Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 8
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Regluleg meðallaun fullvinnandi fólks 400 300 200 100 0 2008 2009 2010 2011 2012 Þú su nd k ró nu r meðaltal 357 291 377 312 389 327 408 343 436 367 HAGTÖLUR Regluleg meðallaun fullvinnandi fólks voru hér 402 þúsund krónur að meðaltali árið 2012, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Í umfjöllun Hagstofunnar segir að algengustu reglulegu laun hafi verið 300 til 350 þúsund krónur, en um 18 prósent launamanna hafi verið á því bili. „Þá voru um 65 pró- sent launamanna með regluleg laun undir 400 þúsund krónum,“ segir í frétt Hagstofunnar. „Regluleg laun fullvinnandi karla voru 436 þúsund krónur að meðaltali á mánuði en kvenna 367 þúsund krónur.“ 69 þúsund krónum munar þar á kynj- unum. Þá kemur fram að heildar- laun fullvinnandi hafi í fyrra verið að meðaltali 488 þúsund krónur á mánuði, karlar með 548 þúsund og konur 425 þúsund. Þar munar 123 þúsund krónum. Regluleg laun voru hæst í fjár- mála- og vátryggingastarfsemi, eða 584 þúsund krónur, en lægst í fræðslustarfsemi, 346 þúsund krón- ur að meðaltali. - óká Fólk í fjármála- og vátryggingastarfsemi fékk hæstu launin í fyrra en þau lægstu fékk fólk í kennslu: 123.000 krónum munar á konum og körlum ÖRYGGISMÁL Hagræðingar aðgerðir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hafa ekki bitnað á öryggi veitu kerfis fyrir- tækisins, að sögn Bjarna Bjarnasonar, forstjóra OR. Fréttablaðið hefur greint frá því að hluti hitaveitu- lagna OR á Vestur landi sé í slæmu ástandi. Lagnir hafi reglulega farið í sundur síðustu misseri og skapað hættu fyrir menn og dýr, auk þess að valda gróðurskemmdum. Lögn á milli Deildartungu og Akraness hefur fjórum sinnum farið í sundur síðustu tvö ár, í eitt skiptið með þeim afleiðingum að hross fest- ist í sjóðheitu dýi og drapst. OR hefur á síðustu tveimur árum gripið til viðamikilla hagræðingar- aðgerða með það fyrir augum að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækis ins sem er mjög skuld- sett. Til dæmis hafa fjárfestingar í veitukerfi fyrirtækisins verið lækk- aðar um 6,6 milljarða króna miðað við fyrri áætlanir og þá stendur til að lækka þær um 8,4 milljarða til viðbótar til ársins 2016. Þrátt fyrir þennan niðurskurð segir Bjarni Bjarnason að öryggi veitukerfisins hafi ekki verið fórnað. „Þetta er auðvitað góð og gild spurning. Við höfum skipt öryggismálum í tvennt. Annars vegar er afhendingaröryggi til við- skiptavina; að þeir fái heitt og kalt vatn og rafmagn og að við tökum við úrgangi. Við sjáum ekki að það hafi minnkað neitt þessi ár frá því að við drógum úr fjár- festingum,“ segir Bjarni. „Hins vegar eru það öryggismál; líf og limir og slysahætta. Þar er aldrei hægt að leyfa sér að taka áhættu með of miklum niðurskurði. Við höfum því nálgast það þannig að ef það reynist vera hætta einhvers staðar þá skoðum við það alveg sér- staklega.“ Bjarni segir að sumar lagnir á Vesturlandi séu því miður ekki í góðu ástandi. OR hafi þó verið að taka fyrir verst förnu hluta þeirra en hann ætlar að biðja um að þessi svæði verði skoðuð sérstaklega. magnusl@frettabladid.is Niðurskurður ekki bitnað á öryggi hjá OR Hituveitulagnir OR á Vesturlandi hafa ítrekað farið í sundur og valdið slysahættu. Síðustu tvö ár hefur OR minnkað fjárfestingar í veitukerfi um 6,6 milljarða. SKORRADAL Á SUNNUDAG Þúsundir lítra af 90 gráða heitu vatni láku út þegar heitavatnslögn í Skorradal fór í sundur á sunnudag. Þegar ljósmyndara Fréttablaðs- ins bar að garði var vatnið að mestu þornað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÞJÓÐ Á TÍMAMÓTUM Opinn stjórnmálafundur ASÍ á Grand Hótel, fimmtudaginn 11. apríl kl. 19.30 1. Gengis- og verðlagsmál 2. Atvinnu- og menntamál 3. Nýtt félagslegt húsnæðiskerfi Formönnum þeirra flokka sem eiga sæti á þingi og bjóða fram í alþingiskosningunum 2013 er boðið til að ræða: Þátttakendur: Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ, fundarstjóri Þóra Arnórsdóttir, umræðustjórn Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins Fundurinn verður sendur beint út á www.asi.is KOSNINGAR Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla hefst í Laugar- dalshöll næsta mánudag. Opið verður alla daga frá 10 til 22. Á kjördag verður opið frá 10 til 17 fyrir þá kjósendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Hægt er að kjósa hjá sýslumanninum í Reykjavík í dag og á morgun. Á vefnum kosning.is er hægt að kynna sér hvenær kjör fundur fer fram á sjúkrastofnunum, hjúkrunar heimilum og öðrum stofnunum. - hó Alþingiskosningar 2013: Hægt að kjósa í Laugardalshöll ÞEKKIR ÞÚ TIL? Þekkir þú dæmi um slæmt ástand hitaveitulagna? Sendu okkur línu á meira@ frettabladid.is BJARNI BJARNASON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.