Fréttablaðið - 26.03.2013, Side 46
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
Vök er fyrsti dúettinn sem vinnur
Músíktilraunir í rúmlega þrjátíu
ára sögu keppninnar. Hljómsveit-
in var stofnuð fyrir aðeins einum
mánuði og hún hafði aldrei áður
spilað opinberlega fyrr en hún steig
á svið í Silfurbergi í Hörpu.
Vök, sem spilar melódíska raf-
tónlist, er skipuð söngkonunni og
gítarleikaranum Margréti Rán
Magnúsdóttur og saxófónleikaran-
um, tölvumanninum og bakradda-
söngvaranum Andra Má Enokssyni.
Margrét Rán segir þau ekki hafa
tekið þátt í Músíktilraunum með
það fyrir augum að sigra. „Þetta
var meira svona tilraunastarfsemi
og að sjá hvernig við myndum
spila á fyrsta gigginu. Við stofnuð-
um hljómsveitina fyrir mánuði og
keyrðum þetta bara í gang.“
Voruð þið ekki stressuð? „Það var
alveg smá stress, eiginlega mikið
stress en við ætluðum bara að hafa
gaman af þessu og það tókst.“
Einsdæmi er að dúett vinni Mús-
íktilraunir. Aðspurð segir Margrét
Rán að þau hafi reyndar ætlað að
fá gítarleikara til að spila með sér
í keppninni en planið var samt allt-
af að vera bara þau tvö vegna þess
hversu vel þau vinna saman.
Hún og Andri Már byrjuðu fyrir
ári síðan að fikta við að spila tón-
list en byrjuðu aldrei almennilega
að semja saman fyrr en Músíktil-
raunir nálguðust. Bresku hljóm-
sveitirnar The xx og Alt-J eru í
mestu uppáhaldi hjá þeim, ásamt
Portishead.
Margrét Rán, sem er 21 árs,
var með hinum 24 ára Andra Má
í Flensborgarskólanum í Hafn-
arfirði þangað til hún flutti sig
um set yfir í Fjölbrautaskólann í
Breiðholti þar sem hún er á lista-
braut. Hún er uppalin á Akra-
nesi og hún var aðeins þrettán
ára þegar hún tók þátt í Músíktil-
raunum í öðrum dúett, Wipeout,
sem spilaði háskólapönk-rokk. Sá
sem var með henni í bandinu spil-
aði á trommur og var enn yngri,
eða bara ellefu ára. „Við komumst
ekki upp úr undanúrslitunum. Við
vorum svo hrikalega ung,“ segir
Margrét Rán.
Fyrir sigurinn í Músíktilraunum
um síðustu helgi hlaut Vök meðal
annars tuttugu hljóðsverstíma.
„Við ætlum núna að demba okkur
í að taka upp fyrsta lagið okkar á
næstu dögum. Svo förum við von-
andi í næsta mánuði að gera litla
EP-plötu. Það er draumurinn.“
freyr@frettabladid.is
Fyrsti dúettinn sem
vinnur Músíktilraunir
Hljómsveitin Vök braut blað í sögu Músíktilrauna með sigri sínum um helgina.
SIGURVEGARAR Andri Már Enoksson og Margrét Rán Magnúsdóttir eru í sigur-
hljómsveit Músíktilrauna, Vök. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sigurhljómsveitir í Músíktilraunum
með stelpur innanborðs hafa ekki
verið margar í gegnum tíðina.
Dúkkulísurnar settu tóninn með
sigri sínum árið 1983 en ekki
náði kvenþjóðin að fylgja honum
eftir fyrr en Kolrassa krókríðandi
vann 1992. Tólf ár liðu þangað til
Mammút vann tilraunirnar með
þrjár stelpur innanborðs. Það var
svo 2010 sem Of Monsters and
Men báru sigur úr býtum með
Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttir við
hljóðnemann. Tríóið Samaris vann
svo keppnina árið 2011 með þær
Áslaugu Rún Magnúsdóttur og
Jófríði Ákadóttur um borð.
Fáar stelpur í sigurhljómsveitum
DÚKKULÍSURNAR
BELLATRIX
MAMMÚT
SAMARIS
Morrissey, fyrrverandi söngvari The Smiths,
hefur fengið viðvaranir frá læknum vegna
heilsufars síns. Telja læknarnir ráðlegast að
söngvarinn leggi míkrafóninn á hilluna hið
snarasta ef ekki eigi illa að fara.
Morrissey neyddist nýlega til þess að
fresta mörgum tónleikum á ferðalagi
sínu um Bandaríkin vegna ýmissa
kvilla, svo sem lungnabólgu og maga-
sárs.
„Mér hefur verið ráðlagt að hætta
en það er erfitt. Tónlistin er í blóði
mínu,“ sagði söngvarinn í viðtali við
mexíkóska útvarpsstöð.
Leikkonan Rachel McAdams er hætt með kærasta sínum til tveggja
ára, leikaranum Michael Sheen. Hún ku vera í molum eftir sambands-
slitin og leitar því eftir stuðningi hjá vinum og vandamönnum. Sam-
kvæmt heimildum Now Magazine er fyrrverandi kærasti hennar, Ryan
Gosling, í þeim hópi en þau hafa verið góðir vinir frá því þau hættu
saman árið 2008.
Leikkonan Eva Mendes, kærasta Goslings, er ekkert sérstaklega
ánægð með þessa fjölgun símtala milli kærastans og McAdams. Gosl-
ing hefur látið hafa eftir sér í viðtölum að McAdams sé stóra ástin í lífi
sínu en þau kynntust við tökur á rómantísku myndinni The Notebook.
Leitar stuðnings hjá Gosling
EINHLEYP
Á NÝ Rachel
McAdams
lætur Ryan
Gosling hjálpa
sér að að ná
áttum eftir
sambands-
slitin við
Michael
Sheen. NORDIC-
PHOTOS/GETTY
Ráðlagt af læknum að hætta
Yngri Gallagher-bróðirinn Liam þykir lítið til eldri bróður síns, Noels,
koma eftir að hinn síðarnefndi steig á svið með Damon Albarn úr Blur
um helgina. Gallagher og Albarn hafa löngum deilt sín í milli en tóku
Blur-lagið Tender á tónleikum til styrktar krabbameinssjúklingum á
tónleikum í Royal Albert Hall í London ásamt Paul Weller.
„Ég veit ekki hvort er verra, að hann sé að drekka kampavín með
stríðglæpamanni eða syngja bakraddir með BLUE!“ tísti Liam á
Twitter-síðu sína og átti þar væntanlega við Blur.
Liam gáttaður á bróðurnum
LIAM Yngri
Gallagher-
bróðirinn greip
til orðaleikja á
Twitter til að
móðga Noel.
Opið í Bláfjöllum um páskana
skidasvaedi.isUpplýsingasími 530 3000
Virku dagana í dymbilvikunni og þriðjudaginn 2. apríl mun rútan fara frá Olís Mjódd
kl. 12:40 og kl. 16:15. Ferðir úr Bláfjöllum verða kl. 17 og 21 í Olís Mjódd.
Rútan fer alltaf um Olís Norðlingaholt.