Fréttablaðið - 12.04.2013, Síða 2
12. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SAMFÉLAGSMÁL Lögmaður Guð-
nýjar Jónu Kristjánsdóttur, Berg-
lind Svavarsdóttir, reyndi að koma
í veg fyrir birtingu stuðningslista
með 113 nöfnum í blaðinu Skránni
á Húsavík árið 2000. Blaðinu var
meðal annars hótað lögsókn en
listinn birtist engu að síður.
„Við létum kyrrt liggja því við
vildum ekki fara niður á þeirra
plan og ákváðum bara að trúa því
að réttlætið sigraði að lokum,“ segir
Berglind. Hún bendir þó á að eitt af
því sem listinn gerði að verkum var
að miskabætur til Guðnýjar vegna
nauðgunarinnar voru hækkaðar,
en hann var lagður fram sem sönn-
unargagn í Hæstarétti og dómarar
ákváðu að hækka bæturnar úr 400
þúsund í 500 þúsund „með vísan til
óvenjumikillar félagslegrar rösk-
unar“.
„Oft hef ég verið réttargæslu-
maður en ég hef aldrei upplifað
svona, hvorki fyrr né síðar. Þetta
var algjörlega absúrd mál í alla
staði,“ segir Berglind Svavars dóttir
lögmaður.
Berglind starfaði sem réttar-
gæslumaður Guðnýjar á Húsavík
fyrir um fjórtán árum þegar hún
kærði nauðgun og rak mál hennar
fyrir dómstólum.
„Ég var alveg látin finna það að
ég væri ekki réttum megin í mál-
inu, en það var auðvitað ekkert
miðað við það sem Guðný þurfti að
þola. Hún stóð sig alla tíð eins og
hetja.“
Berglind gefur lítið
fyrir umræðuna undan-
farna daga að svona
gömul mál eigi ekki að ræða í dag og
vísar meðal annars til orða Sigur-
geirs Aðalgeirssonar í Fréttablaðinu
í gær að málið væri of erfitt
fyrir samfélagið til að vera
að rifja það upp í dag.
„Auðvitað verður að
ræða þetta mál því það
verður öðrum víti til
varnaðar. Þá er tilgang-
inum náð.“ - sv
Lögmaður Guðnýjar Jónu var látinn finna fyrir því árið 2000 að hún „væri ekki réttum megin í málinu“:
Reyndi að stöðva birtingu stuðningslistans
STJÓRNSÝSLA „Meirihlutinn í nefnd-
inni er sammála því að gera þetta
svona,“ segir Álfheiður Inga dóttir,
formaður Þingvallanefndar, um
samkomulag sem felur í sér að ekk-
ert verður af banni við næturveiði í
Þingvallavatni.
Samkomulagið sem Ólafur Örn
Haraldsson gerði við Landssam-
band Stangaveiðifélaga, Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur og Veiði-
kortið felur, að sögn Álfheiðar, í sér
að þjóðgarðurinn leggur til 250-
300 þúsund krónur til að taka upp
lágmarksveiðieftirlit að næturlagi.
Hún segir það fé verða tekið af 400
þúsund krónum sem áætlað sé að
hækkun veiðileyfa skili.
Veiðimenn munu einnig leggja sitt
af mörkum. Þannig hyggst Veiði-
kortið fá sjálfboðaliða til að sinna
veiðieftirliti um nætur gegn því að
fá ókeypis Veiðikort. „Þeir verða
þannig hálfgerðir veiðiverðir með
skírteini frá Veiðimálastjóra upp
á að þeir megi trufla veiðimenn og
biðja þá um veiðileyfi,“ segir Ingi-
mundur Bergsson, framkvæmda-
stjóri Veiðikortsins. „Veiðimenn eru
vel sáttir og þetta er líka góð lend-
ing fyrir Þingvallanefnd.“
Álfheiður segir samkomu lagið
verða tekið fyrir á næsta fundi
Þingvallanefndar sem stefnt sé á
að verði næsta miðvikudag. „Ég
er mjög ánægð með að hafa fundið
svona mikinn skilning á þeim vanda
sem er uppi við Þingvallavatn,“
segir Álfheiður og nefnir sérstak-
lega veiðiþjófnað og notkun ólög-
legrar beitu sem þurfi að stöðva. - gar
Þjóðgarðsfólk og veiðimenn fagna samningi um afnám næturveiðibanns:
Fá veiðikortið fyrir nætureftirlit
Á ÞINGVÖLLUM Samkomulag er um að
herða eftirlit með stangveiði við Þing-
vallavatn til að útrýma veiðiþjófnaði,
ólöglegum veiðiaðferðum og sóðaskap.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BERGLIND
SVAVARSDÓTTIR
EFNAHAGSMÁL Íslenska ríkið
hefur eignast 18,67% hlut slita-
stjórnar LBI í Landsbankanum.
