Fréttablaðið - 26.03.2013, Side 54
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 38
„Ég er algjör sökker fyrir Íslend-
ingasögunum. Svo á ég ógrynnin
öll af ljóðabókum og finnst gaman
að glugga í þær. Ef ég ætti að velja
eina skáldsögu myndi ég velja
bókina Konur eftir Steinar Braga.
Hún hafði rosalega djúp áhrif á mig
og er alveg meiriháttar.“
Svandís Dóra Einarsdóttir, leikkona
BÓKIN
„Orðið Evróvisjón hefur verið notað
alllengi og má eiginlega segja að
það hafi verið tilraun sem ekki gekk
upp,“ segir Anna Sigríður Þráins-
dóttir, málfarsráðunautur RÚV.
Anna Sigríður sendi tilmæli á
starfsfólk RÚV í síðustu viku um
að nota skuli enska orðið „Euro-
vision“ í stað „Evróvisjón“. „Þessi
umræða kemur upp á hverju ári. Í
fyrra gaf ég út að nota skyldi orðið
Evróvisjón en nú hef ég dregið það
til baka,“ segir Anna Sigríður. Hún
segir rökin fyrir ákvörðuninni vera
af þrennum toga. Aðstandendur
Eurovision leggi mikla áherslu á
vörumerkið, því að hérlendis tíðk-
ist yfirleitt ekki að íslenska erlend
vörumerki og því að orðið Evró-
visjón sé bara hálfíslenskt. „Fyrri
hluti orðsins, evró, er góður og gild-
ur en síðari hlutinn, visjón, er hins
vegar ekki orð og lagar sig ekki að
íslenskri málfræði,“ segir hún.
Evróvisjón hefur verið notað í
daglegu tali hérlendis um langt
skeið þar sem íslenskt heiti keppn-
innar, Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, þykir langt og
óþjált. Spurð hvort henni finnist
hún vera að breyta sögunni með að
taka orðið út segir Anna Sigríður
svo ekki vera. „Það virðast samt
flestir vera ánægðir með þessa
ákvörðun. Svo verðum við að sjá
til. Ef einhver kemur með snjallt
íslenskt heiti gæti þessi ákvörðun
verið endurskoðuð,“ segir hún kát.
Undirbúningur fyrir Euro vision
er nú á fullu hjá RÚV og opnuð
hefur verið síða fyrir keppnina á
vefsíðu ruv.is. Þar er meðal annars
að finna netútvarp þar sem aðdá-
endur geta hlustað á gömul og ný
Eurovision-lög út í eitt. - trs
Orðið „Evróvisjón“ hefur sungið sitt síðasta
Málfarsráðunautur RÚV hefur sent út skipun um að nota eigi orðið Eurovision yfi r Söngvakeppnina vinsælu
ÚT MEÐ EVRÓVISJÓN Anna Sigríður
segir orðið Evróvisjón bara vera hálf
íslenskt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Bókin er búin að fá mjög fín viðbrögð og þeir eru
mjög ánægðir með mig í Krabbameinsfélaginu,“
segir Guðmundur Breiðfjörð.
Hann gaf fyrir skömmu út sína aðra ljóðabók,
Perlu, og rennur allur ágóðinn til Krabbameins-
félagsins en faðir hans lést úr krabbameini.
„Ég ætla að reyna að selja fimm hundruð ein-
tök og ætlaði að gera það fyrir lok Mottumars en
það gæti teygst aðeins á því. En það skiptir máli
að þetta rati á endanum á réttan stað,“ segir Guð-
mundur, sem er markaðsstjóri kvikmynda hjá
Senu. „Við erum alltaf í afþreyingunni í vinnunni
en það er aðeins meiri næring í þessu, meira kjöt
á beinunum,“ bætir hann við um ljóðaáhuga sinn.
Bókin, sem kom út á 45 ára afmælisdegi hans
20. mars, er tileinkuð níu ára dóttur hans Maríu
Perlu.
Fyrsta ljóðabók Guðmundar, Köllun, kom út
1998. Það sem hvatti hann til að gefa hana út var
sigur í ljóðasamkeppni í Los Angeles sem hann tók
þátt í þegar hann var í námi. Þá orti hann ljóð um
dauða Díönu prinsessu, sem snerti hjörtu dóm-
nefndarinnar. „Þetta voru ljóð um hin og þessi
málefni sem voru send inn en þeim þótti þetta ljóð
túlka þennan atburð svo vel.“ Allur ágóði Köllun-
ar rann til uppbyggingar kapellu líknardeildar í
Kópavogi.
