Fréttablaðið - 13.04.2013, Page 16
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
Þó svo að mörg þúsund
milljarðar króna afskrif-
ist vegna hruns stóru við-
skiptabankanna í október
2008 standa umtalsverð-
ar upphæðir eftir í þrota-
búum þeirra. Ísland á
gríðar lega mikið undir því
að uppgjör þessara eigna
og brotthvarf þeirra úr
hagkerfinu stefni stöðug-
leika og hagsmunum sam-
félagsins ekki í voða sam-
hliða því að okkur takist
að afnema fjármagnshöft.
Mestu hagsmunir þeirra erlendu
aðila sem eiga kröfur í bú gömlu
bankanna liggja í því að fá aðgang
að eignum í erlendri mynt. Þær
eignir nema 1.500-1.700 milljörð-
um króna.
Útgreiðsla þessara eigna til
kröfuhafa eftir því sem þær breyt-
ast í reiðufé í erlendri mynt hefur
í sjálfu sér ekki bein áhrif á gjald-
eyrisjöfnuð landsins enda lendir
það utan okkar hagkerfis. Engu að
síður þurfa erlendu kröfu hafarnir
undanþágur frá fjármagns-
höftunum. Þær er erfitt að
veita fyrr en séð er fyrir
endann á lausn málsins í
heild og þá einkum hvern-
ig eignarhlutur búanna í
krónum verður meðhöndl-
aður. Þessi eignarhluti
búanna í krónum saman-
stendur af ríflega tvisvar
sinnum 200 milljörðum.
Annars vegar er um að
ræða eignarhlut þeirra í
Íslandsbanka og Arion og
hins vegar ýmsum öðrum
krónueignum. Gamla snjó-
hengjan upp á um 400 milljarða
er svo þar fyrir utan. Þannig að í
heild er umfang málsins um 2.200-
2.400 milljarðar króna.
Samningar eða skattlagning?
Hvað er nú til ráða í þessari stöðu?
Augljósasti kosturinn er að láta
reyna á tilboð á viðskiptalegum
grundvelli eða þá einhvers konar
samninga. Ómögulegt er að slá
mati á niðurstöðu slíkra viðskipta
eða samninga fyrirfram. Það er þó
ljóst að eignarhlutir í evrópskum
bönkum, hvað þá íslenskum, selj-
ast langt undir bókfærðu nafn-
verði í dag. Kröfuhafar þyrftu því
að sitja lengi fastir inni í íslensku
hagkerfi ef þeir sættu sig ekki
við verulegan afslátt. Með hinar
hreinu krónueignir búanna hefði
væntanlega hvort eð er alltaf farið
eins og með krónur í snjóhengj-
unni, þ.e. að þeim yrði seint skipt
á fullu álandsgengi. Annar kostur
í stöðunni væri að beita útgöngu-
skatti sem er vel þekktur þegar
fjármagns- eða gjaldeyrishöft
eru afnumin og hefur verið hluti
af áætlun stjórnvalda um afnám
hafta.
Lögin frá mars 2012 lykillinn
Það er því fátt nýtt í umræðunni
um að gera megi ráð fyrir veru-
legri verðfellingu þessara krónu-
eigna í eigu útlendinga eins og
annarra krónueigna þeirra, að
baki fjármagnshöftum, þegar að
því kemur að skipta þeim í gjald-
eyri. Vissulega kunna óþolin móðir
erlendir kröfuhafar að sætta sig
við afslátt á eignum sínum gegn
því að koma fjármunum sínum úr
landi. En hvernig varð sú staða til?
Jú, sú staða hefur orðið til vegna
þess að Seðlabanki, ríkisstjórn og
stjórnarmeirihlutinn hafa á þessu
kjörtímabili gert allt rétt til að
tryggja hagsmuni landsins í þessu
sambandi. Munar þar mest um
samþykkt frumvarps meirihluta
efnahags- og viðskiptanefndar
sem undirbúið var af Seðlabanka
Íslands og efnahags- og viðskipta-
ráðuneytinu undir forustu undir-
ritaðs í marsmánuði 2012. Þar
voru eignir búanna færðar bak
við fjármagnshöftin. Ef ég man
rétt greiddi Sjálfstæðisflokkur-
inn atkvæði gegn því frumvarpi og
viðstaddir Framsóknarmenn sátu
hjá. Já, Framsókn sat hjá í þessu
mikilvæga máli en þykist nú hafa
fundið málið upp og eiga einkarétt
á því að útdeila á grundvelli þess
mögulegum óorðnum ávinningi.
