Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 23

Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 23
1948 til 1965. Þetta er reyndar eina eintakið á Ís- landi. Mest er til af þeim í Bandaríkjunum og þá helst í Kaliforníu þar sem um þessa bíla er til sér- stakur sjónvarpsþáttur sem heitir eftir þeim sem hafa ráð á að safna svona gripum. Þessi bíll kost- aði á við fimm Thunderbird-bíla sömu árgerðar í svipuðu ástandi sem segir örlítið til um hvernig markaðurinn metur söfnunargildi bílsins.“ Handsmíðaður af þýskri nákvæmni „Þessir bílar voru og eru enn handsmíðaðir af þýskri nákvæmni og það voru framleiddir um það bil 75.000 eintök af 356-bílnum. Talið er að um helmingur þeirra sé enn til. Ólíkt flestum 50 ára gömlum bílum er verulega gaman að aka þess- um bíl,“ segir Einar. Eða eins og Kaninn segir; „Porsche 356 loves twisty roads“. Að sjálfsögðu er bíllinn afturhjóladrifinn og vélin er aftur í. Hún er af Boxer-gerð og alls ekki með neitt ofur- sprengirými, eða 1,6 lítra, en skilar samt 90 hest- öflum. Er það enn einn votturinn um mikla verk- fræðiþekkingu Þjóðverja, hvað þá ef þeir eru hjá Porsche. Sá sem hannaði 356-bílinn var Ferdin- and „Ferry“ Porsche, sonur Ferdinands Porsche er hannaði Volkswagen-bjölluna og var stofnandi Porsche-fyrirtækisins. Fór til heimahaganna í fyrra Í fyrra fór Einar með 356-bílinn góða til Frakk- lands með íslenska Porsche-klúbbnum. Siglt var með bílinn til Hamborgar og þaðan ekið til Frakk- lands, en einnig til höfuðstöðva Porsche í Þýska- landi og þær skoðaðar. Var það ógleymanlegt, sem og öll ferðin. S á elsti þeirra er af gerðinni Porsche 356 og sést hann hér við einn af gim- steinum íslenskrar náttúru, við Jökuls- árlón á fallegum degi. Bíllinn er af ár- gerð 1963 og ber týpunúmerið Porsche 356 B Super 90. Eigandi bílsins er Einar H. Sigurðsson, en hann hefur ekki átt bílinn ýkja lengi af 50 ára sögu hans, eða í sex ár. Kom til landsins árið 2007 Spurður hvernig og hvenær hann eignaðist þenn- an dýrgrip, sagði Einar. „Þessi bíll kom hing- að til lands það herrans ár 2007, þegar Íslending- ar gátu leyft sér enn þá smá lúxus, en það má víst ekki lengur. Porsche 356 er afar fáséður, jafnvel í Þýskalandi þar sem þeir voru smíðaðir á árunum BÍLARReynsluakstur Mitsubishi OutlanderHennessey Ford GT nær 430 km hraðaRússar ferðast um á fals-sjúkrabílum ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013 visir.is/bilar ELSTI PORSCHE-BÍLL LANDSINS Talsvert margir Porsche-bílar eru til á Íslandi, flestir af gerðinni Cayenne, en einnig þónokkrir sportbílar. PORSCHE 356 B SUPER 90 VÉL Er af Boxer-gerð 1,6 lítra, 90 hestöfl HÖNNUÐUR Ferdinand “Ferry” Porsche FRAMLEIDDIR BÍLAR 75.000 FRAMLEIÐSLUÁR 1948-1956 MYND: EINAR H. SIGURÐSSON LEGUR OG PAKKDÓSIR VAGNHÖFÐI 7 – SÍMI 5 17 5 000

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.