Þeir sem vilja tryggja sér eintak af Perlu geta
sent Guðmundi póst á netfangið Breidfjord@sena.
is. Hann er með pésa frá Krabbameinsfélaginu og
getur mælt sér mót við þá sem vilja borga 1.000
krónur fyrir ljóðin og styrkja í leiðinni gott mál-
efni. - fb
Ætlar að selja fi mm hundruð bækur
Allur ágóði ljóðabókarinnar Perlu rennur til Krabbameinsfélagsins.
GEFUR ÚT LJÓÐABÓK Guðmundur Breiðfjörð hefur gefið út
sína aðra ljóðabók.
„Ég var eiginlega alltaf að
syngja þetta lag því ég var allt-
af að reyna að jóðla fyrir nokkr-
um árum. Ég bað þau um að
vera með mér í þessu og þeim
fannst þetta mjög fyndið,“
segir Hrefna Björg Gylfadóttir.
Hún söng, ásamt Jöru Hilmars-
dóttur, lagið Hann kenndi mér
að jóðla í úrslitum Gettu betur
í beinni útsendingu Sjónvarps-
ins á laugardagskvöld. Þar jóðl-
aði Hrefna Björg eins og eng-
inn væri morgundagurinn við
góðar undirtektir gesta og vafa-
lítið sjónvarpsáhorfenda líka.
Aðspurð segist hún hafa
fengið áhuga á jóðli þegar hún
var í níunda bekk. „Ég var allt-
af að hlusta á Franzl Lang, sem
er geðveikt flottur jóðlari. Svo
reyndi ég bara að læra að jóðla
á [vefsíðunni] Youtube og skoða
kennsluvídeó,“ segir hún og vill
ekki meina að það hafi verið erf-
itt. „Ég gúglaði það, því mér
fannst þetta frekar auðvelt, og
þetta er víst eitthvað sem fólk
bara getur eða getur ekki. Það er
ekki mikið hægt að æfa þetta en ég
þurfti samt að æfa þetta svolítið.“
Hin sautján ára Hrefna Björg
er á náttúrufræðibraut í MH. Hún
er einnig í Hamrahlíðarkórn-
um og er að læra á píanó. Hún
segist kunna að jóðla afmælis-
sönginn og að minnsta kosti sex
lög eftir Franzl Lang af You-
tube. Aðspurð segist hún vel
geta hugsað sér tónlistarferil
sem jóðlari hér á landi, til dæmis
í partíum. „Ef það er einhver
„bissness“ í því væri það ógeðs-
lega gaman,“ segir hún og hlær.
Jóðl er söngmáti sem talinn er
eiga uppruna sinn hjá íbúum sviss-
nesku Alpanna. Fáir Íslendingar
hafa tileinkað sér þessa óvenju-
legu íþrótt og Hrefna Björg á erf-
itt með að nefna íslenska jóðlara,
nema þá helst langömmu sína.
En er ekki gaman að kunna
að jóðla? „Þetta er svolítið fynd-
ið. Nema hvað að ég er alltaf að
reyna að vanda mig við þetta því
mér finnst þetta dálítið flott. Mér
finnst alltaf jafn skrítið þegar fólk
fer geðveikt mikið að hlæja en það
er kannski bara af því að þetta er
svolítið skrítið.“ freyr@frettabladid.is
Lærði jóðl á Youtube
Hrefna Björg Gylfadóttir sló í gegn með jóðli sínu í úrslitum Gettu betur.
HREFNA BJÖRG OG JARA Hrefna Björg (til vinstri) og Jara sungu í beinni útsend-
ingu í úrslitum Gettu betur á laugardagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hinn 82 ára Þjóðverji Franzl Lang er þekktur
sem konungur jóðlsins. Auk þess að jóðla
spilar hann á gítar og harmóníku og má sjá
fjölmörg myndbönd af honum á vefsíðunni
Youtube. Þekktasta lag hans er Kufstein-Lied
frá árinu 1968 en á áttunda áratugnum kom
hann oft fram í vesturþýskum sjónvarps-
þáttum. Lang hefur selt meira en tíu milljónir
hljómplatna á ferli sínum.
Þekktur sem konungur jóðlsins
Í þessari 12 daga draumaferð
verður farið um margar af
þekktustu perlum landsins
og skyggnst inn í söguna,
mannlífið og náttúruna.
Fararstjóri: Ása María
Valdimarsdóttir
Um ferðina:
LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS
á mann í tvíbýli. Gist verður í
Traunkirchen, Vínarborg,
Klagenfurt, Bad Gastein og München
273.900 KR.-
Fegurð Austurríkis
8. - 20. ágúst
Mjög mikið innifalið
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS