Fréttablaðið - 26.03.2013, Qupperneq 23
1948 til 1965. Þetta er reyndar eina eintakið á Ís-
landi. Mest er til af þeim í Bandaríkjunum og þá
helst í Kaliforníu þar sem um þessa bíla er til sér-
stakur sjónvarpsþáttur sem heitir eftir þeim sem
hafa ráð á að safna svona gripum. Þessi bíll kost-
aði á við fimm Thunderbird-bíla sömu árgerðar í
svipuðu ástandi sem segir örlítið til um hvernig
markaðurinn metur söfnunargildi bílsins.“
Handsmíðaður af þýskri nákvæmni
„Þessir bílar voru og eru enn handsmíðaðir af
þýskri nákvæmni og það voru framleiddir um það
bil 75.000 eintök af 356-bílnum. Talið er að um
helmingur þeirra sé enn til. Ólíkt flestum 50 ára
gömlum bílum er verulega gaman að aka þess-
um bíl,“ segir Einar. Eða eins og Kaninn segir;
„Porsche 356 loves twisty roads“. Að sjálfsögðu
er bíllinn afturhjóladrifinn og vélin er aftur í.
Hún er af Boxer-gerð og alls ekki með neitt ofur-
sprengirými, eða 1,6 lítra, en skilar samt 90 hest-
öflum. Er það enn einn votturinn um mikla verk-
fræðiþekkingu Þjóðverja, hvað þá ef þeir eru hjá
Porsche. Sá sem hannaði 356-bílinn var Ferdin-
and „Ferry“ Porsche, sonur Ferdinands Porsche
er hannaði Volkswagen-bjölluna og var stofnandi
Porsche-fyrirtækisins.
Fór til heimahaganna í fyrra
Í fyrra fór Einar með 356-bílinn góða til Frakk-
lands með íslenska Porsche-klúbbnum. Siglt var
með bílinn til Hamborgar og þaðan ekið til Frakk-
lands, en einnig til höfuðstöðva Porsche í Þýska-
landi og þær skoðaðar. Var það ógleymanlegt, sem
og öll ferðin.
S
á elsti þeirra er af gerðinni Porsche
356 og sést hann hér við einn af gim-
steinum íslenskrar náttúru, við Jökuls-
árlón á fallegum degi. Bíllinn er af ár-
gerð 1963 og ber týpunúmerið Porsche
356 B Super 90. Eigandi bílsins er
Einar H. Sigurðsson, en hann hefur
ekki átt bílinn ýkja lengi af 50 ára sögu hans, eða
í sex ár.
Kom til landsins árið 2007
Spurður hvernig og hvenær hann eignaðist þenn-
an dýrgrip, sagði Einar. „Þessi bíll kom hing-
að til lands það herrans ár 2007, þegar Íslending-
ar gátu leyft sér enn þá smá lúxus, en það má víst
ekki lengur. Porsche 356 er afar fáséður, jafnvel í
Þýskalandi þar sem þeir voru smíðaðir á árunum
BÍLARReynsluakstur Mitsubishi OutlanderHennessey Ford GT nær 430 km hraðaRússar ferðast um á fals-sjúkrabílum
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
visir.is/bilar
ELSTI PORSCHE-BÍLL LANDSINS
Talsvert margir Porsche-bílar eru til á Íslandi, flestir af gerðinni Cayenne, en einnig þónokkrir sportbílar.
PORSCHE
356 B SUPER 90
VÉL
Er af Boxer-gerð
1,6 lítra, 90 hestöfl
HÖNNUÐUR
Ferdinand “Ferry”
Porsche
FRAMLEIDDIR BÍLAR
75.000
FRAMLEIÐSLUÁR
1948-1956
MYND: EINAR H. SIGURÐSSON
LEGUR OG PAKKDÓSIR
VAGNHÖFÐI 7 – SÍMI 5 17 5 000