Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 38
11. APRÍL 2013 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2013 © GRAPHIC NEWS Source: Augusta National Golf Club AUGUSTA NATIONAL GOLF CLUB Augusta, Georgia, April 5-8 Rae’s Creek Amen Corner Composed of second shot at hole 11, hole 12 and tee shot at hole 13 Tea Olive Pink Dogwood Flowering Peach Flowering Crab Apple Magnolia Pampas Juniper Yellow Jasmine Carolina Cherry Camellia Holly Azalea White Dogwood Golden Bell Chinese Fir Firethorn Redbud Nandina Hola 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Út 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Inn Samtals Par 4 5 4 3 4 3 4 5 4 36 4 4 3 5 4 5 3 4 4 36 72 Metrar 407 525 320 220 416 164 412 521 420 3.400 453 462 142 466 402 485 155 402 425 3.392 6.792 Stikur 445 575 350 240 455 180 450 570 460 3.725 495 505 155 510 440 530 170 440 465 3.710 7.435 Rae- lækurinn Annað höggið á 11. braut, 12. hola og upphafshöggið á 13. braut tilheyra „Amen Corner“. Brautir Augusta-vallarins eru allar nefndar eftir gróðri, trjám eða blóma- tegundum sem einkenna hverja braut. U.S. MASTERS 2013 Masters-mótið er eitt af risamótun- um fjórum sem fram fara árlega. Ólíkt öðrum risamótum fer mótið ávallt fram á Augusta National- golfvellinum í Georgíu í Bandaríkj- unum. Augusta National er meðal sögufrægustu golfvalla í heimi. Klúbburinn var stofnaður árið 1933 af Bobby Jones og Clifford Roberts en völlurinn var svo hannaður af Jones og Alister MacKenzie. Masters-mótið var sett á laggirn- ar árið 1934 og fjölmargar hefðir fylgja mótinu. Sigurvegari mótsins hlýtur forláta grænan jakka sem hann fær að hafa í sínum fórum í ár og skilar honum svo aftur að ári liðnu og er jakkinn svo geymdur í klúbbhúsinu á Augusta National. Leikið hefur verið um græna jakk- ann frá árinu 1949. Árið 1952 setti Ben Hogan á laggirnar skemmtilega hefð sem hefur haldist allar götur síðan. Þriðjudagskvöldi fyrir Masters- mótið koma allir fyrrverandi sigur- vegarar mótsins saman í hófi sem kallast Kvöldverður meistaranna og er hefð fyrir því að sigurvegari síðasta árs velji hvað verður á mat- seðlinum. Fleiri hefðir hafa skap- ast því frá árinu 1963 hafa þekktar goðsagnir í golfinu slegið upphafs- höggið í mótinu. Yfirleitt eru það fyrrverandi sigurvegarar í mótinu sem fá þann heiður. Á síðasta ári voru það þeir Arnold Palmer, Jack Nicklaus og Gary Player sem slógu upphafshöggin í mótinu. Þeir voru á sínum tíma kallaðir Hinir þrír stóru og börðust um alla titla sem voru í boði. ALLIR KYLFUSVEINAR Í HVÍTUM SAMFESTINGI Ein af þeim hefðum sem hafa hald- ist í sessi á Masters-mótinu er að allir kylfusveinar þurfa að vera í hvítum samfestingi. Jafnframt þurfa kylfusveinar að vera með græna derhúfu merkta Masters og í hvítum tennisskóm. Þessi hefð hefur haldist en þó með örlitlum breytingum. Fram til ársins 1982 gátu kylfingar ekki notað sína eigin kylfusveina heldur þurftu að nota þá kylfusveina sem voru á launskrá Augusta National-golfklúbbsins. Þeir kylfusveinar voru allir blökku- menn. Breyting varð á þessu fyrir um 30 árum en klúbburinn lét undan þrýstingi almennings sem þóttu þær reglur úreltar. Sá kylfu- sveinn sem starfar fyrir þann kylf- ing sem á titil að verja í mótinu fær samfesting sem er merktur nr. 1. Nokkuð færri kylfingar leika í Masters-mótinu en í öðrum risa- mótum. Í ár fengu 94 kylfingar keppnisrétt. Norður-Írinn Darren Clarke þurfti að draga sig úr keppni vegna meiðsla og því eru aðeins 93 keppendur með í mótinu. Enginn biðlisti er fyrir mótið og því tekur enginn sæti Clarke í mótinu. Sigur- vegari í Masters-mótinu fær keppn- isrétt til lífstíðar og eru margir fyrrverandi meistarar sem láta sig ekki vanta á Augusta National ár eftir ár þótt árangurinn sé oft og tíðum ekkert sérstakur. MÓTIN VINNAST