Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 12
Engin heildarlöggjöf er til um
kennitölur á Íslandi. Vissulega eru
til ákvæði um útgáfu kennitalna,
enda eru þær orðnar helsta og
mikil vægasta auðkenni Íslendinga
í dag. Þegar lög um Þjóðskrá voru
sett árið 1952 voru kennitölur ekki
til, heldur var einungis stuðst við
nafnnúmer, en með þeim var ekki
gerð nein breyting á lögum.
Gagnrýndu lagabreytinguna
Almennt séð eiga Íslendingar að
hafa sömu kennitöluna allt sitt líf.
Ein undantekning er þó þar á og hún
er sú þegar einstaklingur ákveð-
ur að fara í kynleiðréttingu. Sam-
kvæmt lögum um réttindi fólks með
kynáttunarvanda hafa þeir einstak-
lingar heimild til að sækja um nafn-
breytingu og þar með nýja kennitölu
til Þjóðskrár. Rökin eru þau að með
því sé verið að veita fólkinu nýtt
upphaf.
Málið er þó ekki eins einfalt og
það hljómar í fyrstu.
Fram kemur í umsögn Þjóðskrár
Íslands, vegna frumvarps til laga
um réttarstöðu einstaklinga með
kynáttunarvanda, að ef einstakling-
ur fær úthlutað nýrri kennitölu eigi
hann á hættu að glata ýmsum rétt-
indum sem eru tengd við þá fyrri.
Ný kennitala yrði til í Þjóðskrá en
sú gamla færist yfir á „horfinna-
skrá“ og verður þannig óvirk.
Öll gömul fríðindi fyrnast
Þetta þýðir að öll fríðindi sem
fylgdu gömlu kennitölunni fyrnast,
til dæmis hjá tryggingafélögum,
þar sem ekki verður hægt að finna
tengsl á milli nýju kennitölunnar
og þeirrar gömlu. Að sama skapi
munu lífeyrissjóðir ekki getað fund-
ið umrædd tengsl. Þá gæti reynst
ómögulegt að nálgast gamlar ein-
kunnir úr framhalds- eða háskóla,
jafnvel þótt gömlu kenni tölunni
sé framvísað þar sem hún mun
ekki finnast á skrá, vegna þess að
einungis örfáir aðilar munu hafa
aðgang að breytingasögunni og eru
skólar ekki þar á meðal.
„Þjóðskrá Íslands telur það ekki
þróun í rétta átt að heimila breyt-
ingar á einkvæmu auðkenni borgar-
anna þegar það er ekki nauðsynlegt
vegna rangra gagna við uppruna-
lega skráningu eða vegna mistaka.
Með því er átt við að kennitalan hér
á landi er ekki kyngreinanleg og við
úthlutun nýrrar kennitölu í þeim til-
vikum sem hér um ræðir myndu
einungis 3 tölustafir af 10 breytast
enda er ekki gert ráð fyrir að ein-
staklingur fái nýjan fæðingardag
eða fæðingarár við úthlutun nýrrar
kennitölu vegna kynleiðréttingar.“
Þegar gefin eru út fæðingar-
vottorð fyrir einstaklinga sem hafa
leiðrétt kyn sitt í Þjóðskrá þá koma
upplýsingar um fyrra nafn og fyrra
kyn í neðanmálsgrein á fæðingar-
vottorðinu en stofnunin telur sér
ekki heimilt að breyta uppruna-
upplýsingum úr fæðingarskýrslu.
Siðmennt var líka á móti
Fram kemur í umsögn Sið menntar
um málið að fái einstaklingur nýja
kennitölu sé hætta á því að það
myndist listi yfir það fólk sem hafi
farið í kynleiðréttingu.
Kalli einhver fram lista yfir ein-
staklinga sem fengið hafa nýjar
kennitölur er viðkomandi kominn
með lista yfir þá sem hafa farið
í kynleiðréttandi aðgerð. Listinn
myndi eingöngu ná yfir einstaklinga
sem óskuðu eftir nýrri kennitölu
vegna þessa, þar sem engum öðrum
býðst þessi kostur.
Siðmennt lagði til að heimildin til
að fá nýja kennitölu færi ekki í lögin,
sem þó kom á daginn að hún gerði.
Varð engu að síður að lögum
Frumvarpið varð að lögum síð-
asta sumar og voru ekki gerðar
neinar breytingar á ákvæðinu um
útgáfu nýrrar kennitölu, þrátt fyrir
umsagnir Þjóðskrár og Siðmenntar.
„Við leiðréttingu á kyni og nafn-
breytingu í Þjóðskrá er heimilt að
úthluta umsækjanda nýrri kenni-
tölu hjá Þjóðskrá Íslands. Óski hann
nýrrar kennitölu skal fyrri kenni-
tala vera aðgengileg þeim stjórn-
völdum og öðrum aðilum sem starfs
síns vegna þurfa að vita um tengsl
nýju og eldri kennitölunnar,“ segir í
8. grein laganna.
