Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 29
KYNNING − AUGLÝSING Ferðahýsi26. MARS 2013 ÞRIÐJUDAGUR 5
Á ferðalögum er jafn mikil-
vægt að vera góður granni og að
gleyma ekki góða skapinu. Til-
litssemi ætti að vera í hávegum
höfð og best að kynna sér um-
gengnisreglur tjaldsvæða við
komu. Hafið eftirfarandi í huga
til að eiga farsælt sambýli við
aðra gesti tjaldsvæðisins:
■ Komið ykkur fyrir á réttum
stöðum innan tjaldsvæðisins.
■ Hafið hávaða og skark í lág-
marki.
■ Losið ykkur við vatnsúrgang
á þar til gerðum stöðum, fjarri
náttúrulegum vatnsuppsprett-
um.
■ Notið lífræna sápu, þvotta-
efni og uppþvottalög sem brotnar
auðveldar í náttúrunni.
■ Sýnið náttúrunni virðingu
og gætið þess að valda ekki
skemmdum á nærliggjandi
gróðri.
■ Haldið ykkur á merktum
gönguleiðum við náttúruskoð-
un. Það raskar ekki jarðvegi og
verndar gróður.
■ Gætið þess að allt rusl og úr-
gangur fari í ruslagám við brott-
för.
■ Hafið hundinn í ól. Eigend-
ur eru ábyrgir fyrir gæludýrum
sínum á tjaldsvæðum. Hundgá og
óhirtur hundaskítur er óþolandi
fyrir aðra gesti tjaldsvæða.
■ Færið ekki nestisborð tjald-
svæða í leyfisleysi.
■ Hófsemi og tryggur nætursvefn
er lykill að góðu sambýli á tjald-
svæðum.
■ Hreinsið eldstæði og útigrill
tjaldsvæða við brottför.
Vertu góður nágranni
Tillitsemi ætti að vera í hávegum höfð á tjaldsvæðum enda fólk í miklu nábýli.
Við f lytjum inn ný Hobby- hjólhýsi frá Þýskalandi. Húsin eru v iðurkennd
gæðavara og vel búin og eru að
sjálfsögðu seld með ábyrgð fyrir
framleiðslugöllum eins og lög
gera ráð fyrir,“ segir Magnús
Óskars son annar eigandi Bíláss,
bílasölu Akraness.
Bílás á 30 ára starfsafmæli í ár
en fyrirtækið er í eigu bræðranna
Magnúsar og Ólafs Óskarssona.
Það hefur starfað frá árinu 1983,
að mestu við sölu bíla en sala á
notuðum ferðavögnum hefur þó
verið stór hluti af rekstrinum.
„Reynslan af þeim viðskiptum
er orðin ágæt,“ segir Magnús. „Af
hjólhýsunum tókum við í fyrstu
inn hús eftir pöntunum en það
fór hins vegar mikill tími í til-
boðsgerð í kringum það og pant-
anir voru færri en við reiknuðum
með. Við ákváðum því að taka
inn nokkur hús á síðasta ári og
þau seldust öll. Við slógum því til
og höfum haldið innflutningi á
ferðahýsum áfram. Þá höfum við
einnig verið að prófa okkur áfram
með aukahluti eins og markísur
og sólarsellur. Verðið hjá okkur er
gott þar sem við erum með litla
yfirbyggingu á starfseminni,“
útskýrir Magnús.
Bílás fer einnig með umboð
á nýjum bílum fyrir Öskju, BL
og Heklu. Magnús segir líklega
óvíða eins mikið úrval ökutækja á
einum stað. „Það er upplagt fyrir
höfuðborgarbúa að kíkja hingað á
Skagann, og ég segi nú stundum
í gamni að Reykjavík sé í úthverfi
Akraness. Hér er líka sérhæfð
ísbúð ásamt góðum verslunum
og einnig tjaldaðstaða með góðri
þjónustu. Markaðssvæði okkar er
öll landsbyggðin. Við erum fullir
bjartsýni á framhaldið þrátt fyrir
nokkra óvissu í þjóðmálunum.“
Nánari upplýsingar á w w w.
bilas.is.
Eitt mesta úrval
ökutækja á einum stað
Bílás, bílasala Akraness, fagnar þrjátíu ára starfsafmæli í ár. Þar fást ekki
bara bílar heldur flytur fyrirtækið inn hágæða ferðahýsi á góðu verði.
Magnús
Óskarsson segir
eitt mesta úrval
ökutækja lands-
ins að finna á
einum stað hjá
Bílás.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Heimili að
heiman
Fellihýsi, húsbílar og hjólhýsi bjóða upp á
heimililega stemningu þegar heimilislífið er fært
úr stað. Það er notalegur griðastaður í villtri
náttúrunni og hægt að gera hann enn vistlegri
með hlýlegum snúningi.
Ávextir í skál eru sannkölluð eldhúsprýði
og hvetja ferðafólk til að fá sér hollan bita
á milli mála.
Kaffi er aldrei eins gott í plastmálum. Ljúf
uppáhelling í ekta krúsum gefur himneskt
andrúmsloft í ferðahýsið.
Gítar er ómissandi ferðafélagi enda skapar huggulegt gítarspil einstök notalegheit á
ferðalögum.
Á morgnana er
náðugt að geta kveikt á
útvarpinu og hlustað á
veðurspána og ljúfa tóna.
Mun heimilislegra er að bera sælgæti fram í fallegri skál en umbúð-
unum þegar gesti ber að garði.
Gamaldags spilastokkur
þjappar fólki saman og
eykur enn á yndi og gleði
samverustundanna.
Rómantískir
púðar gera ferðahýsi að sann-
kölluðu heimili í náttúrunni.
Fersk blóm í vasa skapa heimilislegan blæ
og gleðja bæði augu og anda ferðalanga.
Mjúkt og hlýtt teppi ætti að vera staðalbúnaður í öllum ferða-
hýsum og ávallt til taks fyrir kósí samverustundir undir heiðum