Í AMENHORNINU Flestir íslenskir golfáhugamenn eru farnir að kannast vel við Aug- usta National-golfvöllinn, sem er af mörgum talinn einn besti golfvöll- ur í heimi. Völlurinn þykir gríðar- lega fallegur fyrir augað og þeir út- völdu sem gefst tækifæri á að leika völlinn dásama hann. Völlurinn hefur þó tekið miklum breytingum. Allar brautir vallarins hafa sitt heiti og draga nafn sitt af tré eða af runna sem er á hverri braut fyrir sig. Eitt frægasta kennileiti vallarins er Amen-hornið sem nær frá öðru höggi á 11. braut til upp- hafshöggsins á 13. braut. Það er á þessum kafla sem mörg Masters- mót vinnast eða tapast. Heitið er dregið af umfjöllun Herbert Warren í Sports Illustrated frá árinu 1958 en með heitinu vildi hann leggja áherslu á að þetta væri sá hluti vallarins þar sem hlutirnir gerðust. 11. brautin er jafnan talin vera meðal erfiðustu brauta vallar- ins og svo er 12. brautin stutt par-3 hola þar sem þó er auðvelt að tapa höggum líkt og sagan hefur sýnt. Talsverð sóknarfæri eru hins vegar á 13. braut sem er par-5 hola þar sem upphafshöggið skiptir höfuð- máli ætli kylfingar sér að eiga von um að slá inn á flöt í tveimur högg- um. Jack Nicklaus hefur oftast stað- ið uppi sem sigurvegari á Masters- mótinu en hann hefur alls sex sinn- um klæðst græna jakkanum. Arn- old Palmer og Tiger Woods hafa unnið mótið fjórum sinnum. Banda- ríkjamenn hafa verið sigursælir í mótinu og fyrsti sigur evrópsks kylfings kom ekki fyrr en árið 1980 þegar Seve Ballesteros sigraði. 16 kylfingar hafa unnið mótið oftar en tvisvar sinnum. Spennandi verður að sjá hvort ný met verða sett á Masters-mótinu í ár þegar mótið fer fram í 77. sinn. Haldið í hefðirnar á Augusta ● Fyrsta Masters-mótið fór fram á Augusta National-golfvellinum fyrir 79 árum og mótið hefur síðan alltaf verið eitt af stærstu mótum ársins. Fjórtán ára gamall drengur frá Kína mun skrá nafn sitt í metabækurnar á Masters-mótinu í ár þegar hann verður yngsti kylfingurinn í sögu mótsins til að taka þátt. Guan Ti- anlang vann sér inn keppnisrétt í mótinu með því að sigra á Opna asíska áhugamannamótinu en helstu áhugamanna- meistarar fá boð í mótið. Guan mætti á Augusta National fyrir þremur vikum og hefur æft stíft í aðdraganda mótsins. Guan lék á mánudag níu holur með Tiger Woods og var besti kylfingur heims heillaður af kínverska undrabarninu. Woods sagði að leikur Guan og ákvörðunartaka væri líkari því sem er hjá kylfingi við þrítugsaldur en hjá unglingi frá Kína. Guan hefur engu að tapa og allt að vinna á Masters-mótinu. Sökum aldurs hefur hann ekki sama líkamlega styrk og flest- ir mótherjar hans í mótinu. Hann slær talsvert styttra en þeir bestu en er með mjög gott stutta spil sem mun hjálpa honum. „Það verður smá pressa á mér en ég ætla ekki að setja of mikla pressu á sjálfan mig. Ég ætla að njóta þess að að spila á Masters-mótinu,“ segir Guan. Hann mun slá við meti Ítalans Matteo Manassero sem var 16 ára þegar hann lék á Masters fyrir þremur árum. „Ég hef sjálfstraust og veit að ég get spilað vel. Ég ætla að spila minn eigin leik eins og ég er vanur. Ég mun ekki fara fram úr sjálfum mér,“ segir Guan. Það er í raun stórkostlegt afrek að Guan skuli vera að fara að leika á Masters-mótinu. Guan er greinilega gríðarlega efnilegur kylfingur og hver veit nema að hann slái í gegn á mótinu í ár. Alveg sama hver ár- angur hans verður þá er nafn hans komið til að vera í sögu- bókunum á Augusta National. Hvað varst þú að gera þegar þú varst 14 ára? 14 ára undrabarn leikur á Masters Tianlang Guan tekur þátt í Mastersmótinu í ár og setur með því nýtt met. NORDICPHOTOS/GETTY Jack Nicklaus er í sérflokki þegar kemur að því að vinna Masters- mótið. Hér sést hann eftir sigur sinn árið 1972. NORDICPHOTOS/GETTY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.