Stórvarasöm loforð
Aðalatriðið er að vandað sé til
þessarar vinnu og að gullgrafara-
æði grípi ekki um sig þannig að
við fórnum sterkri samningsstöðu
sem við höfum byggt upp með
hár réttum aðgerðum. Kosninga-
loforð sem ganga út á að ákveða
fyrirfram niðurstöðu sem eigi að
skila svo og svo miklum ávinn-
ingi og setja á okkur tímapressu
til að hægt verði að efna loforðin
eru stórvarasöm, óábyrg og ekk-
ert annað en ódýrt lýðskrum. Fari
eitthvað úrskeiðis í aðgerðum til að
vinda ofan af fjármagnshöftunum
gæti hagkerfið orðið fyrir miklu
höggi. Krónan myndi veikjast
sem þýddi verðbólguskot með til-
heyrandi afleiðingum fyrir fyrir-
tæki og heimili. Því er mikilvægt
að stíga engin skref fyrr en vissa
er fyrir því að heildarlausn á vand-
anum sé fundin. Þetta er hægt með
samstilltu átaki og þolinmæði að
vopni.
Ísland og erlendir kröfuhafar
Öflugt heilbrigðiskerfi
var stolt okkar Íslendinga
um árabil og við gátum
státað af því að vera með
eitt besta heilbrigðiskerfi
í heimi. Margar þjóðir
öfunduðu okkur af þessu.
Íslenska heilbrigðiskerfið
var eitt af því sem veitti
borgurum þessa lands
hvað mest öryggi. Þegar
einhver varð veikur, ég
tala nú ekki um einhver
nákominn, var dásam-
legt að lifa í landi þar
sem maður gat verið fullviss
um að alltaf var til staðar; fær-
asta fólkið, bestu tækin og besti
aðbúnaður sem þekktist. Þetta
voru einhver mestu lífsgæði sem
hugsast gátu og það var gott að
vera Íslendingur með íslenska
heilbrigðiskerfið að bakhjarli.
En nú eru því miður breyttir
tímar. Ástæðan er ekki hvað síst
röng forgangsröðun stjórnvalda
undanfarin fjögur ár sem hafa
eytt ógrynni fjár í ESB-umsókn
sem fæstir vilja, nýja stjórnar-
skrá frá grunni sem sannarlega
er ekki þörf á, eða að taka rang-
ar ákvarðanir við björgun fall-
inna fjármálastofnana eins og
SpKef og fleira mætti tiltaka um
ranga forgangsröð. Heilbrigði og
menntun eru grunnstoðir þjóð-
félags okkar, um það held ég að
flestir Íslendingar séu sammála
hvar sem þeir standa í pólitík.
Hins vegar er nú svo komið að
búið er að skera heilbrigðis kerfið
inn að beini, starfsfólk í heil-
brigðisgeiranum hefur tekið á sig
stóraukið álag til að reyna halda
fyrri gæðum, en auðvitað er það
engan veginn hægt. Í ofanálag
eru það ekki bara tæki Land-
spítalans sem eru úr sér gengin
mörg hver, heldur eru húsnæðis-
mál spítalans líka algerlega óvið-
unandi.
Forgangsraða þarf rétt
Á fundi sem samtök lækna héldu
nýlega hélt Sigurður Guðmunds-
son, yfirlæknir og prófessor við
læknadeild HÍ, afar fróðlegt
erindi. Sigurður er mjög áhyggju-
fullur yfir stöðu heilbrigðismála
í landinu, og vert að taka fullt
mark á aðvörunum hans. Hann
segist heldur ekki skilja hvernig
stjórnvöld eigi peninga til að
bjarga fjármálastofnunum eins
og SpKef og Sjóvá, sem sagt sé
að hafi kostað fimmtíu milljarða.