Samningar um þetta voru undir-
ritaðir í gær.
Steinþór Pálsson bankastjóri
sagði þetta vera mikilvægan
áfanga fyrir Landsbankann og
eigendur hans.
„Ríkið fær í dag afhentan mjög
verðmætan eignarhlut í Lands-
bankanum án þess að greiða fyrir
hann. Bókfært verðmæti eignar-
hlutar ríkisins hefur hækkað
töluvert og er ávinningur ríkisins
eftir fjármagnskostnað 55 millj-
arðar króna,“ sagði Steinþór. - jhh
Á 98% í Landsbankanum:
Ríkið hagnast
um 55 milljarða
Útskúfuð Blönduós-
lögga í mál við ríkið
Fyrrverandi lögregluvarðstjóri vill komast aftur til starfa á Blönduósi eftir að hann
var sýknaður af kynferðisbroti. Hann segist vera „milli steins og sleggju tveggja
stjórnvalda“ og kvartar undan því að lögreglustjórinn svari ekki erindum hans.
DÓMSMÁL Fyrrverandi lögregluvarð-
stjóri á Blönduósi, sem sýknaður
var af ákæru um kynferðisbrot,
hefur höfðað tvö dómsmál á hendur
íslenska ríkinu, annað til að komast
aftur til starfa hjá embættinu og hitt
til að innheimta laun sem hann telur
sig eiga inni hjá embættinu.
Varðstjórinn, sem er tæplega
fimmtugur, var í september 2010
ákærður fyrir að hafa káfað á ung-
lingsstúlku og leystur tímabundið
frá störfum fljótlega eftir það.
Málið þvældist í kjölfarið á milli
dómstiga en endaði loks með sýknu-
dómi í Hæstarétti í nóvember síðast-
liðnum og gerði Ríkislögreglustjóri
þá lögreglustjóranum á Blönduósi að
ráða varðstjórann aftur til starfa.
Það vildi lögreglustjórinn á
Blönduósi ekki og bar fyrir sig að
til rannsóknar væri nýtt mál gegn
varðstjóranum. Það var fellt niður
í janúar. Síðan hefur varðstjórinn
reynt að komast aftur til starfa og
fá greidd laun í þann tíma sem hann
var frá vinnu að ósekju að hans mati.
Í annarri stefnu mannsins gegn
hinu opinbera segir að mikilvægt sé
að réttaróvissu um stöðu hans verði
eytt. „Þetta á sérstaklega við þegar
lögreglustjórinn á Blönduósi neitar
að svara símtölum og erindum frá
umboðsmönnum stefnanda,“ segir
í stefnunni.
Í fyrri stefnunni, gegn Ríkislög-
reglustjóra, lögreglunni á Blöndu-
ósi og innanríkisráðherra, fer varð-
stjórinn fram á að réttur hans til að
vera settur í embættið á nýjan leik
verði viðurkenndur með dómi.
Þar segir að ríkislögreglustjóri
hafi mælt fyrir um að hann skuli
settur aftur í embætti. „Hvað lög-
reglustjórinn á Blönduósi telur við
hæfi eða ekki við hæfi breytir engu
í því sambandi,“ segir í stefnunni.
Varðstjórinn sé nú „milli steins og
sleggju tveggja stjórnvalda“.
Í þeirri síðari, gegn íslenska
ríkinu, krefst hann 11,7 milljóna í
vangreidd laun ásamt vöxtum.
