn kostnað, þó hún eigi
sannarlega rétt á sér og þurfi
að vera til staðar þegar skipu-
leggja skal aðgerð eða flóknari
meðferðir. En í flestum tilvik-
um dugir einföld læknisskoðun
til að átta sig á vandanum og þá
er einnig vel þekkt að einkenni
lagast oftar en ekki einfaldlega af
sjálfu sér, eða með minniháttar
aðstoð. Rannsóknir sýna að við
einföldum bakverkjum ætti að
hvílast sem minnst, frekar reyna
að hreyfa sig og draga þannig úr
bólgum og einkennum, og teygjur
og styrkjandi æfingar geta gert
gæfumuninn. En sökum þess
hversu algengir mjóbaksverkir
eru og í raun tímafrekur vandi
sem ekki er til nein töfralausn á
hafa komið fram fjölmargar með-
ferðir sem margar hverjar eru
góðar og gildar. Aðalatriði er að
greiningin sé rétt og að viðkom-
andi einstaklingur fái viðeigandi
meðferð og endurmat nái hann
ekki bata innan þess tímaramma
sem þykir eðlilegur. Best af öllu
er þó að stunda virka forvörn
gegn vandamálum sem þessum
með því að halda sér í kjörþyngd,
hreyfa sig reglubundið og stunda
rétta líkamsbeitingu við vinnu
hvort heldur sem það er erfiðis-
vinna eða sitjandi við skrifborð.
Mjóu bökin
Best af öllu er þó að
stunda virka forvörn
gegn vandamálum sem
þessum með því að halda
sér í kjörþyngd, hreyfa sig
reglubundið og stunda rétta
líkamsbeitingu við vinnu
hvort heldur sem það er
erfiðisvinna eða sitjandi við
skrifborð.
Í Morgunblaðinu 28. febrú-
ar sl. skrifar Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir
þingmaður grein sem hún
nefnir Frestun mennta-
stefnu og tíundar tillögur
frá fundi Samtaka atvinnu-
lífsins. Þar sagði að efla
þyrfti menntun, rannsókn-
ir og nýsköpun. Hún rifjar
líka upp gamlar tillögur
um að stytta námstíma til
stúdentsprófs og að efla
skuli iðn- og verknám til
að draga úr brotthvarfi
frá námi. Þingmaðurinn segir til-
lögurnar ekki nýjar því unnið hafi
verið að þeim í ráðherratíð sinni.
Hún segir það mikil mistök hjá
ríkisstjórninni að fresta gildis-
töku mikilvægasta hluta laganna
til 2015 sem gangi einmitt út á efla
iðn- og starfsnám, stytta námstím-
ann og minnka brotthvarf úr námi.
Ákvæði um nýbreytni
Í þeim hluta laganna sem skotið
var á frest eru tilgreind ákvæði um
nýbreytni í námsmati, fimm daga
lengingu starfstíma skóla, helstu
tegundir lokaprófa, aðalnámskrá,
námskrár og námsbrautalýsingar
skóla, starfsgreinaráð og vinnu-
staðanám. Þar eru engin markmið
tilgreind um að efla iðn- og verk-
nám, stytta námstíma og minnka
brotthvarf úr námi. Enda segja
lögin lítið um hvernig nemend-
ur eigi að vera menntaðir við lok
framhaldsskóla. Í lagafrumvörpun-
um var valin sú leið að festa ekki
niður lengd námstíma því hann
geti verið breytilegur frá upp-
hafi grunnskóla og til loka fram-
haldsskóla. Um þessa nálgun hefur
verið sátt enda í meira samræmi
við skráða og óskráða skólastefnu
hér á landi en einhliða inngrip í
lengd námstíma til stúd-
entsprófs.
