Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 54
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstra
rvörur
- vinna
með þ
ér
Rek
stra
rvö
rur
- vin
na m
eð þ
ér
Re
ks
tra
rv
ör
ur
- v
inn
a m
eð
þé
r
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
4.4.2013 ➜ 10.4.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
2 Phillip Phillips Gone, Gone, Gone
3 Christina Aqu. / Blake Shelton Just a Fool
4 Christina Agu. / Pitbull Feel This Moment
5 Sin Fang Young Boys
6 Lumineers Stubborn Love
7 Sálin hans Jóns míns Fetum nýja slóð
8 C2C Down the Road
9 Justin Timberlake Mirrors
10 Retro Stefson She Said
Sæti Flytjandi Plata
1 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
2 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
3 John Grant Pale Green Ghosts
4 Retro Stefson Retro Stefson
5 Raggi Bjarna Dúettar
6 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
7 Eiríkur Fjalar Very Best Off
8 Skálmöld Börn Loka
9 David Bowie The Next Day
10 Valdimar Um stund
MORRISSEY
Margaret on the Guillotine
Fyrrverandi Smiths-söngvarinn hataði
Margaret Thatcher af mikilli ástríðu,
eins og sást vel í „minningargrein“ um
forsætis ráðherrann fyrrverandi sem
söngvarinn birti á alnetinu í vikunni.
Enn gleggra dæmi var þó að finna á
Viva Hate, fyrstu sólóplötu Morrissey
frá 1988, þar sem umfjöllunarefnið
er Thatcher á höggstokknum og óskar
söngvarinn henni eins skjóts dauðdaga
og mögulegt er. Lögreglurannsókn á
heimili Morrissey fylgdi í kjölfarið.
Járnfrúin sem fj allað
var um í popplögunum
Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands sem lést á mánudag,
var umdeild og reyndist mörgu tónlistarfólki innblástur í dægurlagatexta sem
oft og tíðum einkenndust af gagnrýni, heift og jafnvel óskum um skjótan dauða.
SINEAD
O‘CONNOR
Black Boys
on Mopeds
Írska söngkonan gagn-
rýndi Thatcher harð-
lega í þessu lagi af
annarri sólóplötu sinni,
I Do Not Want What I
Haven‘t Got frá 1990,
og kallaði forsætisráð-
herrann stríðsherra
sem gæfi reglulegar
skipanir um ofbeldi
gegn minnihlutahópum.
ELVIS COSTELLO
Tramp the
Dirt Down
Costello, sem er frá Liver-
pool, var ekkert að skafa
utan af því á plötunni
Spike frá 1989. Í laginu
segir Costello það sinn
heitasta draum að lifa
nógu lengi til að upplifa
andlát Thatcher og klykk-
ir út með orðunum: „Ég
mun standa á gröf þinni
og troða drulluna niður.“
THE SPECIALS
Maggie‘s Farm
Ska-bandið Specials sendi frá
sér sína útgáfu af þessu lagi
eftir Bob Dylan árið 1980,
þegar Thatcher hafði einung-
is verið við völd í eitt ár, og
duldist engum við hvern var
átt. Dylan söng um bandaríska
þjóðvarnarliðið, National
Guard, en Specials um flokk
þjóðernissinnaðra Breta,
National Front, og vísuðu
þannig til þess sem meðlimir
sveitarinnar töldu kynþátta-
fordóma Járnfrúarinnar.
Um leið og tilkynnt
var um andlát Marg-
aret Thatcher hófst
herferð á Facebook
sem miðar að því
að koma laginu
Ding Dong! The
Witch Is Dead, í flutningi Ellu
Fitzgerald, í efsta sæti breska
vinsældarlistans með niðurhali.
Lagið heyrðist fyrst í ævintýra-
myndinni Galdrakarlinum í Oz
árið 1939 og var þá sungið af
Judy Garland.
Vilja nornina í
efsta sætið
Til eru hljómsveitir sem sjaldan eða aldrei vekja deilur. Dæmi um slíkar
gæti verið Nýdönsk, sem hefur á ferlinum siglt fremur lygnan sjó og
notið almennrar hylli án þess að fá fólk verulega upp á móti sér, og
jafnvel sjálfir Bítlarnir, sem virðast næsta ókunnir mjög fjandsamlegum
straumum um víða veröld. Auðvitað eru á þessu undantekningar, eins og
öllu öðru, enda leynist skrýtna fólkið víða. En svo eru það
böndin sem kljúfa pælaraheim-
inn meira og minna í tvær
fylkingar, með og á móti. Pink
Floyd er ein af þeim grúppum.
Undirritaður er ein af undan-
tekningum á þeirri reglu. Mér
finnst fyrsta platan þeirra
góð og nokkur lög af The Wall
allt í lagi. Mörg af vinsælustu
lögum sveitarinnar í millitíðinni
þykja mér hins vegar óbærileg
áheyrnar. Þegar Shine On You
Crazy Diamond hljómaði í
draumum mínum heila nótt fyrir
skemmstu fór ég að velta fyrir
mér möguleikanum á því að lifa
Pink Floyd-lausu lífi á Íslandi árið
2013. Hverju þyrfti ég að breyta
til að slík tilvera gæti orðið að
veruleika?
Í fyrsta lagi yrði ég að hætta alfarið að líta inn á krár sem bjóða upp
á lifandi tónlistarflutning. Rannsóknir hæfustu vísindamanna á því
sviði (mínar) benda eindregið til að slíkt sé ómögulegt án þess að heyra
Comfortably Numb eða Wish You Were Here gaulað á klukkutíma fresti
hið minnsta. Ég þyrfti líka að sneiða alfarið hjá öllum umræðuþáttum
um efnahagsmál í sjónvarpi, þar sem Money er jafn mikill fastagestur
og myndskeið af mynt og seðlum í talningavélum. Þá væri brátt áfram
nauðsynlegt að forðast alla neyslu skynvillandi fíkniefna (að minnsta
kosti í félagi við aðra) og, síðast en ekki síst, aldrei, undir neinum
kringumstæðum, lenda á spjalli við menntaskólanema sem hafa brenn-
andi áhuga á tónlist.
Þetta ætti í raun ekki að reynast svo erfitt.
Veröld ný og óð
Yeah Yeah Yeah‘s - Mosquito
Eiríkur Fjalar - The Very Best Off
Foxygen - We Are the 21st Century Ambassadors of Peace & Magic
Í spilaranum