Fréttablaðið - 12.04.2013, Síða 22
FÓLK|
Ásdís Björg Jónsdóttir, gæðastjóri hjá
N1, segir að fyrirtækið hafi innleitt
umhverfisstefnu fyrir nokkrum árum.
„Í ár tökum við virkan þátt í Grænum
apríl. Við höfum stigið stór umhverfis-
væn spor á undanförnum árum,
sex stöðvar eru ISO 14001- vottaðar
og fimm bætast fljótlega við. Um-
hverfisstefna okkar samlagast mjög
vel Grænum apríl og vildum við sýna
stuðning í verki,“ útskýrir hún.
„Hreinsunardagurinn var liður í dag-
skrá í Grænum apríl hjá N1 en þegar
snjó fer að leysa er ýmislegt sem
kemur í ljós. Starfsfólkið á stöðvunum
sér um daglega umhirðu. Hins vegar
jukum við mannaflann og fóru allir á
skrifstofunni út með svarta ruslapoka
í nokkra klukkutíma. Það voru margir
pokar sem fylltust. Allir taka þátt í
þessu átaki en um leið fékk starfs-
fólkið súrefni og hreyfingu,“ segir
Ásdís Björg og bætir við að allir hafi
verið klæddir í öryggisfatnað. „Við
létum gott af okkur leiða, umhverfið er
hreinna og allir voru ánægðir.“
Ásdís Björg segir að þar sem þjón-
ustustöðvar séu gjarna við fjölfarnar
götur safnist oft mikið rusl í kringum
þær. „Við erum með þrjá skráða atburði
er tengjast umhverfiseflingu í þessum
mánuði. Höfuðstöðvarnar á Dalvegi
flokka allt sorp frá og með næstu viku.
Við ljúkum síðan mánuðinum með því
að gefa öllum starfsmönnum svarta
poka til að fylla í sínu heimaumhverfi
og umhverfisvæna innkaupapoka til að
taka með sér í búðina.“
HELGIN
HREINSUN
Ásgeir Örn Rúnarsson
og Eva Erlendsdóttir,
starfsmenn hjá N1, létu
sitt ekki eftir liggja.
MYND/GVA
HREINSUNARÁTAK HJÁ N1
Starfsfólk N1 tók saman höndum og hreinsaði rusl fyrir utan þjónustustöðvar
í vikunni, allt nærumhverfið var tekið í gegn. Átakið er liður í grænum apríl.
Eitt stærsta golfmót heims fer fram um helgina þegar Masters-mótið verður haldið á Augusta
National-vellinum í Georgíu í Banda-
ríkjunum. Ljóst er að margir íslenskir
golfáhugamenn á öllum aldri munu
sitja límdir við skjáinn um helgina
og fylgjast með bestu kylfingum
heims etja kappi í einum stærsta
sjónvarps viðburði heims á sviði
íþrótta. Hjónin Guðmundur Oddsson
og Sóley Stefáns dóttir eru í hópi fjöl-
margra golfáhugamanna sem munu
eyða helginni í að horfa á mótið, enda
eru þau miklir golfáhugamenn. Guð-
mundur, sem er formaður stjórnar
Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar,
segir þau hjónin bæði komin á eftir-
laun en í dag sé golfið eiginlega at-
vinna þeirra.
„Við höfum stundað golfið stíft í
sextán ár en við byrjuðum seinna en
margir að stunda íþróttina. Tengda-
pabbi reyndi að koma mér út í golfið
fyrr en þá var boltinn bara of lítill fyrir
mig. Við verðum því varla heimsmeist-
arar úr þessu en berjumst bara við
okkur sjálf í staðinn.“
Dagskrá helgarinnar er afar einföld.
Það á að horfa á golf í sjónvarpinu
og fátt annað kemst að. „Við munum
fylgjast rækilega með mótinu um
helgina eins og við höfum gert undan-
farin ár. Við munum auðvitað fylgjast
vel með uppáhaldskylfingum okkar og
svo koma alltaf einhver ný nöfn fram á
þessu móti.“
Mótið er nánast heilög stund
fyrir þau hjónin að sögn Guðmund-
ar. „ Maður þolir ekki mikla truflun
yfir svona móti og slekkur nánast á
símanum. Svona móts vill maður njóta
í friði og ró. Tækninni hefur fleygt
svo mikið fram að það er eiginlega
skemmtilegra að horfa á svona mót í
sjónvarpi en á vellinum sjálfum.“
Sjálfur heldur Guðmundur mest
upp á Luke Donald og hefur gert það
í mörg ár. Sóley heldur mest upp á
sigur vegara síðasta árs, Bubba Wat-
son, og Phil Mickelson og Ian Poulter,
sem er mikið tískufrík að sögn Guð-
mundar og heillar allar konur. „Síðan
fylgjast auðvitað allir með baráttu
Tigers Woods og Rorys McIlroy um
helgina.“ ■ starri@365.is
HEILÖG STUND
FYRIR HJÓNIN
GOLFHELGIN Margir Íslendingar munu sitja límdir við sjónvarpsskjáinn um
helgina þegar Masters-mótið í golfi fer fram.
GOLFHJÓNIN
Guðmundur Oddsson
og Sóley Stefánsdóttir
ætla að fylgjast með
Masters-mótinu alla
helgina. Á myndinni er
barnabarn þeirra sem
virðist hafa erft golf-
áhuga afa og ömmu.
MYND/GVA
GRÆNN APRÍL
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 7.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð frá 40.000
Höfðagaflar frá 5.000
Sjónvarpsskápar frá 25.000
Rúm 153cm frá 157.000
Speglar frá 5.000
Fjarstýringavasar frá 2.500
Hægindastólar frá 99.000
Tungusófar frá 75.400
Hornsófar frá 139.900
Sófasett frá 99.900
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Hornsófar - Tungusófar - Sófasett
Sófasett - Hornsófar - Tungusófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
Nýtt
Torino
Mósel
Milano
Basel
Paris
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir