Fréttablaðið - 26.03.2013, Qupperneq 40
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Álfrúnar
Pálsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. lítill, 6. tveir eins, 8. kk. nafn, 9.
fuglahljóð, 11. verslun, 12. ávítur, 14.
ofsareiður, 16. komast, 17. sjáðu, 18.
hnoðað, 20. frá, 21. skjóla.
LÓÐRÉTT
1. skrifa, 3. skóli, 4. fljótsbakka, 5. bók,
7. fífla, 10. erfiði, 13. stígandi, 15. skúr,
16. gogg, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. smár, 6. kk, 8. ari, 9. rop,
11. bt, 12. ákúra, 14. klikk, 16. ná, 17.
sko, 18. elt, 20. af, 21. fata.
LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. ma, 4. árbakka,
5. rit, 7. kokkála, 10. púl, 13. ris, 15.
kofi, 16. nef, 19. tt.
Ég er
ósýnilegur!
Óóó...
sýnilegur!
Hm?
Hver
sagði
það?
Ingen
sér mig!
Er
einhver
þarna?
Adios aular!
Ég útskrifa
mig sjálfur!
Furðulegt!
Ég er viss
um að ég
heyrið ein-
hverja rödd!
Nei! Neei!
Ósýnilegur!
Rauði
hnappurinn...
koma svoo!
Í síðustu viku eyddi ég nokkrum afbragðs-góðum túristadögum í Skotlandi. Það
er nú varla í frásögur færandi nema fyrir
þær sakir að Skotland kom mér skemmti-
lega á óvart. Ég sá ekki einn einasta mann
í skotapilsi en bruggaði mitt eigið viskí. Ég
fékk að fylgjast með landsliðsæfingu Skota
í knattspyrnu. Mér var sagt að þeir væru
eins og við, vanari að tapa en vinna lands-
leiki. Þrátt fyrir að taka á móti mér með
hvítum snjóflygsum og köldu roki þegar
ég bjóst við að vera á leiðinni í smá vor-
stemningu náðu Skotarnir sjálfir að hlýja
mér með almennilegheitum. Glaðlyndir
og kurteisir upp til hópa, eiginlega
þannig að kaldi Íslendingurinn vissi
ekki hvernig við ætti að bregðast á
köflum.
BÚÐASTARFSMENN tóku
á móti mér með bros á vör og
splæstu iðulega í kveðjuna „Sæl
góða mín, hvernig hefurðu það í
dag?“ Þegar fullkomlega ókunn-
ugur einstaklingur vill vita
hvernig þér líður er ekki
annað hægt en svara með
góðu brosi og jákvæðn-
ina að vopni. Götusalinn á
horninu vinkaði og brosti
án þess að reyna að selja
mér eintak, þrátt fyrir
bítandi kuldann í gráum
hversdeginum.
MERKILEGUST þótti
mér samt skiltamenn-
ingin í Skotlandi. Aðvörunarskilti eru ein-
staklega kurteisleg og gildir þá einu hverju
þeim er ætlað að banna. Hver mundi voga
sér að kveikja sér í sígarettu inni í leigu-
bíl þegar búið er að koma notalegu skilti
fyrir við hurðina þar sem stendur „Okkur
þætti vænt um ef farþegar myndu láta það
vera að kveikja sér í sígarettu í þessum
bíl. Takk kærlega fyrir.“ Í lyftunni á hótel-
inu var svipað skilti sem greindi frá því
að reykingar innan veggja hótelsins væru
ekki leyfðar, nema viðkomandi vildi borga
mörg pund fyrir. „Við minnum á að ef þú
kveikir þér í sígarettu inni á hótelinu gæti
það orðið dýrasta sígaretta lífs þíns því þá
neyðumst við til að rukka þig um 150 pund.
Það er því best fyrir þig að láta það vera.“
ÓSJÁLFRÁTT fór ég að hugsa um
aðvörunarskiltin hérna heima og áttaði
mig á því að þau búa öll yfir frekjuleg-
um undirtóni miðað við vinalegu skosku
skiltin. „Reykingar bannaðar.“ „Bannað
að leggja.“ „Akstur bannaður.“ „Slökktu
á farsímanum.“ Miðað við skosku skiltin,
sem eru eiginlega eins og vinsamleg til-
mæli, verða íslensku skiltin bara að leið-
inlegum skipunum þegar þau eru lesin
upphátt. Kannski færri myndu stelast til
að leggja í fatlaðrastæði við Kringluna
ef skilaboðin væru á þessa leið: „Kæri
viðskiptavinur, okkur þætti vænt um
að þú sýndir þá kurteisi að skilja þetta
stæði eftir fyrir þá sem þurfa á því að
halda, enda er styttra að innganginum
héðan. Takk kærlega fyrir hugulsem-
ina.“
Kurteisar aðvaranir
FYRIR BÖRNIN EFTIR BÖRNIN Svona er dagskráin...
Ó nei!
Helgin er komin!
VINNUMIÐLUN
Ég vann
síðast við
ljósauppsetningar.
Hvað ertu að
gera?
Ég er að hanna
draumahúðflúrið
mitt.
Ég vil fá eitthvað hérna á bakið
sem lýsir þeirri andlegu reynslu
sem ég á svo erfitt
með að tjá og túlka
með orðum.
Ég er að hugsa um
logandi smáhunda, en
þetta má ekki vera
of augljóst.
Ég myndi
ekki hafa
áhyggjur
af því.
Loksins!
Helgin er
komin!
Meðal efnis í blaðinu eru siðir og venjur,
veislumatur, förðun, brúðkaupsmyndir ásamt
ýmsu skemmtilegu tengdu brúðkaupinu.
Tryggið ykkur pláss sem allra fyrst.
Umsjón auglýsinga í Brúðkaupsblaðið eru:
Elsa • s: 512-5427 • elsaj@365.is
Jóna María • s: 512-5473 • jmh@365.is
BRÚÐKAUPSBLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
KEMUR ÚT MIÐVIKUDAGINN 27. MARS