Fréttablaðið - 26.03.2013, Síða 25
FERÐAHÝSI
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Kynningarblað
Hjólhýsi, fellihýsi, húsbílar,
tjaldvagnar, heimasmíði,
reynslusögur og góð ráð.
Aukahlutaverslun ok kar er sú stærsta á landinu og hafa viðskiptavinir haft á
orði að hún standist samanburð
við álíka verslanir erlendis,“ segir
Arnar Barðdal, framkvæmdastjóri
Víkurverks í Víkurhvarfi 6. Hann
segir úrval aukahluta í versluninni
mjög mikið, og má þar nefna borð,
stóla og annan vinsælan viðlegu-
búnað. „Þau hafa til dæmis sleg-
ið í gegn O-grillin síðastliðin þrjú
ár. Hönnun þeirra er einstaklega
vel heppnuð en grillin hafa feng-
ið hönnunarverðlaun fyrir útlit
og notagildi,“ segir Arnar og bætir
við að grillin séu fyrirferðarlítil og
henti því vel í ferðavagna sem og
heima. Grillin eru að sögn Arnars
fljót að hitna og hitna jafnt. „Allir
sem hafa keypt O-grill eru á einu
máli – þetta eru snilldar grill.“
Nýjungar í ár
Víkurverk er ávallt vakandi fyrir
nýjungum og f lytur inn vörur
sem henta þörfum viðskipta-
vina á hverjum tíma. Sem dæmi
um nýjung í ár má nefna Sprite –
lítil og létt tveggja rúma hjólhýsi.
„Þau henta vel fyrir þá sem eru
með minni bíla. Húsin eru lítil að
utan en stór að innan, rúmgóð og
vel skipulögð,“ lýsir Arnar en hjól-
hýsin fást í tveimur gerðum til að
byrja með. Húsin eru búin ríku-
legum staðalbúnaði. „Þetta eru
virkilega vel hönnuð hús og á frá-
bæru verði,“ segir hann.
Kúnninn hannar vagninn
Víkurverk þjónustar afar breiðan
viðskiptavinahóp. Ekki aðeins eru
seldir nýir ferðavagnar því Víkur-
verk tekur einnig notaða ferða-
vagna í umboðssölu, en það er í
dag stór hluti af starfsemi fyrir-
tækisins. Þá sér Víkurverk einnig
um tjaldvagnaleigu, meðal annars
fyrir VR og fleiri verkalýðsfélög.
Víkurverk selur tjaldvagna, felli-
hjólhýsi, hjólhýsi og húsbíla.
„Mjög algengt er að við tökum
gamla vagninn upp í nýjan,“ segir
Arnar og bendir á að þeir sem séu
að byrja í ferðamennskunni kaupi
oftast notuðu vagnana. „Þeir sem
mestu reynsluna hafa í bransan-
um og ætla að endurnýja ferða-
vagninn panta nýjan á haustin og
veturna,“ segir Arnar og bendir á
að þannig geti viðskiptavinurinn
hannað vagninn sinn að mörgu
leyti sjálfur. Einnig getur Arnar
þess að auðvelt er að fá lán vegna
ferðavagnakaupa þannig að allir
geta eignast sinn ferðavagn, nýjan
sem notaðan.
Arnar segir auðvelt að
ferðast með hjólhýsi. Þó sé
einnig orðið algengt að fólk
kaupi sér stærri hús og fast-
setji þau á sama stað yfir
sumarið og jafnvel allt árið.
Reynslumiklir viðgerðarmenn
Verkstæði Víkurverks þjónustar
allar gerðir ferðavagna ásamt því
að annast standsetningu nýrra
vagna. „Á verkstæðinu vinna
miklir reynsluboltar og snilling-
ar sem geta leyst nánast hvaða
vandamál sem upp koma,“ segir
Arnar. Verkstæðið annast öll inn-
kaup á varahlutum fyrir umboð
Víkurverks og almennar vara-
hlutapantanir í aðrar gerðir vagna.
Einnig annast verkstæðið allar
almennar bílaviðgerðir, s.s. tíma-
reimaskipti, bremsuviðgerðir og
smurþjónustu. „Við höfum nýlega
byrjað á þeirri nýjung að f lytja
inn og festa dráttarbeisli á bíla,“
upplýsir Arnar og hlakkar til góðs
ferðasumars.
Víkurverk, allt í ferðalagið
Starfsmenn Víkurverks hafa áralanga reynslu af þjónustu við fólk sem ferðast innanlands. Víkurverk leggur metnað sinn í að vera
ávallt með gæðavörur í úrvali og þjónusta viðskiptavini sem best. Víkurverk selur hjólhýsi, fellihýsi, húsbíla og tjaldvagna og ýmsa
aukahluti. Fyrirtækið tekur að sér sölu notaðra ferðavagna og rekur verkstæði fyrir allar gerðir ferðavagna.
Víkurverk, að Víkuhvarfi 6, leggur metnað sinn í að vera ávallt með gæðavörur í úrvali og þjónusta viðskiptavini sem best.
„Hobby eru vinsælustu hjólhýsin í heimi,“ segir
Jóhannes Þórarinsson, innkaupastjóri Víkurverks
sem fer með umboð á sölu Hobby-hjólhýsanna.
Jóhannes segir Íslendinga hafa tekið ástfóstri við
Hobby vegna fallegrar hönnunar og ekki síst nota-
gildis. „Þeir sem kaupa Hobby vilja ekkert annað.
Þeir kaupa Hobby aftur og aftur,“ segir hann.
Að sögn Jóhannesar hefur það alltaf verið tak-
mark Hobby að vera skrefi á undan öðrum og
láta þannig draum fólks um fullkomið frí rætast.
„Hobby hefur alltaf verið í fararbroddi varðandi
nýjungar. Þeir voru fyrstir með galvaníseraða
grind, fyrstir með salerni sem var losað utan frá og
fyrstir til að hanna geymslu aftan á hjólhýsunum
sem hægt var að opna utan frá,“ lýsir hann.
Hobby skarar fram úr þegar kemur að hönn-
un hjólhýsa og húsbíla og hefur hlotið fjölmörg
verðlaun frá fagaðilum og fagtímaritum. „Hobby
Premium er algjörlega ný lína sem kom á markað
árið 2012. Með Premium-línunni festir Hobby sig
í sessi sem frumkvöðull í hönnun sem aðrir fram-
leiðendur taka sér til eftirbreytni,“ segir Jóhann-
es, en Hobby Premium hjólhýsin fengu evrópsku
hönnunarverðlaunin annað árið í röð í fyrra.
Íslendingar kjósa flestir þægindi á sínum ferða-
lögum og æ fleiri festa því kaup á hjólhýsum. Jó-
hannes segir þrjá af hverjum fjórum sem kaupa
sér hjólhýsi á Íslandi kaupa Hobby. „Gæði, glæsi-
leiki og gott verð einkenna Hobby-hjólhýsin,“ segir
Jóhannes að lokum.
Hobby – vinsælustu hjólhýsin
Jóhannes Þórarinsson, innkaupastjóri Víkurverks, fyrir framan Hobby-hjólhýsi. MYND/PJETUR
O-grillin hafa slegið í gegn
síðastliðin þrjú ár.