Bjarni G. Stefánsson, lögreglu-
stjóra á Blönduósi, segist í samtali
við Fréttablaðið hafa sent innan-
ríkisráðherra greinargerð sína um
málið. „Ég
vil ekki tjá
mig um
þetta
að öðru
leyti.“
stigur@
frettabladid.is
14. september 2010 Ríkissaksóknari gefur út ákæru á hendur
varðstjóranum fyrir að káfa á unglingsstúlku.
19. október 2010 Varðstjórinn er leystur frá störfum tímabundið.
15. mars 2011 Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknar
varðstjórann af ákærunni.
20. október 2011 Hæstiréttur ómerkir dóminn og vísar
honum aftur heim í hérað.
31. maí 2012 Héraðsdómur Norðurlands vestra sakfellir
varðstjórann og dæmir hann í hálfs árs
fangelsi.
15. júní 2012 Varðstjórinn er leystur af fullu
frá störfum.
29. nóvember 2012 Hæstiréttur snýr sektardómnum í sýknu.
4. desember 2012 Ríkislögreglustjóri býður varðstjóranum
starf sitt aftur bréfleiðis og sendir afrit af
bréfinu á lögreglustjórann á Blönduósi.
10. desember 2012 Lögreglustjórinn á Blönduósi tilkynnir
varðstjóranum að til meðferðar sé nýtt
mál á hendur honum sem varði mögulegt
blygðunarsemisbrot hans gegn stúlku árið 2010.
28. janúar 2013 Ríkissaksóknari fellir niður þetta nýja mál.
Atburðarásin
SVARAR EKKI Bjarni G. Stefánsson,
sýslumaður og lögreglustjóri á Blönduósi,
er sakaður um að svara ekki erindum
varðstjórans. Hann vill ekkert ræða það
við Fréttablaðið. Árið 2006 fékk hann
verðlaunabikarinn Umferðarljósið frá
samgönguráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
SPURNING DAGSINS
En Björn Ingi, hvað ef tölvan
segir nei?
„Það kemur alltaf eitthvað í netið.“
Björn Ingi Halldórsson rekur stefnumótavef-
inn makaleit.is. Þar geta einhleypir notað
netið til að komast í samband við hugsan-
legan lífsförunaut.
STUND MILLI STRÍÐA Vladimír Pútín Rússlandsforseti fór í göngutúr með hund-
unum sínum á dögunum. Ásakanir um mannréttindabrot hafa ekki verið að plaga
hann við það tilefni. NORDICPHOTOS/AFP
RÚSSLAND Vladimír Pútín Rússlandsforseti liggur nú undir ámæli fyrir
meint mannréttindabrot, meðal annars fyrir að þrengja enn að samkyn-
hneigðum þar í landi og einu sjálfstæðu kosningaeftirlitsstofnuninni.
Mitt í þeirri umræðu sendi skrifstofa forsetans frá sér myndir af Pútín
þar sem hann gantast með hundunum sínum, Buffy og Yume.
Pútín hefur, á löngum ferli, oftsinnis birt myndir af sjálfum sér við
leik og störf. Þar hefur hann meðal annars verið ber að ofan á hestbaki
og við fiskveiðar, við merkingar á hvítabirni og leitt hóp fugla svífandi á
svifdreka. - þj
Vladimír Pútín sendir frá sér myndir úr einkalífinu:
Ærslagangur í Rússlandsforseta
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
VIÐ HÖFUM …
tvöfaldað
kvikmyndasjóð
…
UNA HILDARDÓTTIR
11. SÆTI SUÐVESTURKJÖRDÆMI
BJÖRGVIN Kona játaði í gærkvöld
fyrir lögreglu í Noregi að hafa
kveikt í þremur húsum í miðbæ
Björgvinjar.
Samkvæmt norskum fjöl-
miðlum lagði talsverðan reyk
um svæðið. Þó að fljótt hafi
tekist að ráða niðurlögum
allra eldanna var fólk engu að
síður látið yfirgefa nærliggj-
andi byggingar sem flestar eru
úr timbri og standa mjög þétt
saman.
Talið var að skemmdir vegna
brunanna væru fyrst og fremst
vegna vatns sem notað var við
slökkvistarfið. - gar
Brennuvargur í Björgvin:
Kona kveikti í
þremur húsum