Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 42
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26
➜ Wagner var frægur fyrir að pota í eiginkonur bestu vina sinna. Mathilde
Wesendonck var ein þeirra, hann skrifaði þessa tónlist henni til heiðurs.
„Þetta eru Wesendonck-söngvar Wagners sem ég ætla að
syngja við undirleik Antoníu Hevesi píanóleikara. Afskap-
lega falleg ljóð og tilfinningarík,“ segir Elsa Waage mezzo-
sópran, spurð út í efnisskrá hádegistónleikanna í dag í
Norðurljósasal Hörpu. Hún segir söngvaflokkinn eitt
þekktasta tónverk Wagners fyrir utan óperurnar. „Wagner
var frægur fyrir að pota í eiginkonur bestu vina sinna.
Mathilde Wesendonck var ein þeirra, hann skrifaði þessa
tónlist henni til heiðurs við ljóð eftir hana og undiraldan
leynir sér ekki,“ lýsir Elsa og bætir við. „Það er ekki margt
sem passar að syngja á undan og eftir Wesendonck-ljóðun-
um, svo þau henta mjög vel á stuttum hádegistónleikum.“
Elsa kveðst hafa búið á Ítalíu í tæp tuttugu ár en flutt
til Íslands rétt fyrir jólin 2011. „Ég átti ítalskan mann en
missti hann sumarið 2009. Eftir það var ég ein með dóttur
mína Júlíu á unglingsaldri og við ákváðum að flytja heim.
Hún fór beint í menntaskóla og er í deild í MH þar sem hún
fær kennslu á ensku,“ segir Elsa, sem segir þær mæðg-
ur þó hafa viðhaldið íslenskunni með spunasögum meðan
þær bjuggu úti. „Á kvöldin vorum við með spunasögur
um sömu karakterana og þyrftum eiginlega að skrifa um
þá bók,“ segir hún glaðlega. „Að hafa þurft að hugsa á
hverjum degi pínulítið á íslensku það hefur hjálpað henni.“
Elsa nam fyrst söng hjá Elísabetu Erlingsdóttur, við
Tónlistarskólann í Reykjavík. Leið hennar lá til Amster-
dam og síðar til Washington þar sem hún lauk BM-gráðu
við Catholic University Of America. Hún byrjaði starfs-
ferilinn vestanhafs en hefur sungið víða um heim á undan-
förnum árum við góðan orðstír. Eitt af aðalhlutverkunum
í Il Trovatore í Íslensku óperunni var í hennar höndum
síðasta haust og var hún tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna fyrir frammistöðu sína. Tónleikarnir í
Norðurljósasal Hörpu hefjast klukkan 12.15 í dag. Frítt er
inn, í boði Íslensku óperunnar. Það finnst Elsu frábært.
„Músíkin þyrfti að vera ókeypis fyrir alla sem oftast,“
segir hún. gun@frettabladid.is
„Það var dálítið erfitt að velja
uppáhaldslög úr þessu fimm
kvölda prógrammi frá í fyrra, en
við erum búin að komast að niður-
stöðu og setja saman rosa flott
prógramm,“ segir söngkonan Jana
María um dagskrá tónleika sinna á
Café Rosenberg í kvöld.
Prógrammið sem Jana María er
að vísa til var tónleikaröð í Salnum
í fyrravetur undir nafninu Söng-
fuglar en þar voru flutt þekktustu
lög íslenskra dægurlagasöngv-
ara. Jana María flutti ásamt Ívari
Helgasyni og hljómsveit.
Meðal flytjenda sem verður
fjallað um í kvöld eru: Ellý Vil-
hjálms, Ingibjörg Þorbergs,
Helena Eyjólfs, Sigrún Jóns,
Haukur Morthens, Alfreð Clausen,
Vilhjálmur Vilhjálmsson og Óðinn
Valdimarsson. „Ívar er reyndar
ekki með mér núna, ég verð bara
ein, en það er aldrei að vita nema
óvæntir leynigestir skjóti upp koll-
inum á tónleikunum,“ segir Jana
María.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og kostar 2.000 krónur inn. - fsb
Söngfuglar
á Rosenberg
SÖNGFUGLAR Jana María flytur íslensk
uppáhaldslög á Café Rosenberg í kvöld.
MYND: HEIÐA.IS
Falleg og
tilfi nninga-
þrungin ljóð
Elsa Waage mezzosópran syngur rómantísk
ljóð í Hörpu í dag klukkan 12.15. Aðgangur
er ókeypis í boði Íslensku óperunnar.
ELSA WAAGE Músíkin
þyrfti að vera ókeypis fyrir
alla sem oftast,“ segir hún.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Við bjóðum
góða þjónustu
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Skannaðu
kóðann til að
sækja Appið.
Millifærðu með
hraðfærslum í Appinu
Veldu hraðgreiðslur
á upphafsskjámynd
og smelltu á þekktan
viðtakanda
einn ..ENNEM
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
11
4
2
MENNING