Þegar þingmaðurinn
mælti fyrir lagafrum-
vörpunum í ráðherratíð
sinni kom fram að gildi
stúdentsprófs yrði áfram
óskorað. Áréttaði Alþingi
að gæði þess yrðu ekki
skert og það hefði áfram
þá stöðu að veita aðgang
að háskólanámi. Í vinnu
starfsgreinaráða við að
útfæra iðn- og verknám
síðan ríkir ekki sú hugs-
un að mennta fleiri nemendur
á skemmri tíma til lokaprófs úr
framhaldsskóla. En þegar kemur
að námstíma til stúdentsprófs er
vakin upp gamla tuggan um að
stytting námstíma minnki brott-
hvarf úr námi. Þessi fullyrðing
hefur hvorki verið rannsökuð né
studd rökum. Stytting námstíma
er ófrjó kerfisumræða, hún er
hvorki menntastefna né forgangs-
mál í menntamálum. Gagnlegra er
að standa með menntuninni í raun
og veru í stað þess að kasta fram
klisjum og fullyrðingum sem eiga
sér ekki stoð í lögunum. Þessu má
líkja við að atvinnulífið hafi dott-
ið út 2008, og síðan þá ekki fylgst
með þeirri þróun sem átt hefur sér
stað. Nú hefur ASÍ tekið höndum
saman við atvinnulífið við að móta
menntastefnu fyrir þá ríkisstjórn
sem tekur við eftir kosningar.
Þingmaðurinn sér ekkert athuga-
vert við að ASÍ og SA taki sér dag-
skrárvaldið! En að hlusta á sér-
fræðingana í skólunum nær ekki
upp á pallborðið.
Dýrar breytingar
Framhaldsskólalögin fela í sér
dýrar breytingar; kostnaður er
áætlaður á bilinu 1,3-1,7 millj-
arðar á verðlagi ársins 2008.
Þeir fjármunir hurfu í efnahags-
hruninu. Oft heyrist að lítill niður-
skurður hafi orðið í framhalds-
skólum landsins þar sem þeir séu
hluti af velferðarkerfinu. Þá er
vísað til hinnar margrómuðu for-
gangsröðunar í ríkisfjármálum.
Sú er ekki raunin og allt tal um
að skólunum hafi verið hlíft er
hrein blekking. Þetta veit fagfólk-
ið í skólunum. Staðreyndir sýna
svart á hvítu mikinn niðurskurð
allt frá 2004/2005 sem hleypur á
milljörðum. Afleiðingarnar eru
sístækkandi námshópar, minni
stuðningur við nemendur og víta-
hringur slæmra starfsskilyrða
svo að skólastarfið er komið í öng-
stræti. Orsakir brotthvarfs frá
námi eru flóknari en svo að skól-
unum sé bara um að kenna.
Mikilvægast að skila fénu
Kennarasamtökin hafa aldrei litið
á námstíma sem heilagt atriði.
Þvert á móti hafa þau lengi haft
þá áherslu að nemendum eigi að
bjóðast möguleikar á að ljúka
námi á mislöngum tíma og á mis-
munandi aldri. Mikilvægast fyrir
framhaldsskólana er að þeim verði
skilað því fé sem hefur verið rifið
innan úr þeim með niðurskurði á
löngum tíma. Framhaldsskóli fyrir
alla, fjölbreytt nám við hæfi, val-
kostir og stuðningur er mun þýð-
ingarmeira og miklu framar í for-
gangsröðinni en einhliða áhersla á
árafjöldann. Út úr þessari þröngu
og ófrjóu hugsun þarf að komast.
Framhaldsskólum ekki hlíft
MENNTUN
Aðalheiður
Steingrímsdóttir
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
➜ Þar eru engin markmið
tilgreind um að efl a iðn- og
verknám, stytta námstíma
og minnka brotthvarf úr
námi.
Reykjavík 25. mars 2013.
AÐALFUNDUR
Félags tæknifólks í rafiðinaði
verður haldinn að Stórhöfða 31
þann 3. apríl 2013 kl:17:00
Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt lögum félagsins
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3
Opið í dag 7.00–18.15
Eigum nóg til af humri,
sendum hvert á land sem er.
(Hótel, veitingastaðir og mötuneyti.
Vinsamlegast pantið í síma 777 2002)
Ógleymanleg stund í innanríkisráðuneytinu
Þegar ég kynntist Sævar fyrst var hann nýsloppinn úr fangelsi og
sýndi mér næstum feimnislega skjalabunka sem hann var byrjaður að
safna í.
„Ég ætla nefnilega að sanna sakleysi mitt,“ sagði hann.
Hann náði ekki að lifa það sjálfur, ekki frekar en Tryggvi Rúnar Leifs-
son, annar sakborninganna sem látinn er.
En að börnin þeirra og aðrir ástvinir fái loksins að upplifa svolítið
réttlæti, það er ósegjanlega dýrmætt.
Loksins er þessari gömlu martröð létt af þjóðinni.
http://blog.pressan.is/illugi/
Illugi Jökulsson
AF NETINU