Fréttablaðið - 26.03.2013, Qupperneq 38
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT
Vegna útfarar Unnar Benediktsdóttur
verða Meba/Rhodium í Kringlunni
og Smáralind lokaðar í dag 26. mars
frá kl. 12-15.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
HILMARS KRISTJÁNS BJÖRGVINSSONAR
lögmanns og fv. forstjóra
Innheimtustofn unar sveitarfélaga,
Fögrubrekku 27, Kópavogi.
Rannveig Haraldsdóttir
Haraldur Arason Helen Hreiðarsdóttir
Björn Stefán Hilmarsson Laufey Fjóla Hermannsdóttir
Valdimar Héðinn Hilmarsson
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
MAGNEA HALLDÓRSDÓTTIR
Bragagötu 29,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
23. mars sl. Hún verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju í Reykjavík miðvikudaginn
27. mars kl. 15.00. Blóm og kransar
eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Kvæðamannfélagið Iðunni.
Reynir Grímsson Kari Grimsby
Lárus Halldór Grímsson
Bára Grímsdóttir Chris Foster
Helgi Grímsson Sigrún Sigurðardóttir
Guðrún Sesselja Grímsdóttir Hermann Sæmundsson
og barnabörn.
Kærar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
FRIÐLEIFS JÓHANNSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
deild L-2 á Landakotsspítala fyrir frábæra
umönnun og hlýja nærveru sem hann varð
aðnjótandi á meðan hann dvaldi þar.
Snjólaug Sigurðardóttir
Jóhann Sveinn Friðleifsson Íris Stefánsdóttir
Sigurður Ingi Friðleifsson Brynhildur Bjarnadóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN EINARSSON
fyrrverandi kennari, Hjarðarhaga 26,
lést föstudaginn 22. mars. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
3. apríl, klukkan 15.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð Sigurlaugar Margrétar
Pétursdóttur, reikn. 512-14-401370, kt. 530511-0140.
Hulda Hjörleifsdóttir
Ingveldur Sveinbjörnsdóttir Jón Sigurðsson
Hjörleifur Sveinbjörnsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ágústa Sveinbjörnsdóttir Magnús S. Magnússon
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir Össur Skarphéðinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐNI EINAR GESTSSON
Hlaðbæ 10, Reykjavík,
andaðist á líknardeildinni í Kópavogi
11. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Guðbjörg Margrét Sigurðardóttir
Jóhannes Guðnason Sigríður Sigurðardóttir
Guðmundur Hákon Guðnason Guðrún Sigurbjörg
Guðmundsdóttir
Egill Guðnason
Sjöfn Guðnadóttir Snorri Hermannsson
Stefanía Hrönn Guðnadóttir
afabörn og langafabörn.
Innlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
HELGA JÓNSSONAR
frá Reykjanesi,
Hlíðarvegi 29, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans fyrir kærleiksríka og góða
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
María Jónsdóttir
María Haraldsdóttir
Sigurlaug E. Rögvaldsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
BJARKAR KRISTINSDÓTTUR
Þorláksgeisla 27, Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
á kvenlækningadeild 21A fyrir einstaka alúð
og umhyggju.
Þröstur Þorvaldsson
Kristinn Andri Þrastarsson Dagný Ingadóttir
Sólveig Þrastardóttir Grétar Þór Sæþórsson
barnabörn og systkini.
Þökkum af alhug alla hlýju og vináttu við
HALLDÓR ÓLAFSSON
og okkur fjölskylduna. Sérstakar þakkir til
starfsfólks á deild 13G á Landspítalanum og
vina og ættingja er heimsóttu hann.
Guð blessi ykkur öll.
Erla Björgvinsdóttir
Hildur Halldórsdóttir Jónas Kristjánsson
Ólafur Brynjar Halldórsson
Halldór Jónasson Helga Jónasdóttir
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur,
frændi og vinur,
ÖRVAR ARNARSON
Kambaseli 53, Reykjavík,
lést af slysförum í Flórída, laugardaginn
23. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Örn Karlsson Ingibjörg Ósk Óladóttir
Ingólfur Arnarson Áslaug Harðardóttir
Þórhalla Arnardóttir Kolbeinn Guðjónsson
og systkinabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR
forvörður,
Austurbrún 2,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
22. mars sl. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurjón Þ. Ásgeirsson
Hlynur V. Ásgeirsson Patricia Bono
Þórunn H. Óskarsdóttir Sigurður A. Jónsson
Hrafnkell S. Óskarsson Arndís Huldudóttir
Margrét L. Óskarsdóttir Rúnar Salvarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
AUÐUR GARÐARSDÓTTIR
Bárugötu 35, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 26. mars,
kl.15.00.