Gloppa í Þjóðskrá
varðandi kennitölur
Kennitölum hér á landi er aðeins breytt ef sótt er um nafnbreytingu vegna
kynleiðréttingar. Engin heildarlöggjöf er til um kennitölur. Þeir sem fara í kyn-
leiðréttingu segja nýja kennitölu valda miklu flækjustigi innan kerfisins.
Ugla Stefanía Jónsdóttir kláraði sitt kynleiðréttingarferli síðasta sumar, á svip-
uðum tíma og lögin gengu í gegn á Alþingi. Hún ákvað þó að sækja ekki um nýja
kennitölu hjá Þjóðskrá, þar sem hún hafði horft upp á vinkonu sína, sem einnig
gekkst undir kynleiðréttingu, ganga í gegnum flókið ferli vegna kennitalnanna
tveggja hjá hinum ýmsu stofnunum.
„Hún fór til dæmis í bankann og ætlaði að færa peninga yfir á nýju kenni-
töluna sína, en þá sagði kerfið einfaldlega að hún væri látin. Það koma
upp ýmis svoleiðis vandamál innan kerfisins svo ég ákvað bara að
halda minni gömlu,“ segir Ugla. „Það er að mínu mati mun skárra
að fá stundum upp gamla nafnið sitt heldur en að einhver segi mér
að ég sé dáin.“
Ugla segist hafa íhugað að fara fram á nýja kennitölu ef vand-
kvæðin væru ekki svona mikil.
Fréttablaðið ræddi við fleiri einstaklinga sem höfðu fengið
kyn sitt leiðrétt og sögðu allir sömu söguna; að þetta væri
verulega flókið innan kerfisins. Rétt eins og Ugla bendir á er
ekkert sem segir til um að nauðsynlegt sé að sækja um nýja
kennitölu fái maður nýtt kyn, enda eru númerin ekki kyn-
greinanleg líkt og tíðkast víða í nágrannalöndum okkar.
„VILL FREKAR FÁ UPP GAMLA NAFNIÐ
HELDUR EN ÚRSKURÐ UM AÐ ÉG SÉ DÁIN“
Á Íslandi byggist kennitalan upp á fæðingardegi
og ári sem eru fyrstu sex tölustafirnir en síðustu
fjórir eru hlutlaus auðkenni að öðru leyti en því
að síðasta talan táknar þá öld sem viðkomandi
er fæddur á. Ef viðkomandi fær nýja kennitölu
breytast einungis þrír stafir í aftari hluta talnarun-
unnar, enda verður að halda eiginlegum fæðingardegi og öld.
Á Vísindavefnum er tekið dæmi um mann sem fæðist 12. janúar 1960. Sex
fyrstu stafirnir tákna fæðingardag og ár og sá síðasti öldina. Sjöundi og áttundi
eru raðtala án merkingar, sem er úthlutað frá 20 og upp úr, til dæmis 33. Níunda
talan er svokölluð vartala, eða öryggistala, sem má vera á bilinu 0 til 9. Hún er
fundin út með því að margfalda hverja tölu með ákveðinni annarri tölu eins
og sýnt er í töflunni hér til hliðar. Niðurstöðutölurnar eru síðan lagðar saman
og í sýnidæminu er útkoman 58. Deilt er í summuna með 11. Hér er útkoman
5, en þá vantar 3 til að dæmið gangi upp. Sú tala er dregin frá 11 og út fæst 8.
Vartalan er því 8 og kennitalan 120160-3389.
KENNITALAN ÞÍN ER STÆRÐFRÆÐIFORMÚLA
FLÓKIÐ KERFI Fái einstaklingur nýja kennitölu hjá þjóðskrá vegna kynleiðréttingar
getur skapast sú hætt að hann missi gömul fríðindi sem tilheyrðu gömlu kennitölunni. Í
sumum tilvikum er viðkomandi úrskurðaður látinn innan kerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sunna
Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is
Undirritaðar umsóknir skulu berast sjóðnum á þar til
gerðum eyðublöðum í þríriti ásamt fylgigögnum fyrir
miðnætti hinn 30.apríl 2013 merktar
„Tónskáldasjóður Rásar 2“
Laufásvegi 40, 101 Reykjavík
Tónskáldasjóður
Rásar 2
Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðum FTT og STEFs
| FRÉTTASKÝRING | 11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR12
1 2 3 4VANDI ÞJÓÐSKRÁR ÍSLANDS
Við leiðréttingu á
kyni og nafnbreytingu í
Þjóðskrá er heimilt að
úthluta umsækjanda nýrri
kennitölu hjá Þjóðskrá
Íslands.
Úr lögum um réttarstöðu fólks með kyn-
áttunarvanda
1 2 0 1 6 0 3 3
x x x x x x x x
3 2 7 6 5 4 3 2
3 4 0 6 30 0 9 6