Það sé ekki fjarri þeirri upphæð
sem áætlað er að þurfti til að
byggja nýjan spítala. Hvort vegi
þyngra öflugt heilbrigðiskerfi
eða framtíð SpKef og Sjóvár?
Sigurður bætti við að einn sam-
ferðamaður sinn hefði sagt hvort
ekki væri rétt að breyta skamm-
stöfun Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss úr LSH í LMH, Land-
spítala – myglusjúkrahús, vegna
myglunnar sem fundist hefur í
húsnæði Landspítalans og hefur
valdið starfsfólki og öðrum
heilsutjóni. Auðvitað var þetta
gráglettni, en undirtónninn er
grafalvarlegur.
Við Íslendingar erum sem
betur fer þannig skapi farnir
að við gefumst ekki upp. Fram
undan er mikið uppbyggingar-
starf innan heilbrigðiskerfisins.
Fyrst þarf að efla atvinnulífið
til þess að við getum veitt fólk-
inu okkar þá bestu velferð sem
völ er á. Síðan er að forgangsraða
rétt. Við sættum okkur ekki við
neitt minna en úrvalsheilbrigðis-
kerfi og ef Sjálfstæðisflokkurinn
á aðild að næstu ríkisstjórn mun
það verða sett á oddinn að endur-
heimta þann gæðastimpil sem
íslensku heilbrigðiskerfi ber.
Aftur í úrvalsfl okk!
FJÁRMÁL
Steingrímur J.
Sigfússon
atvinnuvega- og
nýsköpunar-
ráðherra
STJÓRNMÁL
Elín Hirst
í 5. sæti á lista Sjálf-
stæðisfl okksins í
Suðvesturkjördæmi
➜ Við sættum okkur
ekki við neitt minna
en úrvalsheilbrigðis-
kerfi og ef Sjálfstæðis-
fl okkurinn á aðild
að næstu ríkisstjórn
mun það verða sett
á oddinn að endur-
heimta þann gæða-
stimpil sem íslensku
heilbrigðiskerfi ber.
➜ Augljósasti kosturinn
er að láta reyna á tilboð á
viðskiptalegum grundvelli
eða þá einhvers konar
samninga.
UMMÆLI VIKUNNAR 06.04.2013 ➜ 12.04.2013
Samfélagsstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Landsbankinn veitir 15 milljónum króna í samfélagsstyrki árið
2013. Samfélagsstyrkjum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum
sviðum, þar á meðal í mannúðarmálum, menningu og listum,
menntun, rannsóknum og vísindum, forvarna- og æskulýðsstarfi
og sértækri útgáfustarfsemi.
Veittir eru styrkir í þremur þrepum:
1.000.000 kr.
500.000 kr.
250.000 kr.
Verkefni sem einkum koma til greina:
verkefni mannúðarsamtaka og góðgerðarfélaga
verkefni á sviði menningar og lista
menntamál, rannsóknir og vísindi
forvarna- og æskulýðsstarf
sértæk útgáfustarfsemi
Umsóknarfrestur til 13. maí.
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja er til og með mánudeginum
13. maí 2013. Dómnefnd er skipuð fagfólki á hverju sviði. Sótt er um
styrkina rafrænt á landsbankinn.is.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til
verðugra verkefna. Árlega eru ferns konar styrkir veittir: Námsstyrkir,
nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is.
„Áður en ég sá þessa könn-
un var ég ekkert að velta
þessum hlutum fyrir mér.“
Bjarni Benediktsson viðurkenndi að hann
hlyti að taka til sín könnun sem sýndi að
Sjálfstæðisfl okkurinn fengi meira fylgi ef
Hanna Birna Kristjánsdóttir væri formaður.
„Ég upplifi líklega aldrei þá
sömu tilfinningu og aðrir
sem koma heim á æsku-
slóðir […] Ekki þessa góðu
tilfinningu, ég er komin
heim!“
Guðný Jóna Kristjánsdóttir vakti þjóðar-
athygli í byrjun vikunnar þegar hún
sagði frá nauðgun sem hún varð fyrir á
Húsavík fyrir fj órtán árum. 113 Húsvíkingar
skrifuðu á undirskrift arlista til stuðnings
nauðgara hennar.