Jóhannes Bergsveinsson
börn og barnabörn..
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Tómas J. Knútsson kafari hefur bar-
ist fyrir því um árabil að strendur
landsins séu hreinsaðar og tekið þátt
því sjálfur. Nú hefur hann fært úr kví-
arnar og er kominn í undirbúnings-
hóp frjálsra félagasamtaka sem ætla
að standa fyrir hreinsunarátaki við
strendur Miðjarðarhafsins.
„Það var þannig mál með vexti að
ég flutti fyrirlestur um Bláa herinn á
ráðstefnu samtakanna Lets do it! sem
haldin var í Lettlandi. Þegar ég var
búinn að segja þeim frá starfinu hér og
kynna Ísland fyrir þeim var ég beðinn
um að koma í undirbúningshóp átaks
sem hefur það að markmiði að virkja
íbúa í löndunum sem umkringja Mið-
jarðarhafið,“ segir Tómas, sem fékk
það hlutverk að tengja Lets do it! og
kafarasamtökin Padi. „Við stefnum á
það að halda aðalhreinsunardag í sept-
ember og vonandi gengur það eftir.“
Tómas hefur lengi haft áhuga á
umhverfismálum. „Ég rak köfunar-
fyrirtæki um tíma og ofbauð ruslið
neðansjávar. Loks tók ég af skarið og
stóð fyrir hreinsunarátaki sjálfur og
sú vinna vatt upp á sig.
Bæði fékk ég til liðs við mig fólk
til að taka þátt í hreinsun stranda hér
á landi og svo hef ég verið iðinn við
það að minna sveitarfélögin á skyldu
sína gagnvart umhverfinu. Og það er
ekki hægt að segja annað en að þau
hér á Reykjanesi hafi sýnt mér mikinn
skilning,“ segir Tómas sem býr í Sand-
gerði. - sbt
Hreinsunarátak við
Miðjarðarhaf í bígerð
Tómas J. Knútsson, forsprakki Bláa hersins, vinnur nú að því að setja hreinsunarátak á
laggirnar sem hefur það að markmiði að hreinsa strendur Miðjarðarhafsins.
TÓMAS J.
KNÚTSSON
Undirbýr
hreinsun
Miðjarðar-
hafsstranda.
MYND /HILMAR
BRAGI BÁRÐARSON
Félagasamtökin Blái herinn sem Tómas J.
Knútsson stofnaði árið 1995 hefur sinnt
margvíslegum umhverfisverkefnum.
Meðal annars:
■ Skipulagt og framkvæmt yfir 80
hreinsunarverkefni í nokkrum sveitar-
félögum á landinu.
■ Tekið þátt í nokkrum tugum fyrirlestra
um umhverfismál.
■ Heimsótt tugi leikskóla, grunnskóla
og fjölbrautarskóla og haldið bæði fyrir-
lestra og sýnt sjávardýr til fróðleiks fyrir
yngstu kynslóðirnar.
■ Rætt við alla umhverfisráðherra frá því
að embættið var stofnað og barist fyrir
grænni byltingu og sjálfbærni á Íslandi.
■ Hreinsað yfir 1000 tonn af alls kyns
rusli og drasli úr umhverfi okkar, aðal-
lega sjávarströndinni, opnum svæðum
og höfnum landsins. Þar af eru um 100
tonn af rafgeymum sem safnað hefur
verið og lágu bak við verkstæði,úti í
móa eða annars staðar (888 tonn af
1.000 tonnum koma úr landi Reykja-
nesbæjar).
■ Komið því til leiðar að nokkur verk-
stæði safna nú rafgeymum í viður-
kennd ílát frekar en að rafgeymar liggi
eins og hráviði um allar trissur.
■ Hefur hreinsað af hafsbotni yfir 300
dekk og 100 rafgeyma.
Heimild: blaiherinn.is
Blái herinn 18 ára