Fréttablaðið - 12.04.2013, Qupperneq 12
12. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Umboðs- og dreifingaraðili Ray Ban á Íslandi
Fastir
vextir
Óverðtryggðir
innlánsvextir m.v.
mánaða bindingu
Fastir
vextir
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
mánaða bindingu
Við bjóðum ölbreytt úrval innláns-
reikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
Save the Children á Íslandi
EFNAHAGSMÁL Þverpólitísk nefnd
um afnám gjaldeyrishafta segir
nauðsynlegt að horfa heildrænt á
erlendar eignir hérlendis við afnám
haftanna. Lausnir á afmörkuðum
vanda, svo sem krónueignum eða
sölu banka, geti seinkað afnámi haft-
anna og jafnvel ógnað fjármála- og
gengisstöðugleika.
Þetta kemur fram í bréfi sem
nefndin ritaði fjármála- og efna-
hagsráðherra og formönnum stjórn-
málaflokka. Fréttablaðið ræddi við
nefndarmenn, en nefndin var skipuð
fulltrúum allra þingflokka.
Jón Helgi Egilsson, fulltrúi Hreyf-
ingarinnar, segir að stjórnmála-
flokkarnir verði að geta svarað því
hvernig leysa eigi það vandamál,
sem innlendar eignir erlenda kröfu-
hafa eru, í heild sinni. Um gríðar-
legar upphæðir sé að ræða, eða 2.700
milljarða. Hann varar við umræðu
um einstakar aðgerðir, svo sem sölu
bankanna.
„Það vantar alveg að setja stóru
myndina niður. Innlendar krónu-
eignir erlendra aðila geta haft veru-
leg áhrif á gengið til framtíðar.“
Huginn Freyr Þorsteinsson,
fulltrúi Vinstri grænna, tekur
undir það og segir að ekki megi búa
til ímyndaða tímapressu. „Mikið
hvílir á því að afnám gjaldeyris-
hafta takist vel. Ef ekki þá myndi
hvaða skuldaleiðrétting sem er duga
skammt gagnvart því vandamáli
sem myndi þá blasa við í íslensku
efnahagslífi.“
Tryggvi Þór Herbertsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, segir það
geta skert samningsstöðu Íslands
verði farið út í einhverjar sértækar
aðgerðir. „Við leggjum gríðarlega
mikla áherslu á að þetta verði allt
saman gert í samstöðu allra stjórn-
málaflokka og það verði gert á trú-
verðugan hátt.“
Bolli Héðinsson, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar, segir erfitt ef búið er að
ráðstafa þeim eignum sem talið sé
að liggi í fjármununum. „Ef menn
eru búnir að lofa mjög miklu þá vita
kröfuhafarnir sem er að þú þarft að
fara að afhenda til kjósenda og þá
er hættara við því að þú sért að ein-
hverju leyti búinn að gera þér verri
samningsstöðu en þú þyrftir að vera
í.“ kolbeinn@frettabladid.is
Þarf að horfa til allra eigna
við afnám gjaldeyrishafta
Fulltrúar í þverpólitískri nefnd vara við einstökum aðgerðum varðandi erlendar eignir hérlendis. Ekki megi
selja banka eða losa snjóhengju í sértækum aðgerðum. Fjárþörf úr krónueignum geti skert samningsstöðu.
JÓN HELGI
EGILSSON
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
SEÐLABANKINN Þar sem hér ríkja gjaldeyrishöft þarf Seðlabankinn að samþykkja
alla nauðasamninga, þar með talið þá sem lúta að erlendum eignum hér á landi og
föllnu bönkunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Alþingi samþykkti samhljóða, 9. mars, að gera gjaldeyrishöft-
in ótímabundin. Hin þverpólitíska nefnd hafði lagt það til,
þar sem það mundi skerða samningsstöðu Íslands að hafa
skilgreindan endapunkt á þeim. Þá myndu kröfuhafarnir ein-
faldlega bíða þess dags og hvati til samninga væri lítill.
Bolli Héðinsson segir það gera samningsstöðuna verri
hafi væntanleg ríkisstjórn lofað miklu um það hvernig eyða
eigi þeim fjármunum sem fást úr krónueignum þegar höftin
verða afnumin. „Það hversu brýnt það er að þú komist yfir
hagnaðinn til að efna kosningaloforðin getur gert samnings-
stöðuna verri.“
Alþingi samþykkti samhljóða
UMHVERFISMÁL Stefnt er að því
að fyrirhugaðar vinnu búðir
Bjarnar flagsvirkjunar verði
reistar á lóð Kísiliðjunnar. Gert
er ráð fyrir tólf byggingarreitum
alls 13.200m². Þetta kemur fram
í auglýsingu um deiliskipulag frá
skipulags- og byggingarfulltrúa
Skútustaðahrepps sem birt var í
Mýflugunni í gær.
„Þetta er óeðlilegt miðað
við yfirlýsingar um að ekk-
ert sé ákveðið við Bjarnar-
flag. Það er mjög vont að menn
segi eitt og séu svo að vinna
að allt öðru. Þetta bendir bara
til þess að Landsvirkjun vinni
óhikað, þrátt fyrir yfirlýsingar
um annað,“ segir Guðmundur
Hörður Guðmundsson, forstjóri
Land verndar. Hann bendir á að
Umhverfisstofnun hafi í gær sett
Mývatn og Laxá á rauðan lista,
lista yfir svæði í hættu.
Hörður Arnarsson forstjóri
Landsvirkjunar, segir ekkert
athugavert við auglýsinguna og
málið í eðlilegum farvegi, lögum
samkvæmt. Unnið sé að því að
gera svæðið tilbúið undir virkj-
unarframkvæmdir. Það verði svo
að koma í ljós hvort virkjunarleyfi
fáist. Það sé pólitísk ákvörðun. -mlþ
Auglýsing Skútustaðahrepps um deiliskipulag veldur náttúruverndarsamtökum óhug:
13.200 fermetra vinnubúðir við Bjarnarflag
GUÐMUNDUR
HÖRÐUR
GUÐMUNDSSON
HÖRÐUR
ARNARSON
BOLLI HÉÐINSSON