Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 44

Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 44
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28 TÓNLIST ★★★★ ★ Sinfóníuhljómsveit Íslands Stjórnandi: James Gaffigan, einsöngvari: Nadja Michael. HARPA 22. MARS Stundum er sagt að í óperuheim- inum séu stórar raddir í miklum umbúðum. Sumir óperusöngvarar hafa oft verið dálítið búttaðir, en ég er ekki frá því að það sé minna um það í dag. Hið myndræna verður æ stærri hluti af lífi okkar, samkeppn- in er líka hörð. Áheyrendur gera æ meiri kröfur um að söngvarar hljómi ekki aðeins vel, heldur séu líka sætir. Sópransöngkonan Deborah Voight, sem átti að koma fram á tónleik- um Sinfóníuhljómsveitar Íslands á föstudagskvöldið, lenti á sínum tíma í vandræðum út af sívaxandi útlitskröfum. Hún þótti vera svo feit að hún var rekin frá óperuhús- inu Covent Garden. Þá fór hún í hjá- veituaðgerð og grenntist um meira en fimmtíu kíló. Voight vakti mikla lukku á Listahátíð fyrir nokkrum árum. Tónleikarnir voru magnaðir. Ekki aðeins var tónlistarflutningurinn stórfenglegur, heldur var söng- konan sjálf skemmtileg og sjarm- erandi. Það geislaði af henni kátín- an; hún reytti af sér brandarana og maður skellihló. Margir hlökkuðu því eflaust til að heyra hana aftur. Því miður veiktist hún á síðustu stundu og önnur söngkona hljóp í skarðið. Það var Nadja Michael, en hún söng annan kaflann af tveimur úr óperunni Salóme eftir Richard Strauss. Michael var í hlutverki Salóme, sem er stjúpdóttir Heródesar úr Biblíunni. Salóme girnist Jóhannes skírara, sem vill ekkert með hana hafa. Hún hefnir sín með því að láta hálshöggva hann. Óperan vakti nokkra hneykslun á sínum tíma fyrir guðlast og klám. Lokasenan fór sér- staklega fyrir brjóstið á fólki. Þar lét Salóme í ljósi ósiðlegar hugsanir um leið og hún hélt á höfði Jóhannesar og kyssti það. Tónlistin er þó snilld, full af hrífandi laglínum og töfrandi hljómum. Á tónleikunum var hún prýðilega útfærð. Sjöslæðudansinn, sem er án söngs, var stórglæsileg- ur, bæði snarpur og litríkur. Söng- ur Micahel í kaflanum á eftir var líka magnþrunginn, tilfinninga- ríkur og dramatískur. Þar sem ég sat drukknuðu lágir tónar reyndar í hljómsveitarleiknum, en hápunkt- arnir voru sannfærandi, kraftmiklir og heillandi. Á tónleikunum var einnig leikin Serenaða nr. 1 op. 11 eftir Brahms. Hljómsveitarstjórinn James Gaff- igan hélt þar vel um alla þræði. Tónlistin virkaði áreynslulaus og flæðandi. Unaðslegur skáldskap- urinn skilaði sér til fulls í túlkun- inni. Sérstaka aðdáun vakti hljóm- fagur hornleikur, sem og himneskt klarinettuspil. Hljómsveitin í heild spilaði fallega, strengjahljómurinn var almennt safaríkur og þéttur, og annað var líka á sínum stað. Þetta var ljúf stund. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Skemmtilegir tónleikar með glæsilegri söngkonu. Ósiðleg ópera Gerð verður teiknimynd eftir sög- unni Ótrúleg saga um risastóra peru eftir Jakob Martin Strid sem sló í gegn í heimalandinu Dan- mörku og víðar. Nordisk Film greindi frá þessari fyrirætlan í gær og var haft eftir höfundinum í Politiken að hann gleddist mjög yfir þessum fréttum. Bókin féll vel í kramið hjá íslenskum lesend- um en hún kom út hjá JPV í fyrra og seldist í um 2.000 eintökum, en þess má geta að 20 þúsund eintök seldust í Danmörku og 15 þúsund í Noregi. Í henni segir frá félögunum Sebastían og Mitsú og ævintýra- ferð þeirra í risastórri peru. Strid sem er höfundur mynda og texta mun ekki teikna fyrir bíómyndina en verða höfundum hennar innan handar við gerð hennar. Stefnt er að frumsýningu mynd- arinnar vorið 2015. Risaperan verður að bíómynd ÞVOTTAEFNI FYRIR HVERT TILEFNI STÓRÞVOTTUR FRAMUNDAN? HAFÐU ÞAÐ FÍNT NÚ ER ÞAÐ SVART Ekkert jafnast á við Neutral Storvask til að komast til botns í þvottakörfunni. Hentar fyrir þvott af öllu tagi. Silkihönskum, ullarteppum og dúnúlpum hæfir 30 til 40 gráðu þvottur í höndum eða vél með Neutral Uld- og finvask. Neutral Sort vask varðveitir svartan glæsileikann svo hann tapi ekki lit sínum. Upplitað er bara ekki í tísku þessa dagana. Fyrir alla muni, ekki láta þennan lenda í hvíta þvottinum. Létt er að flokka litríka sokka. NÚ ER ÞAÐ HVÍTT HALTU LÍFI Í LITUNUM Ensímin í Neutral Hvid vask losa þig við erfiða bletti og óhreinindi. Það skilar sér í björtum og hvítum þvotti. Fljótandi Neutral leysist vel upp og hentar því líka vel í handþvottinn. Settu svolítið af Neutral Color í hólfið og njóttu þess að fá þvott inn jafn litríkan úr vélinni aftur. Þetta er kröftugt, þú notar bara lítið af dufti í hverja vél. Fljótandi Neutral Color endist líka og endist. Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá Neutral Dönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 6 27 19 0 1. 20 13 NÁNARI UPPLÝSINGAR Á NEUTRAL.IS Mýs og menn verður flutt í Útvarpsleikhúsinu á föstudaginn langa. Uppfærslan er frá árinu 1962 og fara þeir Lárus Pálsson og Þorsteinn Ö. Stephensen með hlut- verk þeirra George og Lennies, farandverkamannanna sem flakka saman á milli vinnustaða. Steinbeck skrifaði leikritið sem er tíður gestur á fjölum leikhúsa heimsins. Það hefur þrisvar verið sett á svið í atvinnuleikhúsi á Íslandi. Fyrst í Iðnó árið 1954, með Brynj- ólfi Jóhannessyni og Þorsteini Ö. Stephensen í aðalhlutverkunum, síðan í Loftkastalanum árið 1998, með Hilmi Snæ Guðnasyni og Jóhanni Sigurðarsyni í hlutverk- unum og nú er verkið á stóra sviði Borgarleikhússins, þar sem Hilm- ar Guðjónsson og Ólafur Darri Ólafsson fara með hlutverkin. Mýs og menn frá 1962 JOHN STEINBECK Byggði á eigin reynslu sem farandverkamaður þegar hann skrifaði Mýs og menn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.